„Þá er bara búið að skemma MR“ Smári Jökull Jónsson skrifar 2. mars 2026 22:17 Bæði fyrrverandi og núverandi nemendur MR eru á einu máli um nytsemi latínunáms. Vísir/Bjarni Fyrrverandi og núverandi nemendur Menntaskólans í Reykjavík eru á einu máli um gagnsemi latínunáms. Táknræn mótmæli vegna umdeildra breytinga á latínukennslu skólans beinast að rektor skólans og eiga rætur að rekja rúm 170 ár aftur í tímann.
Latínukennsla við MR hefur verið til umræðu vegna fyrirhugaðra breytinga og sagði rektor skólans meðal annars að nemandur hafi kvartað yfir að fagið sé þungt. „Það er mörgþúsundalda gamalt fyrirbæri að nemendur kvarti undan of miklu álagi en nemendur í MR eiga það sameiginlegt, allavega eftir á að hyggja, að þeir sem útskrifast úr MR eru þakklátir fyrir kröfurnar sem voru gerðar,“ segir Sigurður Ingvarsson, leikari og fyrrverandi nemandi MR. Sigurður hikar ekki þegar hann er spurður hvað það þýði ef latínukennsla leggst af í MR. „Þá er bara búið að skemma MR.“ „Fyrstu menntastofnanir hérna á Íslandi, Skálholt og Bessastaðaskóli sem MR á rætur sínar að rekja til, þar gekk námið fyrst og fremst út á latínu, forngrísku og hebresku, þessi fornmál. Svo voru hin fræðin bara byggð ofan á það. Fyrst latína, svo allt hitt.“ Sigurður Ingvarsson er fyrrverandi nemandi Menntaskólans í Reykjavík og leikstýrir Herranótt skólans um þessar mundir.Vísir/Bjarni Latínan sé grundvöllur menntunar hér á landi og hafi nýst honum vel í framhaldsnámi. „Ég get sagt það að ég fékk svo gífurlega djúpstæða þekkingu á allri heimspeki, listum og menningararfleifð okkar Evrópubúa. Við vorum að lesa Forngrikkina hérna í MR,“ bætir Sigurður við en hann er menntaður leikari. Margvísleg nytsemi latínunnar Núverandi nemendur er á sama máli um nytsemi latínunnar. „Ég finn það á eigin skinni að latínan hjálpar mér mjög mikið að læra ný tungumál eins og frönsku og þýsku,“ segir Lára Kristín Ragnarsdóttir nemandi á fornmálabraut. Lára Kristín Ragnarsdóttir nemi á fornmálabraut.Vísir/Bjarni Stalla hennar Embla Hlökk Jóhannesdóttir, nemandi 4. A, segir breytingarnar ekki hafa áhrif á sig persónulega heldur þá sem á eftir koma. Næstu kynslóðir fái ekki sömu tækifæri. „Mér finnst það mjög ósanngjarnt fyrir þau sem að vilja geta lært latínu. Latína hjálpar í læknisfræði, hugvísindum, raunvísindum og öllu þessu sem kemur að samfélagi og bara í svo ótrúlega mörgu,“ bætir Embla við og segir að hún væri ekki komin jafn langt í sínu spænskunámi ef ekki væri fyrir latínuna. Embla Hlökk Jóhannesdóttir nemi í MRVísir/Bjarni Lára segir að nemendum á fornmálabraut finnist leiðinlegt að umræðan í garð latínunnar sé ekki nógu jákvæð. „Ef við þekkjum ekki söguna okkar og hvaðan við komum, þá er það svolítið alvarlegt ef það stendur ekki til boða lengur að læra þessi fornmál.“ Hún segir að ef skorið sé af latínunáminu í MR fái nemendur ekki grundvallarþekkinguna sem felist meðal annars í lestri fornrita. „Ef við erum ekki að lesa fornrit þá er stúdentsprófið úr latínu bara ekkert almennilegt stúdentspróf í latínu.“ Sárnaði áhugaleysið Fyrrverandi nemendur MR hafa gagnrýnt fyrirhugaðar breytingar og segja að með þeim muni fornmálabraut skólans leggjast af. Blésu þeir meðal annars til nýs pereats í anda pereatsins svokallaða árið 1850 sem beindist gegn Sveinbirni Egilssyni sem þá var rektor MR. Þá vildu nemendur fá að drekka áfengi en nú koma í veg fyrir að latínukennsla skerðist. Pereatið beinist nú gegn Sólveigu Hannesdóttur rektor MR og meðal annars var hengdur upp borði við inngang skólans með hennar nafni. „Manni sárnaði smá að heyra að það er svona lítill áhugi fyrir þessari vitneskju hjá menntamálayfirvöldum vegna þess að kannski þykir þetta ekki nógu hagnýtt til þess að fara og læra verkfræði eða læknisfræði eða eitthvað svoleiðis,“ segir Sigurður en hann leikstýrir Herranótt hjá MR þessa dagana. „Fyrir mér er þetta svo, sjálfsagður hlutur. Þetta er grundvallaratriði í okkar kennslu, okkar háttum og siðum og mér finnst þetta bara afskaplega mikilvægt.“ Lára vill senda skilaboð til samfélagsins að lokum. „Ég vil hvetja fólk til að fræða sig um hvað fornmálabrautin er nytsamleg og fullt af flottu fólki sem hefur verið á fornmálabraut og hefur verið samfélaginu til mikils gagns.“
Skóla- og menntamál Framhaldsskólar Reykjavík Börn og uppeldi Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Fleiri fréttir Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Sjá meira