Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Agnar Már Másson, Lovísa Arnardóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa 26. febrúar 2026 15:35 Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Þetta hafði áhrif á tvö þúsund farþega Icelandair, sem hefur nú aflýst að minnsta kosti fimm flugferðum. Snjó kyngdi niður á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 14 í dag sem gerði snjóruðning erfiðan og dró úr skyggni við flugstöðina. Um tíma var töluverður fjöldi flugvéla í biðstöðu og hringsóluðu yfir Suðurlandið á meðan flugstjórar biðu leyfis til að lenda. Flugfélögin ákváðu að vísa vélunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyrar. Hér má sjá flugumferð milli 14.30 og 16.30 á 150-földum hraða. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia sagði að sautjáun vélar hafi þurft að hverfa frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli. Alls hafi sex vélar lent í Reykjavík; fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Átta Icelandair-vélar hafi svo lent á Akureyri. Þrjár hafi lent á Egilsstöðum, tvær frá Icelandair og ein frá Discovery. Ástandið stóð yfir til klukkan 16.30. Stefnt er að því að öllum farþegaþotunum verði flogið aftur til Keflavíkurflugvallar; Discovery-vélin lagði af stað til KEF um klukkan 18 og upplýsingafulltrúi Icelandair segir að öllum fimmtán vélum félagsins verði að óbreyttu flogið til Keflavíkur í dag. Farþegar munu bíða inni í vél, að sögn Icelandair. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Snjó kyngdi niður á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 14 í dag sem gerði snjóruðning erfiðan og dró úr skyggni við flugstöðina. Um tíma var töluverður fjöldi flugvéla í biðstöðu og hringsóluðu yfir Suðurlandið á meðan flugstjórar biðu leyfis til að lenda. Flugfélögin ákváðu að vísa vélunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyrar. Hér má sjá flugumferð milli 14.30 og 16.30 á 150-földum hraða. Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia sagði að sautjáun vélar hafi þurft að hverfa frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli. Alls hafi sex vélar lent í Reykjavík; fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Átta Icelandair-vélar hafi svo lent á Akureyri. Þrjár hafi lent á Egilsstöðum, tvær frá Icelandair og ein frá Discovery. Ástandið stóð yfir til klukkan 16.30. Stefnt er að því að öllum farþegaþotunum verði flogið aftur til Keflavíkurflugvallar; Discovery-vélin lagði af stað til KEF um klukkan 18 og upplýsingafulltrúi Icelandair segir að öllum fimmtán vélum félagsins verði að óbreyttu flogið til Keflavíkur í dag. Farþegar munu bíða inni í vél, að sögn Icelandair. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Veður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira