Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir og Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifa 3. nóvember 2026 07:31 Það er auðvelt að sameinast um draumsýn á framúrskarandi menntakerfi. Við viljum öll að börnin okkar nái árangri, að kennarar séu vel menntaðir, að íslensk tunga þrífist og að hvert barn fái stuðning við hæfi í sínu námi. Mun erfiðara virðist hins vegar að tryggja að ákvarðanir stjórnvalda um fjármögnun menntunar samræmist þessum markmiðum. Í drögum að þriðju aðgerðaáætlun menntastefnu til 2030 sem nær til áranna 2027–2030, eru sett fram metnaðarfull markmið um aukin gæði kennslu, öflugra læsisstarf, fjölbreytt námsgögn, styrkingu skólasafna og bættan stuðning við nemendur. Allt er þetta tímabært og nauðsynlegt en um leið kunnuglegt þrástef. Þegar umrædd áætlun er skoðuð í samhengi við fjárhagslegar ákvarðanir stjórnvalda vakna áleitnar spurningar. Hvernig á að efla fagmennsku kennara samhliða niðurskurði til háskólanna sem óhjákvæmilega þrengir að möguleikum þeirra til að sinna kennaramenntun, rannsóknum og starfsþróun? Hvernig á að styrkja framhaldsskólastigið og draga úr brotthvarfi án þess að tryggja viðeigandi rekstrarforsendur eða aðstöðu til náms? Og hvernig á að efla læsi barna, fjölga bókum og styrkja skólasöfn ef á sama tíma er dregið úr þeim fjárhagslega stuðningi sem íslenskir höfundar njóta fyrir notkun verka sinna á bókasöfnum? Hvernig á að gera kröfur til fagmennsku kennara þegar námsgögn skortir? Hvar er samræmingin í stefnumótun stjórnvalda? Efling án efnda Ein meginstoð þriðju aðgerðaáætlunarinnar ber yfirskriftina „Kennarar í fremstu röð, aukin gæði kennslu“. Þar er meðal annars gert ráð fyrir endurskoðun hæfniramma kennara, aukinni starfsþróun, bættum gæðum kennaranáms og markvissari leiðsögn nýliða. Orðræða sem er kunnugleg en hefur hingað til tekist illa að framkvæma. Rannsóknir á kennarastarfinu hafa ítrekað sýnt að gæði kennslu ráðast ekki eingöngu af þekkingu einstakra kennara heldur einnig af þeim faglega stuðningi, samstarfi og starfsþróunartækifærum sem þeim standa til boða. Rannsóknir sýna til að mynda fram á mikilvægi samfelldrar starfsþróunar sem tengist daglegri kennslu, felur í sér virka þátttöku, samstarf, endurgjöf og eftirfylgni. En allt þetta krefst tíma, svigrúms og fjármagns. Í aðgerðaáætlunina vantar skýrari brú milli markmiða og framkvæmdar. Háskólarnir gegna lykilhlutverki í kennaramenntun, rannsóknum og þróun skólastarfs, en hvernig eiga þeir að standa undir auknum kröfum ef fjármögnun skortir? Það er ekki gerlegt að kalla eftir betri kennaramenntun án þess að tryggja að háskólarnir hafi raunhæfar forsendur til að þróa hana. Sama á við um starfsþróun kennara. Hún verður ekki að efld með því einu að setja fram hæfniramma eða fjölga námskeiðum. Ekki heldur með miðstýrðum skyndilausnum. Kennarar þurfa tíma til að læra, prófa nýjar aðferðir, vinna saman og meta áhrif þeirra á nám nemenda. Skólastjórnendur þurfa jafnframt svigrúm til að leiða þá vinnu eigi starfsþróun að vera gerleg. Er þriðja aðgerðaáætlun menntastefnu raunhæf eða draumsýnin ein? Höfundar eru grunnskólakennari og menntunarfræðingur. Álfhildur Leifsdóttir grunnskólakennari Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir menntunarfræðingur Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skóla- og menntamál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð Skoðun Skoðun Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson skrifar Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Tvöfalt álag – frjósemi á vinnustað Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi Guðmundur Ármann Pétursson skrifar Skoðun Íslensk bókhaldsgögn eiga heima innan Evrópu Jóhann Tómas Sigurðsson skrifar Skoðun Enginn á að standa einn – sérstaklega ekki fyrir jólin Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Stillum ekki íþróttum og menningu upp sem andstæðum pólum Gunnar M. Gunnarsson skrifar Skoðun Betri borg fyrir börn? Hópur fulltrúa í Ungmennaráði Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða skrifar Skoðun Allir með Willum Þór Þórsson,Jóhann Steinar Ingimundarson,Þórður Á. Hjaltested skrifar Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Börn með fjölþættan vanda – hver hugsar um framtíð þeirra? Þórdís Hulda Tómasdóttir skrifar Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn minnkar kökuna Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Traust byggist á vönduðum vinnubrögðum Ragnar Þór Reynisson,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Hagræðing fyrir hvern? Stefán Pettersson skrifar Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Hvað viltu verða þegar þú verður stór? Jónína Lovísa Kristjánsdóttir skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Skipulögð brotastarfsemi kallar á nýja hugsun Heiðrún Jónsdóttir,Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Hitaveitan er ekki aflátsbréf: Forfeðurnir voru brautryðjendur, af hverju hikum við? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Þingkosningar í Bandaríkjunum: Mun stríð Trumps í Íran harðna eftir miðkjörtímabilskosningarnar? Jun Þór Morikawa skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun