Golf

„Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gary Woodland sést hér að keppa á PGA-mótaröðinni.
Gary Woodland sést hér að keppa á PGA-mótaröðinni. Getty/ Mike Ehrmann

Bandaríski atvinnukylfingurinn Gary Woodland hefur opinberað glímu sína við áfallastreituröskun.

Woodland sagði frá því að hann hafi glímt við áfallastreituröskun í kjölfar heilaaðgerðar sem hann gekkst undir árið 2023. Í tilfinningaþrungnu viðtali við Golf Channel sagðist hann „ekki geta eytt orku“ í að fela það lengur og því ákveðið að ræða ástandið á sér í viðtalinu.

Hinn 41 árs gamli Woodland er þekktur kylfingur en hann vann Opna bandaríska meistaramótið árið 2019. Hann gekkst undir aðgerðina í september 2023 eftir að rannsóknir nokkrum mánuðum áður sýndu æxli sem þrýsti á heila hans.

Þrátt fyrir að flogaköstin hafi hætt eftir aðgerðina og hann hafi að lokum snúið aftur á PGA-mótaröðina í byrjun árs 2024 sagðist hann enn glíma við einkenni og var að lokum greindur með áfallastreituröskun fyrir um ári síðan.

„Í hverri viku kem ég hingað og allir eru svo spenntir og ánægðir með að ég sé kominn aftur. Ég heyri það í hverri viku: ‚Það er svo gott að sjá að þú ert búinn að sigrast á þessu. Það er svo gott að sjá þig hundrað prósent heilan,“ sagði Woodland þegar Golf Channel spurði hann hvers vegna hann hefði núna greint opinberlega frá greiningunni.

Líður eins og ég lifi í lygi

„Ég kann að meta þennan kærleika og stuðning, en innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja. Mér líður eins og ég lifi í lygi og ég vil ekki eyða orku í það lengur. Ég vil einbeita orku minni að mér og bata mínum, draumum mínum hér úti, fjölskyldu minni. Ég vil ekki eyða orku í að fela þetta,“ sagði Woodland.

Woodland rifjaði upp þegar hann spilaði á Procore-meistaramótinu síðasta haust, móti sem flestir bandarísku kylfingarnir notuðu til að undirbúa sig fyrir Ryder-bikarinn, þar sem hann var aðstoðarfyrirliði. Woodland sagði að á öðrum hringnum hefði stigavörðurinn í hópnum hans komið of nálægt honum aftan frá, sem hefði hrætt hann.

Byrjaði að hágráta á miðri brautinni

„Ég steig til hliðar, kallaði á kylfuberann minn og sagði: ‚Þetta er að hafa áhrif á mig, maður. Þú mátt ekki leyfa neinum að koma fyrir aftan mig,“ sagði hann við Golf Channel. „Næst þegar ég vissi af mundi ég ekki hvað ég var að gera. Sjónin mín byrjaði að verða óskýr. Og holu síðar sagði ég bara: ‚Butch, ég ræð ekki við þetta.‘ Og ég byrjaði að hágráta á miðri brautinni. Það var komið að mér að slá og ég gat ekki slegið,“ sagði Woodland.

Woodland tókst að halda áfram að spila. Kylfuberinn hans gaf honum sólgleraugu til að reyna að fela það. Hann fór inn á salerni til að gráta og um leið og hringnum lauk fór hann beint í bílinn sinn og fór.

Vil ekki lifa þannig lengur

„Það eru dagar þar sem þetta er erfitt,“ sagði hann, en röddin hans titraði oft í viðtalinu við Golf Channel. „Að gráta í stigaskráningarskúrnum. Hlaupa í bílinn minn til að fela það af því að ég er hræddur. Ég vil ekki lifa þannig lengur. Ef ég finn fyrir einhverju, vil ég láta það út, sleppa því,“ sagði Woodland.

Woodland, sem sigraði á Opna bandaríska meistaramótinu árið 2019, hrósaði PGA-mótaröðinni fyrir þá hjálp sem hún hefur veitt, þar á meðal verklagsreglur til að tryggja öryggi hans og auka öryggisgæslu með honum þegar hann spilar. Hinn 41 árs gamli kylfingur hefur haldið fullri dagskrá og er meðal keppenda á The Players Championship í þessari viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×