Innherji

Spá því að peninga­stefnu­nefnd verði „nauð­beygð“ til að hækka vexti

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri. Önnur vaxtaákvörðun ársins verður tilkynnt miðvikudaginn 18. mars næstkomandi en óhætt er að segja að flest hafi þróast til verri vegar á undanförnum vikum.
Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri. Önnur vaxtaákvörðun ársins verður tilkynnt miðvikudaginn 18. mars næstkomandi en óhætt er að segja að flest hafi þróast til verri vegar á undanförnum vikum. Vísir/Vilhelm

Verðbólguvæntingar hafa aukist á alla mælikvarða á undanförnum vikum, sem hefur þýtt talsvert minnkandi aðhaldsstig peningastefnunnar, og er Seðlabankinn þess vegna „nauðbeygður“ til að hækka vexti um 25 punkta í næstu viku, að mati greinenda IFS. Útlit er fyrir að verðbólgan muni aukast enn frekar í mars og bankinn þurfi að bregðast hratt við „óheppilegri framvindu“ síðustu mánuði.


Tengdar fréttir

Því lengur sem verðbólgan er yfir mark­miði því meira rýrnar trúverðug­leikinn

Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun.

Óttast sam­drátt og at­vinnu­leysi sem ekki sé hægt að mæta með vaxtalækkun

Miðað við dekkri verðbólguspá til skamms tíma þá kallar hún „alls ekki“ á vaxtalækkun í bráð, að sögn seðlabankastjóra, sem varar við því að mögulega sé að teiknast upp sú staða að hagkerfið kunni að sigla í samdrátt og aukið atvinnuleysi sem ekki verði hægt að mæta með því að ráðast í lækkun vaxta. Seðlabankinn hefur ekki fengið neina kynningu á hugmyndum stjórnvalda um skref til afnáms verðtryggingar, meðal annars að gera kröfu um lágmarksafborgun inn á lán, og telur að slíkar aðgerðir ættu fremur að vera á borði fjármálastöðugleikanefndar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×