Miðflokki fatast flugið Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 18:56 Formenn flokkanna tveggja Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Guðrún Hafsteinsdóttir í Kryddsíld. Vísir/Anton Brink Miðflokknum fatast flugið og Sjálfstæðisflokkurinn nær vopnum sínum í nýrri könnun Maskínu. Niðurstöðurnar voru birtar í kvöldfréttum Sýnar í kvöld en meðal annarra tíðinda eru þau að Píratar mælast í þetta skiptið með meira fylgi en Flokkur fólksins.
Fylgi Miðflokksins hefur aukist viðstöðulaust frá því í september í fyrra en samkvæmt nýrri könnun mælist það nú nítján prósent og lækkar um þrjú prósentustig milli mánaða. Fylgi Sjálfstæðisflokksins, sem hefur á sama tímabili dalað, eykst aftur á móti um þrjú prósentustig. Fylgi annarra flokka helst nokkuð svipað. Samfylkingin mælist enn langstærst með tuttugu og sjö prósent en fylgi Viðreisnar lækkar örlítið og stendur í rúmum þrettán prósentum. Í síðustu könnun Maskínu mældist Viðreisn aðeins stærri en Sjálfstæðisflokkur, en síðarnefndi flokkurinn er nú þremur prósentustigum stærri. Framsókn mælist enn með sjö prósent en fylgi Pírata eykst aðeins, fer upp í fimm prósent og jafnframt yfir Flokk fólksins sem mælist með 4,8 prósent. Þá mælist VG með fjögur prósent en Sósíalistar með þrjú. Ólík viðbrögð við síðustu könnun Í síðustu könnun Maskínu mældist Miðflokkurinn með um 22 prósenta fylgi. Sagði Snorri Másson varaformaður Miðflokksins meðal annars í samtali við fréttastofu að hann finndi fyrir ákalli um breytt stjórnmál. Hann sagðist finna fyrir þrýstingnum vegna fylgisins en sagði mikilvægt að flokkurinn breytti ekki um kúrs og myndi bregðast við ákallinu. Sama dag sagði Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins hinsvegar að fylgistölur Sjálfstæðisflokksins þá, 13,5 prósent, væru mikið áhyggjuefni. Sagði hún að flokkurinn tæki fylgistölurnar alvarlega. „Það kemur mér auðvitað pínulítið á óvart ef kjósendur vilja frekar kjósa einhvern veginn afsprengi Framsóknarflokksins heldur en Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Guðrún þá í kvöldfréttum Sýnar. Miðflokkurinn væri afturhaldssamur þjóðernisflokkur sem sæki innblástur til Bandaríkjanna.
Skoðanakannanir Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Vinstri græn Píratar Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Sósíalistaflokkurinn Tengdar fréttir Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. 21. janúar 2026 12:01 „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn mælist nú með rúmlega 22 prósenta fylgi, aðeins fimm prósentum minna en Samfylking og mun meira en næstu flokkar á eftir. Varaformaðurinn segir að hann finni fyrir ákalli um breytt stjórnmál og að mikilvægt sé að Miðflokksmenn haldi áfram að tala skýrt um þau. 21. janúar 2026 12:27 Algjörlega óásættanleg staða „Það kemur mér auðvitað pínulítið á óvart ef kjósendur vilja frekar kjósa einhvern veginn afsprengi Framsóknarflokksins heldur en Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður þess síðarnefnda. Miðflokkurinn sé afturhaldssamur þjóðernisflokkur sem sæki innblástur til Bandaríkjanna. 21. janúar 2026 21:36 Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira
Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu Miðflokkurinn mælist með 22,2 prósent í nýrri könnun Maskínu og eykst fylgið um þrjú prósent milli mánaða. Samfylkingin mælist með 27 prósent og því munar einungis tæpum fimm prósentustigum á flokkunum. Viðreisn mælist stærri en Sjálfstæðisflokkurinn. 21. janúar 2026 12:01
„Það er ekki laust við að það fari um mann“ Miðflokkurinn mælist nú með rúmlega 22 prósenta fylgi, aðeins fimm prósentum minna en Samfylking og mun meira en næstu flokkar á eftir. Varaformaðurinn segir að hann finni fyrir ákalli um breytt stjórnmál og að mikilvægt sé að Miðflokksmenn haldi áfram að tala skýrt um þau. 21. janúar 2026 12:27
Algjörlega óásættanleg staða „Það kemur mér auðvitað pínulítið á óvart ef kjósendur vilja frekar kjósa einhvern veginn afsprengi Framsóknarflokksins heldur en Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður þess síðarnefnda. Miðflokkurinn sé afturhaldssamur þjóðernisflokkur sem sæki innblástur til Bandaríkjanna. 21. janúar 2026 21:36