Allir sem hylji munninn verði reknir út af Valur Páll Eiríksson skrifar 1. mars 2026 22:16 Infantino vill að menn hætti að fela samskipti sín á milli. Ulrik Pedersen/NurPhoto via Getty Images Gianni Infantino, forseti FIFA, leggur mikla áherslu á reglubreytingar sem komi í veg fyrir að leikmenn hylji munn sinn meðan þeir eiga í samskiptum á fótboltavellinum.
Síðustu ár hefur borið meira á því að leikmenn hylji munn sinn með treyjunni þegar þeir eiga samskipti innan vallar. Það þarf ekki að vera vegna þess að menn segi eitthvað sem þeir megi ekki segja og geta það verið heldur léttvæg samskipti milli félaga. Menn vilji með þessu koma í veg fyrir að varalesarar greini persónuleg samskipti. Þessi iðja hefur birst í nýju samhengi síðustu vikur eftir ásökun Vinicius Junior á hendur Gianluca Prestianni um kynþáttaníð í leik Real Madrid og Benfica í Meistaradeild Evrópu. IFAB, sem hefur yfirumsjón með alþjóðlegu regluverki í fótbolta, lagði til breytingar sem taka á því að menn hylji munn sinn með þessum hætti. Forseti FIFA ítrekaði vilja til breytinga í viðtali við Sky Sports í dag. „Ef leikmaður hylur munninn og segir eitthvað, og það hefur afleiðingar sem varða kynþáttafordóma, þá verður hann auðvitað að vera rekinn af velli,“ sagði Gianni Infantino við Sky. „Það verður að vera gert ráð fyrir að hann hafi sagt eitthvað sem hann hefði ekki átt að segja, annars hefði hann ekki þurft að hylja munninn.“
FIFA Mest lesið DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti Golf Ætlaði allt um koll að keyra: „Óttuðust að það yrðu óeirðir“ Sport Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Fótbolti Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Fótbolti Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Fótbolti Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Fótbolti Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Fótbolti Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Fótbolti Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Íslenski boltinn Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Fótbolti Fleiri fréttir „Það ruglaður að manni finnst maður alltaf bestur“ Tuchel axlar ábyrgð á tapinu Messi: „Argentína hefur ekki fengið neitt gefins“ Treyja Pelé frá úrslitaleik HM 1958 seldist á 617 milljónir Þrjú félög örugg með að eignast nýjan heimsmeistara Hjátrúafullur forseti Argentínu mætir ekki á úrslitaleikinn Systurnar Kara og Katla áfram á skotskónum hjá KR Fylkismenn kláruðu Njarðvíkinga fyrir hlé „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Zlatan skaut á Norðmenn um leið og hann gagnrýndi England Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Meira en 200 lönd styðja Infantino til fjórða kjörtímabils sem forseta Tveir öflugir Spánverjar æfðu ekki með restinni af liðinu Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Harður gagnrýnandi Trumps við hlið hans á úrslitaleik HM Guardiola og enska knattspyrsnusambandið náðu samkomulagi Bríet Fjóla keypt til Þróttar Blatter baunar aftur á FIFA: „Lengsta hlé í sögu fótboltans“ Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Sjá meira