Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Eiður Þór Árnason skrifar 26. febrúar 2026 00:07 Hafþóri Aroni Tómassyni var verulega brugðið þegar hann mætti snjóruðningstækinu. Tjón er á baksýnisspegli og á hann von á því að finna frekari skemmdir í fyrramálið. aðsend/samsett Vegfarandi segir glæfralegan akstur ökumanns snjóruðningstækis hafa valdið skemmdum á bíl hans á Hafnarfjarðarvegi. Mikil hætta hafi verið á ferðum og hann verið viss um að framrúðan myndi springa. Þá hafi fleiri ökumenn greint frá tjóni. „
Það mætir mér eiginlega bara veggur af snjó og slabbi. Það er þá út af því að það er snjóruðningstæki hinum megin á gagnstæðri akstursstefnu sem er að koma á móti okkur,“ segir Hafþór Aron Tómasson. Honum hafi verið verulega brugðið og þungt snjóhlassið blindað hann í nokkrar sekúndur. Hann hafi verið að keyra Hafnarfjarðarveg milli Hamraborgar og Arnarneshæðar í átt að Hafnarfirði um sjöleytið á miðvikudagskvöldinu þegar atvikið átti sér stað. Þung umferð hafi verið á veginum og bíll upp við bíl. „Aðstæður voru náttúrulega þannig að það var enginn að keyra neitt ógurlega hratt þar sem það var svo rosalega mikið vatnsmagn á veginum.“ Ökumaður snjóruðningstækisins hafi greinilega verið á nokkrum hraða þar sem snjórinn hafi ferðast langt. „Þrátt fyrir að það sé töluverð umferðareyja þarna á milli þá var þetta þannig að það náði hreinlega yfir báðar akreinar. Þetta var enn þá verra á vinstri akreininni,“ segir Hafþór í samtali við fréttastofu. Reiknar með að finna frekari skemmdir „Ég hef eiginlega engan séns þarna til að gera nokkurn skapaðan hlut nema bara hægja á bílnum. Svo er þetta bara eins og að klessa svolítið á vegg eða eitthvað því að þá kemur svo rosalegt högg þegar þetta dynur yfir bílinn og ég klessi inn í þetta. Ég er bara blindur þarna í smástund á meðan rúðuþurrkurnar eru að hafa undan.“ Við þetta hafi vinstri hliðarspegill bílsins skemmst en Hafþór tekur fram að hann hafi ekki enn náð að grandskoða bifreiðina vegna myrkurs og bleytu. „Ég býst fyllilega við því þegar ég skoða bílinn í birtu á morgun að ég sjái meira tjón á honum. Hliðarspegillinn fór í mask og þetta náði að fella hann inn að bílnum.“ Hann hafi til að mynda áhyggjur af framrúðunni. „Ég bjóst við því að framrúðan myndi gefa sig. Þetta var náttúrulega bara stórhættulegt.“ Hafþór bætir við að umferðin hafi verið það þétt á veginum að það hafi ekki verið nein leið fyrir hann að færa sig af akreininni á þeim stutta tíma sem hann hafði til að bregðast við. Fleiri greint frá tjóni Hafþór segir að hann hafi séð aðra ökumenn greina frá því að bílar þeirra hafi skemmst sama kvöld við það að fá álíka eða jafnvel sömu snjógusu yfir sig. Hann hafi heyrt í Vegagerðinni út af málinu og heyrt á þeim að fleiri svipaðar tilkynningar hafi borist þeim og Vegagerðin sömuleiðis fengið ábendingu frá lögreglu. „Ég er bara að spá í því hvað hann hafi tjónað marga bíla,“ segir Hafþór um ökumann snjóruðningstækisins. Sjálfum finnst honum að málin eigi heima inni á borði lögreglu. „Þetta er í besta falli vítavert gáleysi. Bara stórhættulegt athæfi, því ef það hefði einhver verið labbandi þarna eða eitthvað þá held ég að það hefði bara ekki verið neitt grín.“ Komi á versta tíma Eiginkona Hafþórs liggur inni á Landspítala vegna eftirkasta barnsfæðingar og er fjölskyldan því undir miklu álagi þessa dagana. Hafþór var á leiðinni heim að ná í lyf fyrir hana þegar hann mætti snjóruðningstækinu. „Það má því segja að þetta hafi verið svekkjandi tímasetning til að lenda í þessu. Þetta er það síðasta sem ég vildi lenda í núna.“ Verra en það sem hann upplifði í björgunarsveit Hafþór var um tíma hluti af björgunarsveit þar sem hann lenti í ýmsu veðurtengdu. „En ég held að mér hafi sjaldan verið jafn brugðið og í jafnmiklu uppnámi úti á vegi og þarna.“ Málinu sé alls ekki lokið og tryggingarnar bíði til morguns þar sem það er að mörgu öðru að huga þessa dagana. „Ég á eftir að reyna að grandskoða hann betur. Það er ekki alveg í forgangi með ungbarn og veika konu.“
Umferð Snjómokstur Umferðaröryggi Kópavogur Mest lesið Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Innlent Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Erlent Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Nýjasta sólmyrkvaspáin gefur ívið betri fyrirheit Veður Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Innlent „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar Rósa Björk segir já Gangi Ísland í Evrópusambandið verði framsal ríkisvaldsins verulegt Muni hlusta og taka væntingar, þrár og áhyggjur til greina Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Hallalaus fjárlög ekki í spá fyrr en árið 2031: „Við höfum varað við þessu síðastliðið ár“ Ný skýrsla AGS og ummerki um snjóflóð á hafsbotni Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst „Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Þyrlan kölluð út vegna mótorhjólaslyss á Sprengisandsleið Brotaþolar fluttir á slysadeild og allar árásirnar til rannsóknar Fimm ára drengur skilinn eftir í bíl á hálendinu Evrópumálin tekin fyrir í Sprengisandi Alls sjö líkamsárásir tilkynntar í gær og í nótt Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Sjá meira
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent
Grýtt á leið sinni heim úr Gleðigöngunni: „Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að við mætum“ Innlent