Seltjarnarnes getur orðið framúrskarandi bæjarfélag! Áslaug Eva Björnsdóttir skrifar 6. mars 2026 07:33 Á Seltjarnarnesi er einstakt samfélag. Hér býr allskonar fólk sem sækir vinnu og þjónustu víða um höfuðborgarsvæðið. Við erum tiltölulega lítið bæjarfélag, boðleiðir eru stuttar, sjálfsímyndin sterk og möguleikarnir miklir. Mér finnst við fjölskyldan heppin að fá að vera hluti af samfélaginu hér á Nesinu. Ég er alin upp úti á landi á Akureyri og Dalvík og flutti svo til Geilo, smábæjar í Noregi og sé ákveðna samlegð með Seltjarnarnesi og smærri sveitarfélögum á landsbyggðinni. Seltjarnarnes er smá “ut pa landet”, það er stutt í náttúruna og sjóinn og maður þarf ekki að ganga lengi um til að hitta einhvern sem maður þekkir. Seltjarnarnes er frábært og hefur alla burði til þess að verða framúrskarandi bæjarfélag. Það snýst ekki bara um stærðarhagkvæmni eða fjárhag bæjarins, sem því miður stendur illa, það snýst um menningu og metnað fyrir því að koma að raunverulegum breytingum til hins betra. Af hverju að sætta sig við að vera gott bæjarfélag þegar tækifærin til að skara fram úr blasa við! Framúrskarandi þjónusta – ekki bara lágmarksþjónusta Í litlu bæjarfélagi eigum við að geta boðið upp á persónulega og sveigjanlega þjónustu. Foreldrar eiga að finna að hlustað sé á þá og þarfir barna þeirra virtar eftir fremsta megni. Eldri borgarar eiga að upplifa virðingu og raunverulegt aðgengi að þjónustu. Íbúar eiga að vita hvert þeir snúa sér og fá svör. Framúrskarandi bæjarfélag mælir ánægju, bregst hratt við og lærir af endurgjöf. Það lítur á gagnrýni sem tækifæri, ekki ógn. Boðleiðir eru stuttar og tækifæri til að skara fram úr í þjónustu eru fjölmörg. Mig langar að búa í bæjarfélagi með framúrskarandi þjónustu! Skýr langtímasýn sem er gagnsæ og ábyrg - ekki bara viðbragð við vandamálum Í litlu samfélagi ætti að vera einfalt að hafa rekstur gagnsæjan, það ætti í raun að vera sjálfsagt. Íbúarnir eiga að geta séð hvernig ákvarðanir eru teknar, á hvaða forsendum og hver áhrif þeirra verða. Hér eru aftur augljós sóknartækifæri. Viljum við vera leiðandi í öflugu skólasamfélagi? Í forvörnum og vellíðan? Í íþróttum? Samfélagi þar sem kynslóðir mætast? Í sjálfbærni? Í stafrænum lausnum? Í barnvænu samfélagi? Í umferðaröryggi? Í heilbrigðu rekstrarumhverfi? Framúrskarandi bæjarfélag skilgreinir skýra sýn og fylgir henni eftir með mælanlegum markmiðum. Það horfir til lengri tíma en til næstu fjögurra ára (eins kjörtímabils) og spyr: Hvernig viljum við að Seltjarnarnes líti út árið 2036? Samfélag fólks er allskonar Sterk samfélög verða ekki til af sjálfu sér, það þarf að rækta þau. Meðal annars með bæjarhátíðum, menningarviðburðum, opnum samtölum, samráði og rýmum þar sem ólíkir hópar mætast. Við eigum að nýta það að vera lítið samfélag til að tengjast betur. Að vera staður þar sem fólk þekkist, heilsast og upplifir að tilheyri. Til að skara fram úr tel ég augljóst að fólkið í bæjarfélaginu þurfi að eiga sameiginlegan samkomustað í eigu samfélagsins, þar sem umræða um bæjarmál getur blómstrað og unnt er að skipuleggja skemmtanir. Til að skara fram úr þarf Seljarnarnes að endurheimta félagsheimilið sem fyrst. Hugrekki Framúrskarandi bæjarfélag þorir að prófa, þorir að vera fyrst, þorir að endurskoða hefðir ef þær þjóna ekki lengur markmiðum. Hvort sem það snýr að skipulagsmálum, rekstri eða stafrænum lausnum. Kannski eru “Kópavogsmódelið” eða “Reykjavíkurmódelið” ekki besta leiðin í leikskólamálum, kannski er til betri lausn á fjárhagsvanda en að skerða þjónustu, kannski spörum við peninga til lengri tíma með því að lengja opnunartíma félagsmiðstöðva og styðja þannig betur við ungmenni í bænum. Við þurfum ekki að herma eftir leiðum annarra. Á Seltjarnarnesi ættum við auðveldlega að geta fundið raunhæfar lausnir sem henta okkur. Bærinn er samheldinn, boðleiðir eru stuttar, við höfum öll spilin á höndum og tilfinnig mín er sú að bæjarbúar séu til í að spila með. Ef við viljum skara fram úr snýst þetta ekki um að “þau í bæjarstjórn” græji þetta bara fyrir “okkur íbúana”. Framúrskarandi bæjarfélag verður til þegar íbúar fá alvöru tækifæri til þess að taka þátt, koma með endurgjöf og leggja sitt af mörkum. Það snýst líka um það að kjörnir fulltrúar hlusti, heyri og bregðist við af alvöru. Seltjarnarnes hefur alla burði til að vera fyrirmynd annarra sveitarfélaga. Viljum við það og erum við tilbúin að gera það sem þarf? Höfundur er móðir og íbúi á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seltjarnarnes Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun