Mögnuð byrjun á úrslitaeinvíginu: „Endurkoma sem sést yfirleitt í ævintýramyndum“ Aron Guðmundsson skrifar 11. mars 2026 14:47 Ótrúleg endurkoma SR gegn SA í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu. Mynd: SR Íshokkílið Skautafélags Reykjavíkur vann magnaðan endurkomusigur á Skautafélagi Akureyrar í framlengdum leik þegar að liðin mættust í fyrsta leik sínum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí. Lokatölur urðu 6-5 SR í vil.
Það var á brattann að sækja fyrir heimamenn í leik gærkvöldsins því gestirnir frá Akureyri byrjuðu leikinn mun betur og voru komnir 3-0 yfir þegar að fyrsti leikhlutinn rann sitt skeið. Hvort lið fyrir sig skoraði eitt mark í öðrum leikhluta og því stóðu leikar 4-1 SA í vil þegar haldið var inn í þriðja og síðasta leikhlutann. SA náði þar snemma inn fimmta marki sínu og leiddu með fjórum mörkum þegar um níu mínútur eftir lifðu leiks. Þá hófst ótrúleg endurkoma heimamanna. SR náði snemma eftir fimmta mark SA sínu öðru marki í leiknum, svo því þriðja og fjórða. Þegar að um fimm mínútur eftir lifðu leiks skyldi aðeins eitt mark liðin að. 5-4. Milos, þjálfari SR, ákvað að taka leikhlé þegar að um tvær mínútur voru eftir, tók markmann sinn út af og setti inn sóknarmann. SR-ingar héldu í stórsókn og náðu inn jöfnunarmarki og stóðu leikar jafnir 5-5 þegar að leiktíminn rann sitt skeið. Því þurfti að grípa til framlengingar. Mómentið með SR og í framlengingunni skoraði Axel Oronga gullmark sem tryggði liðinu magnaðan endurkomusigur 6-5. „Endurkoma sem sést yfirleitt í ævintýramyndum frekar en raunveruleikanum,“ segir í frásögn SR-inga í færslu á samfélagsmiðlum um leikinn. SR leiðir úrslitaeinvígið 1-0 fyrir næsta leik liðanna á Akureyri á fimmtudaginn kemur.
Skautaíþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira