Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Oddur Ævar Gunnarsson og Þórarinn Þórarinsson skrifa 7. mars 2026 20:00 Mikill verðmunur er á þyngdarstjórnunarlyfjum á Íslandi. Michael Siluk/UCG/Getty Images Ríflega tvöfaldur verðmunur, eða allt að 140 prósenta munur, er á á dýrasta og ódýrasta þyngdarstjórnunarlyfinu hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá Lyfjastofnun mega hinsvegar ekki hvaða læknar sem er ávísa ódýrasta lyfinu auk þess sem það er skilgreint sem ávana- og fíknilyf.
Verðmuninn má sjá í nýrri lyfjaverðskrá Lyfjastofnunar. Þar kemur fram að ódýrasta þyngdarstjórnunarlyfið beri nafnið Qsiva og kostar mánaðarskammturinn af því 16.707 krónur. Wegovy og dýrasta lyfið, Saxenda, kosta aftur á móti ríflega 27 þúsund krónur annars vegar og 39.929 krónur, hins vegar. Um 23 þúsund krónum munar á mánaðarskömmtum Qsiva og Saxenda, eða um 280 þúsund á ári. Um ólík lyf að ræða Qsiva er í töflum og er ein tafla tekin á dag. Wegovy og Saxenda eru hins vegar stungulyf í lyfjapenna og er því fyrrnefnda sprautað undir húð einu sinni í viku en því síðarnefnda daglega. Þau þyngdarstjórnunarlyf sem eru með markaðsleyfi hér á landi eru Wegovy, Qsiva og Saxenda. Ozempik og Rybelsus heyra samkvæmt skilgreiningu Sjúkratrygginga hins vegar ekki undir flokk þyngdarstjórnunarlyfja, þar sem þau eru almennt notuð við sykursýki. Í svari Lyfjastofnunar við fyrirspurn Vísis segir að ákvarðanir um verð séu teknar af Lyfjastofnun en til grundvallar þem liggi verðumsókn frá markaðsleyfishafa/umboðsaðila lyfsins, með rökstuðningi fyrir umbeðnu hámarksverði svo og verð lyfsins í viðmiðunarlöndum Íslands. „Í þessu tilfelli er um að ræða ólík lyf sem þó eru öll notuð til þyngdarstjórnunar, t.a.m. inniheldur ekkert þeirra þriggja sem um er rætt sama virka efnið. - Saxenda og Wegovy innihalda þó bæði virkt efni í flokki GLP-1 lyfja, lyfja sem bindast GLP-1 viðtaka sem hefur hlutverk í stjórn matarlystar og fæðuinntöku. - Qsiva inniheldur fentermín sem hemur matarlyst með losun norepinefríns í undirstúku heilans, auk tópíramats sem hefur hefur margþætt áhrif, m.a. á hreyfingu meltingarfæra, orkuhleðslu og breytingu á fituumbroti.“ Ekki sömu kröfur og skilyrði Þá segir í svari Lyfjastofnunar að kröfur og skilyrði sem fylgi lyfjunum séu ekki eins. Allir læknar megi ávísa Wegovy og Saxenda. „En Qsiva er bundið ávísun sérfræðilæknis og er ávana- og fíknilyf auk þess að mikilvægt öryggis- og fræðsluefni fylgir notkun þess fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem og sjúklinga.Hafa má í huga að verð eða kostnaður lyfsins segir ekki alltaf alla söguna um meðferðarkostnað því sumum lyfjameðferðum fylgir eftirlit hjá læknum sem getur reynst kostnaðarsamt.“ Þannig sé erfitt sé að bera saman verð þessara lyfja þó þau séu öll ætluð til þyngdarstjórnunar. Þá lætur Lyfjastofnun samantekt úr lyfjaverðskrá fylgja svari sínu. 370 milljónir niðurgreiddar á ári Wegovy er langmest notað hér á landi en ætla má að um fimm prósent þjóðarinnar noti lyfið. Þegar Qsiva kom á markað í Evrópu kostaði mánaðarskammturinn rúmar 33 þúsund krónur. Samkvæmt uppfærðri lyfjaskrá hefur lyfið hins vegar lækkað um rúmlega helming í verði. Morgunblaðið upplýsti nýlega að á síðasta ári hafi 16.692 Íslendingar notað efnaskiptalyf á borð við Qsiva, Wegovy og Saxenda til þyngdarstjórnunar og greitt fyrir þau samtals tæplega þrjá og hálfan milljarð króna, eða yfir 200.000 krónur á hvern og einn. Af þeim 16.692 einstaklingum sem eru á lyfjunum njóta 1.358 manns greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga, sem niðurgreiða lyfin fyrir um 370 milljónir króna árlega. Flest greiða lyfin úr eigin vasa Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir þyngdarstjórnunarlyfjum á Íslandi undanfarin ár. Árið 2019 var tæplega 1.700 einstaklingum ávísað lyfjum af þessu tagi með greiðsluþátttöku Sjúkratrygginga. Árið 2023 fengu um átta þúsund manns ávísað slíkum lyfjum með niðurgreiðslu og um fjögur þúsund til viðbótar tóku lyfin án þess að uppfylla skilyrði um greiðsluþátttöku. Síðan þá hafa reglur um niðurgreiðslu verið hertar verulega og nú greiða um 94 prósent sjúklinga lyfin úr eigin vasa.
Lyf Þyngdarstjórnunarlyf Neytendur Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Sjá meira