Hvað á unga fólkið að kjósa? Daníel Þröstur Pálsson skrifar 2. mars 2026 17:00 Ungt fólk (18-35 ára) var um 35 þúsund talsins í Reykjavík árið 2021 samkvæmt Hagstofu Íslands og eru líklegast nokkuð fleiri í dag. Eflaust er þetta fólk og fleiri ungt fólk á landinu að pæla hvað það ætti að kjósa í sveitarstjórnarkosningunum sem eru núna í maí, enda nóg af framboðum í boði bæði í Reykjavík og annars staðar á landinu. Flokkur sem treystir ungu fólki. Ein besta leiðin til að sjá hvað ungt fólk á að kjósa er að skoða lista mismunandi flokka, enda væri vita vitlaust að kjósa flokk sem treystir fólki á okkar aldri ekki einu sinni á lista. Þegar málið er skoðað kemur í ljós að Samfylkingin er með fullt hús stiga. Þrír af efstu sex sem eru á lista flokksins er fólk undir 35 ára. Ekki bara það heldur er Isabel Alejandra Díaz stjórnsýslufræðingur og fyrrum forseti Stúdentaráðs HÍ í 9. sæti. Þá er Steindór Örn Gunnarsson, forseti ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar í Reykjavík, Hallveigar, í 23. sæti listans. Svo má nefna að Brynjar Bragi Einarsson, 19 ára menntaskólanemi, er í 29. sæti, í leiðinni líklegast yngsti eða með þeim yngstu frambjóðendum í vor, allavega í borginni. Erfitt er að sjá aðra flokka gera eins vel. Þó auðvitað vonar maður að þeir muni reyna, því fleiri ungt fólk í stjórnmálum því betra. En hvað með málefnin? Þegar rætt er um hvaða flokkur er bestur fyrir unga fólkið er auðvitað ekki bara nóg að skoða fólkið heldur líka málefnin og Samfylkingin er svo sannarlega með neglur þar líka. Taka má t.d. samgöngusáttmálinn sem er líklega eitt hið mikilvægasta mál ungs fólks í borginni. Enda tekur rithöfundur strætó hvern einasta dag eins og svo margir aðrir til skólans. Samfylkingin hefur verið leiðandi í málefnum strætó og hafa barist fyrir borgarlínunni frá byrjun. Mál sem mun gera það að verkum að biðtími eftir strætó mun snarminnka og áreiðanleiki aukast, ásamt því að framhalds- og háskólanemendur munu loksins hætta að þurfa að vera neyddir í að fá bíl með tilsvarandi kostnaði um leið og þau fá bílprófið. Ekki bara það heldur vil Samfylkingin efla ungt fólk og til dæmis bæta tómstunda- og íþróttastarf í borginni. Eins og oddvitinn, hann Pétur Marteinsson er oft búinn að fjalla um. Því málið er að allir sem hafa stundað eitthvað starf af þessu tagi, hvort sem það er að vera í fótbolta eða skátunum, vita að það er lykilatriði í að tryggja góð lífsgæði ungs fólks. Niðurstaða Í ljósi þessara atriða má segja að valið er skýrt. Flokkurinn sem mun styðja ungt fólk og berjast fyrir málefnum þess er Samfylkingin. Hvet ég þess vegna ungt fólk, sama hvar það er á landinu, að ganga til liðs við okkur í vor og hjálpa til við að tryggja sigur okkar. Því þannig gerum við það að verkum að okkar áherslur sem ungt fólk munu vera í fararbroddi þegar kemur að sveitastjórnarmálum. Höfundur er meðlimur Samfylkingarnar og varamaður í miðstjórn UJ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfylkingin Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar