Þrettán foreldrar á tíu árum Vigdís Gunnarsdóttir skrifar 10. mars 2026 13:00 Þegar stuðningur við foreldra bregst endar kostnaðurinn í örorkukerfinu Í ritstjórnargrein í Læknablaðinu nýverið er bent á þróun sem ætti að vekja alvarlegar spurningar um stöðu velferðarkerfisins á Íslandi. Þar kemur fram að hlutfall fólks á örorku- eða endurhæfingarlífeyri hefur hækkað verulega á síðustu áratugum. Á sama tíma hefur eðli örorku breyst og geðraskanir, streita og kulnun orðið sífellt stærri hluti þeirra vottorða sem liggja að baki. Þegar þessi þróun er rædd beinist umræðan oft að hvötum í kerfinu eða breytingum á vinnumarkaði. Mun sjaldnar er hins vegar horft á hvernig velferðarkerfið sjálft bregst fjölskyldum sem standa frammi fyrir mikilli umönnunarbyrði. Biðlistar og umönnunarbyrðin Á undanförnum árum hefur ítrekað verið bent á stöðu barna með miklar stuðningsþarfir og fjölskyldna þeirra. Biðlistar eftir greiningu og þjónustu eru langir og fjölskyldur lenda oft í því að bíða árum saman eftir úrræðum sem geta skipt sköpum fyrir þroska og lífsgæði barnsins. Á meðan þjónustan lætur á sér standa færist ábyrgðin einfaldlega yfir á foreldra. Þegar barn fær ekki þá þjónustu sem það þarf neyðast foreldrar oft til að draga úr vinnu eða hverfa tímabundið af vinnumarkaði. Álagið sem fylgir því að sinna mikilli umönnun á sama tíma og barist er við flókið stjórnsýslukerfi getur verið gríðarlegt. Jafnvel þegar barn hefur vistun í leikskóla eða skóla er raunveruleikinn oft annar en stjórnsýslan gerir ráð fyrir. Umönnun barns með miklar stuðningsþarfir endar ekki þegar skóladeginum lýkur. Foreldrar standa oft frammi fyrir svefnlausum nóttum, stöðugum undirbúningi, skipulagningu meðferða og þjónustu og óteljandi samskiptum við kerfið til að tryggja barninu þann stuðning sem það þarf. Lög sem virðast ekki ná tilgangi sínum Í þessu samhengi er áhugavert að horfa til laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006. Lögin voru sett með það að markmiði að tryggja foreldrum fjárhagslegan stuðning þegar umönnun barns gerir þeim ókleift að stunda vinnu eða nám. Upplýsingar um framkvæmd laganna vekja þó spurningar um hvort þau séu að ná tilgangi sínum. Í svari félags- og húsnæðismálaráðherra við skriflegri fyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur á Alþingi, sem birt er í þingskjali 732 á 157. löggjafarþingi, kemur fram að alls hafi 201 einstaklingur fengið greiðslur samkvæmt lögunum á árunum 2016–2025. Á sama tímabili var 144 umsóknum synjað. Þegar litið er sérstaklega til foreldra barna með einhverfu vekja tölurnar enn meiri athygli. Í lögunum er sérstaklega tekið fram að alvarleg eða veruleg einhverfa geti fallið undir þau fötlunarstig sem veita rétt til greiðslna. Þrátt fyrir það kemur fram í svari ráðherra að á árunum 2016–2025 hafi aðeins 13 einstaklingar fengið greiðslur sem tengdust ICD-10 greiningunni F84.0, bernskueinhverfu. Þegar þessi tala er sett í samhengi við raunveruleikann verður hún sláandi. Talið er að um 1–2% barna séu einhverf. Það þýðir að á Íslandi eru líklega þúsundir einhverfra barna og mörg þeirra þurfa verulegan stuðning og umönnun frá foreldrum sínum. Ef aðeins 13 foreldrar á tæpum áratug hafa fengið greiðslur samkvæmt lögum sem eiga að styðja foreldra alvarlega fatlaðra barna vakna eðlilega spurningar um framkvæmd kerfisins. Ein skýring sem hefur komið fram í framkvæmd er túlkun á skilyrði laganna um að vistunarþjónustu á vegum opinberra aðila verði ekki við komið. Í sumum tilvikum hefur það verið túlkað með þeim hætti að ef barn er í leikskóla eða skóla teljist vistunarþjónusta vera fyrir hendi og því ekki grundvöllur fyrir greiðslum. Slík túlkun hefur þó verið gagnrýnd. Umboðsmaður Alþingis hefur bent á að meta þurfi aðstæður fjölskyldna heildstætt og skoða hvort sú vistunarþjónusta sem er í boði geri foreldri í raun kleift að vera virkt á vinnumarkaði. Forgangsröðun í velferðarkerfinu Þegar kerfið virkar ekki sem skyldi færist vandinn einfaldlega annað. Foreldrar sem bera mikla umönnunarbyrði sitja eftir án stuðnings, á meðan biðlistar eftir þjónustu lengjast og stjórnsýslan verður sífellt flóknari. Þá vaknar stærri spurning sem snýr að forgangsröðun í velferðarkerfinu. Ef stjórnvöld hafa áhyggjur af aukinni örorku, eins og bent er á í Læknablaðinu, væri þá ekki eðlilegt að leggja meiri áherslu á að koma í veg fyrir hana? Þegar foreldrar neyðast til að draga úr vinnu eða hætta vegna skorts á þjónustu og stuðningi er hætt við að álagið safnist upp með þeim afleiðingum að heilsan bresti og starfsgeta minnki. Í stað þess að grípa fjölskyldur snemma virðist kerfið því oft bregðast seint. Spurningin sem blasir við er því þessi: Er samfélagið að fjárfesta í því að koma í veg fyrir örorku eða hefur kerfið einfaldlega sætt sig við að greiða hana síðar? Þegar stuðningur við fjölskyldur með mikla umönnunarbyrði bregst getur kostnaðurinn orðið mun meiri til lengri tíma. Þá er hætt við að vandinn sem hefði mátt leysa snemma endi annars staðar í kerfinu, þar á meðal í örorkukerfinu sjálfu. Höfundur er móðir einhverfs barns og stjórnarmaður í Einhverfusamtökunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Einhverfa Heilbrigðismál Mest lesið Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Halldór 30.5.2026 Halldór Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Að byggja brú til þeirra sem bíða Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Gerviskoðanakönnun — eða 9,44 prósent? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Enginn lærir í afneitun Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hverju getur aukið sjálfstraust og sérþekking skilað komandi kynslóðum? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar