Formúla 1

Russell sakar Ferrari um eigin­girni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
George Russell fagnar hér sigri í fyrstu keppni tímabilsins.
George Russell fagnar hér sigri í fyrstu keppni tímabilsins. Getty/Kym Illman/

George Russell, ökumaður Mercedes, hefur ásakað Ferrari um „eigingirni“ og „heimsku“ fyrir að koma í veg fyrir breytingar á reglum í Formúlu 1 sem er ætlað að auka öryggi bílanna í ræsingu.

Í fyrstu keppni tímabilsins í síðustu viku í Ástralíu var mikill munur á ræsingargetu bíla á rásmarkinu. Versta atvikið var þegar Franco Colapinto, ökumaður Alpine, rétt náði að forðast það að aka á miklum hraða aftan á hægfara Racing Bull-bíl Liam Lawson.

Russell sagði að yfirvaldið hefði reynt að breyta reglunni sem leiddi til þessara vandamála en sagði að Ferrari hefði komið í veg fyrir það, án þess þó að nefna ítalska bílaframleiðandann á nafn.

Fór úr fjórða í fyrsta í rásmarkinu

Charles Leclerc, ökumaður Ferrari, náði forystunni eftir ræsinguna í Melbourne en hann komst þangað úr fjórða sæti á rásmarkinu, sem undirstrikaði þá tilfinningu að ítalska liðið væri með bestu ræsingarnar í ár.

Russell sagði að vandamálin væru af völdum „mjög sérkennilegrar reglu“ sem takmarkar hversu mikilli orku bíll getur safnað á upphitunarhringnum.

Hann sagði að ökumenn í fremri hluta rásmarksins væru þegar taldir af kerfunum vera á hringnum, þannig að æfingaræsing þeirra frá sýndarrásmarkinu teldist með í orkusöfnunarmörkunum og þeir ættu þá í erfiðleikum með að endurhlaða rafhlöðuna.

Aftur á móti gátu þeir sem voru aftar ræst sig áður en þeir fóru yfir tímatökulínuna og gátu því endurheimt meiri orku fyrir raunverulega ræsingu.

Ferrari hagnaðist á þessu

Ferrari hagnaðist á þessu vegna þess að vélin þeirra er með aðra hönnun en vélar annarra framleiðenda og það er því auðveldara fyrir þá að koma henni af stað.

Russell sagði: „FIA var að íhuga að breyta þessu en eins og þið getið ímyndað ykkur vildu sum lið sem voru að ná góðum ræsingum það ekki, sem mér finnst bara svolítið heimskt,“ sagði Russell.

„FIA vildi bara gera líf okkar auðveldara og fjarlægja þessi orkusöfnunarmörk, en fólk hefur eigingjarnar skoðanir og vill gera það sem er best fyrir sig,“ sagði Russell.

FIA hefur vald til að knýja fram breytingu á grundvelli öryggis en hefur hingað til ekki gert það í von um að ná samstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×