Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2026 14:01 Luke Donald með Ryder-bikarinn sem hann hefur nú unnið tvö ár í röð sem fyrirliði evrópska úrvalsliðsins. Getty/Mateo Villalba Englendingurinn Luke Donald verður fyrirliði evrópska Ryder-liðsins í golfi í þriðja sinn þegar Ryder-bikarinn fer næst fram á Adare Manor-golfvellinum á Írlandi í september 2027.
Ryder-bikarinn er golfkeppni karla sem haldin er annað hvert ár milli úrvalsliða frá Evrópu og Bandaríkjunum. Keppnisstaðirnir eru til skiptis í Evrópu og Bandaríkjunum. Evrópa hefur unnið undanfarin tvö ár og í sex skipti af síðustu átta. Staðan frá upphafi er 27-16 fyrir Bandaríkin en tvisvar hefur jafntefli verið niðurstaðan. Nú þegar Donald hefur verið staðfestur sem leiðtogi evrópska liðsins þykir líklegt að það muni auka þrýstinginn á bandaríska PGA-sambandið að fá Tiger Woods til að leiða bandaríska liðið á móti Evrópuliðinu. Woods, sem er fyrsti kostur til að taka við af Keegan Bradley, hefur verið óljós í svörum um stöðu sína sem fyrirliði. Fréttirnar af Donald munu auka tilfinningu Evrópu fyrir samfellu og samheldni á meðan óvissa ríkir um bandaríska liðið. Donald hefur hlotið mikið lof fyrir nálgun sína í Róm og New York, þar sem Evrópa vann Ryder-bikarinn tvisvar í röð. Eftir dramatískan sigur á Bethpage-golfvellinum í Bandaríkjunum á síðasta ári var ljóst að leikmenn vildu að Englendingurinn héldi áfram í embætti. Donald hefur þegar jafnað Tony Jacklin sem eini evrópski fyrirliðinn til að vinna bikarinn tvisvar í röð. Nú mun hann reyna að skrá sig á spjöld sögunnar með því að verða sá fyrsti til að sigra þrisvar í röð. View this post on Instagram A post shared by Guardian Sport (@guardian_sport)
Ryder-bikarinn Golf Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Alla vikuna höfum við verið afskrifuð af ykkur fjölmiðlum“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Á förum frá Haas og mögulega frá Formúlu 1 Formúla 1 Fleiri fréttir Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira