Sport

Emin enn ó­sigraður á sínum atvinnumannaferli

Aron Guðmundsson skrifar
Emin hefur farið afar vel af stað á sínum atvinnumannaferli og er enn ósigraður.
Emin hefur farið afar vel af stað á sínum atvinnumannaferli og er enn ósigraður. Mynd: Photolies.com 

Íslenski atvinnumaðurinn í hnefaleikum, Emin Kadri Eminsson, er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli eftir sigur gegn Lettanum Aigars Zenuks á laugardaginn síðastliðinn.  

Þetta var þriðji bardagi Emins á atvinnumannaferlinum og jafnframt þriðji sigur hans en bardagi helgarinnar var hans fyrsti á bardagakvöldi í Evrópu. 

Í samtali við MMA fréttir sagði Emin nálgun sín í bardaganum hafa verið skynsöm en ár hafði liðið frá hans síðasta bardaga.

Emin tók ekki áhættur en hélt stjórn í öllum lotunum og vann bardagann á dómaraúrskurði. 

Næsti bardagi Emins er hér heima á Íslandi í Gamla Bíói þann 10.apríl næstkomandi.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×