Bíll hafnaði í Kópavogstjörn Freyja Þórisdóttir skrifar 8. mars 2026 23:03 Kópavogslækur rennur í Kópavogstjörn sem er rétt við voginn. Vísir/Einar Fólksbíll rann í hálku og endaði í Kópavogstjörn á ellefta tímanum. Tvö önnur umferðarslys urðu vegna launhálku á Reykjanesbraut. Enginn er alvarlega slasaður.
Þetta kemur fram í samtali blaðamanns Vísis við Davíð Friðjónsson hjá slökkviliðinu. Hann segir þau hjá slökkviliðinu hafa þurft að sinna þremur útköllum vegna hálku síðasta hálftímann og biðlar til fólks að fara varlega. Bíllinn sem lenti í Kópavogstjörn verður dreginn þaðan upp úr í kvöld af krókbíl, segir Davíð. Einn farþegi hafi verið í bílnum en hann hafi fengið skoðun hjá starfsfólki sjúkrabíls sem taldi hann ekki hafa hlotið skaða af. „Ég heyrði stóran skell og svo labbaði ég út og kíkti. Það var bara bíll í tjörninni hjá öndunum okkar,“ segir Jón Pétur Guðbjörnsson en hann er íbúi við tjörnina. „Það var bara bílstjórahurðin sem var svo opnuð, þannig að hann virðist hafa verið einn í bílnum. Ég sá hann svo bara setjast upp í sjúkrabílinn,“ bætir Jón Pétur við. Kópavogstjörnin er einnig kölluð andapollurinn af þeim sem búa í hverfinu en nokkurra metra grasblettur liggur á milli bílastæðisins sem er við norðurenda tjarnarinnar og bakkans. „Þú þarft að keyra þarna yfir svona stóran hrygg, hann hefur bara runnið til í hálkunni og flogið þarna yfir, beint ofan í pollinn,“ segir Jón Pétur. Annað slysanna á Reykjanesbraut varð við Stekkjarbakka en óljóst er hvar hitt slysið varð. Í báðum tilvikum runnu bílar út af vegi vegna hálku en annar bíllinn hafnaði á ljósastaur. Davíð segir engann hafa slasast alvarlega en minnháttar meiðsl hafi líklega orðið og hafi sjúkrabílar verið sendir á vettvang.
Kópavogur Samgönguslys Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira