Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 07:32 Sumar af færslum Grok fjölluðu með hryllilegum hætti um andlát Diogo Jota sem lést ásamt bróður sínum í bílslysi í fyrra. Getty/Robbie Jay Barratt Bresk stjórnvöld segja það bæði hryllilegt og algjörlega óábyrgt hvernig samfélagsmiðillinn X hefur leyft gervigreindartóli sínu, Grok, að fjalla með viðbjóðslegum hætti um Hillsborough og Heysel-slysin, dauða Diogo Jota og München-slysið.
Liverpool og Manchester United hafa bæði kvartað til X, sem áður hét Twitter, vegna færslna frá Grok sem tengjast fyrrgreindum hörmungum í sögu félaganna. Grok hefur þannig til að mynda haldið fram lygum um að Hillsborough-slysið árið 1989, þar sem 97 stuðningsmenn létust, hafi verið sök Liverpool-stuðningsmanna og notað niðrandi orð um borgina. Eins hafi verið talað um Münich-flugslysið 1958, þegar 23 manns létust og þar af 8 leikmenn Manchester United, með hryllilegum hætti. Um er að ræða færslur þar sem notendur X hafa beðið gervigreindartólið Grok um að lýsa þessum atburðum með grófum og dónalegum hætti, og halda ekkert aftur af sér. Sumar af færslunum hafa nú verið fjarlægðar og Grok útskýrt fyrir notendum að tólið geri það sem notendur biðji um án þess að beita neinni ritskoðun. Ólöglegt að spjallmenni dreifi hatursfullu efni Í yfirlýsingu frá ráðuneyti vísinda, tækni og frumkvöðlastarfsemi segir: „Þessar færslur eru ógeðslegar og ábyrgðarlausar. Þær ganga gegn breskum gildum og velsæmi. Gervigreindarþjónustur, þar á meðal spjallmenni sem gera notendum kleift að deila efni, falla undir lög um öryggi á netinu og verða að koma í veg fyrir ólöglegt efni, þar á meðal hatursfullt og móðgandi efni í þjónustu sinni. Við munum halda áfram að bregðast af festu við þar sem talið er að gervigreindarþjónustur geri ekki nóg til að tryggja örugga upplifun notenda.“ Málið kemur upp tveimur mánuðum eftir að bresk stjórnvöld hótuðu að banna X vegna þess að Grok var nýtt til þess að birta klámfengnar myndir af konum þar sem gervigreindartólið hafði fjarlægt föt þeirra.
Enski boltinn X (Twitter) Liverpool FC Manchester United Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Sjá meira