Davíð Oddsson er látinn Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. mars 2026 06:06 Davíð Oddsson í forsetaframboði árið 2016. Vísir/Anton Brink Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.
Greint er frá andláti Davíðs í Morgunblaðinu. Davíð fæddist 17. janúar 1948 í Reykjavík. Hann gekk í Menntaskólann í Reykjavík þar sem hann var inspector scholae í sjötta bekk, lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands. Hann gekk ungur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn og var kjörinn í borgarstjórn árið 1974. Árið 1982 varð Davíð borgarstjóri Reykjavíkur og gegndi því embætti til 1991. Á þeim árum var ráðist í umfangsmiklar breytingar á rekstri borgarinnar og skipulagi. Einkavæðing borgarfyrirtækja og niðurskurður í rekstri voru meðal þeirra aðgerða sem vöktu bæði stuðning og harða gagnrýni. Frá krýningu Ungfrú Íslands árið 1985 þar sem Halla Bryndís Jónsdóttir bar sigur úr býtum og Hólmfríður Karlsdóttir varð í 2. sæti. Við hlið Davíðs á myndinni er tónlistarmaðurinn Rod Stewart.vísir/gva Í borgarstjóratíð Davíðs hófust framkvæmdir við veitingahúsið Perluna, sem þá voru aðeins hitaveitutankar, og Ráðhús Reykjavíkur í norðurenda Tjarnarinnar í borginni. Davíð á fundi með Mikhail Gorbachev fyrrverandi leiðtoga Sovétríkjanna í New York árið 2001. Davíð var borgarstjóri þegar Gorbachev fundaði með Ronald Reagan í Höfða árið 1986.Getty/Diane L. Cohen Davíð tók við formennsku í Sjálfstæðisflokknum árið 1991 eftir nauman sigur á sitjandi formanni Þorsteini Pálssyni og varð sama ár forsætisráðherra. Hann gegndi embættinu í þrettán ár sem gerir hann að þeim sem lengst hefur setið sem forsætisráðherra Íslands. Fyrst myndaði hann ríkisstjórn með Alþýðuflokknum en síðar með Framsóknarflokknum. Davíð á fundi Nato árið 1997 ásamt Bill Clinton forseta Bandaríkjanna og Helmut Kohl kanslara Þýskalands.Getty/Tim Brakemeier Á valdatíma Davíðs voru gerðar róttækar breytingar á íslensku efnahagslífi. Ríkisfyrirtæki voru einkavædd, fjármálamarkaðir gerðir frjálsari og skattkerfið endurskipulagt. Þessar ákvarðanir mótuðu íslenskt samfélag til langs tíma. Davíð að fá sér Big Mac-borgara á McDonald's á Íslandi árið 1993 en forsætisráðherrann var fenginn til að smakka fyrsta Big Mac-hamborgarann.vísir/gva Sumir telja að með þeim hafi grunnur verið lagður að miklum hagvexti á tíunda áratugnum og í upphafi nýrrar aldar. Aðrir benda á að sama stefna hafi átt þátt í að skapa aðstæður sem leiddu til bankahrunsins árið 2008, fjórum árum eftir að hann lét af embætti forsætisráðherra. Davíð ásamt George W. Bush forseta Bandaríkjanna á fundi þeirra í Hvíta húsinu árið 2004.Getty/Alex Wong Eftir að Davíð lét af embætti forsætisráðherra tók hann við starfi seðlabankastjóra árið 2005. Hann gegndi því starfi þar til ný lög um Seðlabanka Íslands tóku gildi árið 2009 í kjölfar efnahagshrunsins. Davíð Oddsson og Ólafur Ragnar Grímsson þegar sá fyrrnefndi kom til fundar við forsetann árið 2003 vegna stjórnarmyndunarviðræðna.vísir/gva Árið 2009 sneri Davíð sér að fjölmiðlum og varð ritstjóri Morgunblaðsins ásamt Haraldi Johannessen. Hann braut blað í sögu blaðsins þegar hann kaus að halda áfram störfum sem ritstjóri þegar hann varð sjötugur árið 2018. Allir fyrirrennarar Davíðs höfðu látið af störfum á þeim tímamótum. Hann var starfandi ritstjóri blaðsins allt til dánardags. Að neðan má sjá viðtal við Davíð í tilefni af andláti Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, árið 2013 en Davíð fór um víðan völl í viðtalinu. Davíð var einnig rithöfundur og sendi frá sér bæði smásögur og skáldsögur. Hann var kunnur fyrir hvassa framgöngu, kaldhæðni og orðheppni. Þegar Davíð var forsætisráðherra gaf hann út tvö smásagnasöfn sem vöktu mikla athygli, annars vegar voru það Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar sem kom út árið 1997 og hins vegar Stolið frá höfundi stafrófsins sem kom út árið 2002. Þá samdi Davíð einnig textann við lag Gunnars Þórðarsonar, Við Reykjavíkurtjörn, að ógleymdum leikhæfileikum forsetaframbjóðandans sem lék til að mynda Bubba kóng Á Herranótt þegar hann var við nám við Menntaskólann í Reykjavík. Davíð bauð sig fram til forseta Íslands árið 2016 og hlaut 13,7 prósent atkvæða sem skilaði honum í fjórða sæti. Rætt var við Davíð í tilefni framboðsins árið 2016. Ljóst er að fáir hafa haft jafn mikil og langvarandi áhrif á íslensk stjórnmál á síðari áratugum og Davíð Oddsson. Hann lætur eftir sig eiginkonu sína Ástríði Thorarensen sem hann kvæntist árið 1970 og soninn Þorstein Davíðsson héraðsdómara sem fæddist árið 1971. Fréttin er í vinnslu.
Andlát Fjölmiðlar Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Davíð Oddsson er látinn Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Erlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Erlent Ört dýpkandi lægð á leiðinni og appelsínugular viðvaranir Veður Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Erlent Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Erlent Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Erlent Fleiri fréttir Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Færeyskir sjómenn á grænlenskum togara kusu á Íslandi Sjálfstæðisflokkurinn kynnir framboðslista í Reykjavík Um helmingur landsmanna hefur miklar áhyggjur af ásælni Bandaríkjanna í Grænland Fjórtán gefa kost á sér á lista Sjálfstæðismanna í Eyjum Guðmundur Árni leiðir áfram listann Býst að raforkuverð hækki samfara fyrirhuguðum skattabreytingum Gylfi Þór leiðir Viðreisn í Mosfellsbæ Segir áhyggjuefni að leikreglur séu virtar að vettugi Forsetahjónin verða viðstödd vígslu íþróttamannvirkis í Búðardal Árás á Íran, Háskóladagurinn og stórkostlegur endurkomusigur Framboðslistinn í Reykjanesbæ staðfestur Frostlaust sums staðar sunnan heiða Nágranninn kom út með hnífa í buxnastrengnum Fóru með fórnarlambið út að Gróttuvita og börðu með felgulykli Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel „Þetta verða mjög spennandi kosningar“ Sjá meira