Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. mars 2026 07:35 Björg Magnúsdóttir og Hildur Björnsdóttir voru báðar formenn SHÍ. Samsett/Lýður Valberg/Ívar Fannar Komandi sveitarstjórnarkosningar eru ekki þær fyrstu þar sem Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, koma til með að takast á um bílastæði. Báðar sinntu þær formannsstörfum í stúdentapólitíkinni.
Árið 2008 varð Björg formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands fyrir hönd Röskvu en ári síðar tók Hildur við formennskunni fyrir hönd Vöku. „Við höfum tekist á í mörg ár en erum alltaf í miklu bróðerni og fagmennsku. Við eigum marga sameiginlega vini þótt við séum ekki alltaf sammála um allt,“ segir Björg í samtali við blaðamann. Ef litið er á lista yfir fyrrverandi formenn stúdentaráðsins má sjá nokkur kunnuleg nöfn. Þar á meðal eru María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, og Jóhann Hafstein, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins. „Ég var formaður og svo rústaði hún kosningunum þegar hún tekur við,“ segir Björg. „Ég vil meina að þá var ég ekki í framboði lengur, það er að segja það var ekki verið að kjósa um mig versus hana,“ bætir hún við. Hún minnist þess að helsta deilumál þeirra hafi verið millistykki og bílastæði. „Við munum nú ræða bílastæðin áfram, vonandi ekki millistykki. Bílastæðin eru örugglega það mál sem sameinar okkur hvað mest.“ Reynslan komi sér vel í dag Það hafi verið afar góð reynsla að taka þátt í stúdentapólitíkinni, en viðurkennir Björg að hún hafi ákveðið fyrst að ganga til liðs við stúdentapólitíkina til að komast inn í félagslífið. „Mér fannst hallærislegt að þetta væri „uppeldisstöff“ heldur fór ég þarna inn því það voru svo góð partý,“ segir hún og hlær. „Svo sem ég hafði ég mikinn áhuga á þessu. Nú er maður í kosningabaráttu og þá þekkir maður handtökin.“ Björg rifjar einnig upp fyrstu kynni hennar af Hildi þegar þær tókust á í ræðukeppni innan Verzlunarskólans. „Gott ef við tókumst ekki á í ræðukeppni innan skólans, ég var í ræðuliði og hún í öðru. Þræðirnir liggja langt aftur.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Háskólar Hagsmunir stúdenta Borgarstjórn Bílastæði Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Sjö ára dómur Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Sjá meira