Sport

Arna sú fyrsta í sögunni en endaði neðst

Sindri Sverrisson skrifar
Arna Sigríður Albertsdóttir á æfingu í Val di Fiemme fyrir keppnina í dag.
Arna Sigríður Albertsdóttir á æfingu í Val di Fiemme fyrir keppnina í dag. Getty/Luke Hales

Arna Sigríður Albertsdóttir skráði sig í sögubækurnar í dag á Ítalíu með því að verða fyrst Íslendinga til að hafa keppt á bæði Vetrar- og Sumarólympíumóti fatlaðra.

Arna Sigríður keppti í hjólreiðum í Tókýó 2021 en keppti í dag á skíðum, í sitjandi sprettgöngu, í Val di Fiemme.

Það er ekki langt síðan að Arna fór að æfa skíðagöngu og varð hún að sætta sig við 19. og neðsta sæti í dag en hún skíðaði á 3:38,98 mínútum. 

Tólf fyrstu keppendurnir í undankeppninni komust áfram og varð hin norska Indira Liseth tólfta á 2:50,75




Fleiri fréttir

Sjá meira


×