Körfubolti

„Stigin fyrir sigurinn það mikil­vægasta“

Árni Jóhannsson skrifar
Dwayne Lautier-Ogunleye átti stórleik gegn Ármanni.
Dwayne Lautier-Ogunleye átti stórleik gegn Ármanni. Vísir/Anton

Dwayne Lautier-Ogunleye átti stórleik þegar Njarðvíkingar unnu flottan 17 stiga sigur á Ármanni í 19. umferð Bónus deildar karla en leikar enduðu 87-104. Dwayne skoraði 50 stig og Ármenningar réðu ekkert við kappann.

Hann vildi samt ekki taka of hrós fyrir sjálfan sig þegar hann talaði við blaðamann eftir leikinn. Það skal líka tekið fram að á tölfræðivef KKÍ er Dwayne skráður fyrir 48 stigum en skýrslan sem tekin var á ritaraborðinu telur 50 stig. Undirritaður fylgdist með Njarðvíkingum fara yfir skýrsluna til að telja stigin hjá honum og hún taldi 50 stig.

„Það eru stigin tvö fyrir sigurinn sem eru mikilvægust í þessu. Við skiljum að við þurfum að vinna þessa leiki, það eru þrír leikir þangað til að úrslitakeppnin byrjar og við erum að berjast fyrir því að komast þangað. Svo þegar við erum komnir þangað þá getum við gert hvað sem er.“

Dwayne var beðinn um að tala aðeins um sinn eigin leik og hvað hafi gengið vel fyrir hann sjálfan. 

„Mínir menn fundu mig bara með auðveldum og þegar ég sá að nokkur skot fóru ofan í þá leið mér bara eins og þetta gæti orðið minn dagur. Við höfðum tíma til að jafna okkur líkamlega og andlega í landsleikjahléinu og verðum að vinna flesta leiki til að komast í úrslitakeppnina.“

Fannst Dwayne eins og að Ármann ætti engin svör við leik hans.  

„Það er aldrei þannig. Öll liðin í deildinni eru hættuleg og þeir reyndu ýmsa hluti til að stoppa mig. Þjálfarinn kom til mín fyrir leik og bað mig um að vera árásargjarnan því þeir gætu ekki stoppað mig. Þetta gekk vel í dag og liðsfélagar mínir fundu mig vel.“

Það hlýtur að vera fargi létt af leikmönnum Njarðvíkinga að ná í þennan sigur þar sem þeir voru að vinna lið sem er fyrir neðan Njarðvíkinga og sigurinn lyftir þeim líka í áttunda sætið.

„Þetta er flott. Verkinu er ekki lokið. Við eigum þrjá leiki sem við þurfum að vinna.“

Hvað gerði Njarðvík rétt til að komast yfir línuna í dag?

„Við spiluðum vel saman og spiluðum af hörku. Við tókum fráköst og spiluðum góða vörn ásamt því að gera færri mistök en í fyrri leikjum. Þegar við náum að láta hlutina ganga upp fyrir okkur þá er erfitt að vinna okkur.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×