Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. febrúar 2026 12:02 G. Pétur segir að Vegagerðin muni kanna málið gaumgæfilega. Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar.
Ökumennirnir fimm létu allir vita af tjóninu í umræðuhópi á samfélagsmiðlinum Facebook en þar birtu þeir jafnframt myndir af brotnum framrúðum og brotnum hliðarspeglum. Einn ökumannanna Hafþór Aron Tómasson ræddi við Vísi í gær og lýsti því hvernig hann hefði fengið vegg af snjó og slabbi á framrúðuna vegna snjóruðningstækis úr gagnstæðri átt á mikilum hraða þar sem Hafþór var að keyra í áttina að Hafnarfirði á Hafnarfjarðarvegi. Verði að taka mið af aðstæðum G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ekki víst á þessum tímapunkti hvað hafi valdið þessum fjölda tjóna. „Við höfum skoðað strax hraðann, getum gert það auðveldlega og þetta tæki það er ekki á mikili ferð, það er á svona 45-48 kílómetra hraða á þessari leið og fer á einum tímapunkti upp í 52 kílómetra. Hraðinn svo sem segir ekki allt, ökumenn á þessum tækjum verða líka að taka tillit til aðstæðna hverju sinni.“ Málið verði skoðað gaumgæfilega. Vegagerðinni hafi borist nokkrar tjónatilkynningar vegna málsins. „Við hvetjum alla sem hafa orðið fyrir tjóni að senda inn tjónatilkynningu sem hægt er að gera á heimasíðunni okkar, þá fer það bara til meðferðar. Við höfum fengið einhverjar tilkynningar um snjó á bíla en ekki svona margar og sumar reyndar annars staðar af landinu, þannig eins og ég segi við skoðum þetta allt saman.“ Vel geti verið að aðstæður í gær, blautur og þar með þungur snjór, hafi átt sinn þátt í því mikla tjóni sem orðið hafi á bílunum. „Okkur finnst þetta svona óvenjulegt allavega og ég held að það sé rétt hjá þér að það geti vel verið einmitt að svona blautur snjór sé þungur og hafi þannig getað valdið meira tjóni en ella.“
Snjómokstur Kópavogur Hafnarfjörður Umferð Umferðaröryggi Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira