„Sé ekki að almannahagsmunir séu ríkari hér en í Danmörku eða Svíþjóð“ Aron Guðmundsson skrifar 13. mars 2026 10:00 Fumvarp um bardagaíþróttir, flutt af Hildi Sverrisdóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokksins bíður þess að vera tekið fyrir á Alþingi. Forkólfar í bardgaíþróttahreyfingunn á Íslandi, þar á meðal Gunnar Nelson, hafa kallað eftir því að almennileg umgjörð verði sett utan um sínar greinar svo öryggi þátttakenda verði sem mest. Vísir/Samsett Frumvarp um bardagaíþróttir, sem flutt er af Hildi Sverrisdóttur þingmanni Sjálfstæðisflokksins og bíður þess að verða tekið fyrir á Alþingi. Því er ætlað að svara ákalli aðila úr greininni sem vilja axla ábyrgð, búa við bætta umgjörð og auka öryggi þeirra sem kjósa að keppa í slíkum íþróttagreinum.
Frumvarpið er endurflutt, en hugmyndafræðingurinn að því er Berglind Ósk Guðmundsdóttir sem var þingmaður Sjálfstæðisflokksins en hefur nú horfið til annara starfa. Markmið með frumvarpinu er að búa til umgjörð um bardagaíþróttir svo þær séu jafnsettar öðrum íþróttagreinum og þá ekki síst hvað varðar öryggi þeirra þátttakenda sem kjósa að taka þátt. Slík umgjörð er ekki fest í lögum núna en samt sem áður hafa tvö bardagakvöld í blönduðum bardagaíþróttum farið fram hér á landi upp á síðkastið og í uppsiglingu er fyrsta atvinnumannakvöldið í hnefaleikum hér á landi. Í samtali við íþróttadeild Sýnar á dögunum, gagnrýndi UFC bardagakappinn Gunnar Nelson seinagang stjórnmálamanna við að koma á laggirnar almennilegri umgörð í kringum bardagaíþróttir sem tryggi öryggi keppenda. Frelsi fylgir ábyrgð „Í fyrsta lagi verð ég að segja og vera heiðarleg með að ég hef engan áhuga á bardagaíþróttum en ég hef mjög mikinn áhuga á frelsi fullorðins fólks til þess að geta gert það sem að það vill,“ segir Hildur í samtali við íþróttadeild.„Auðvitað vitum við að þetta er hættuleg íþrótt, ekki það að þær eru nú mjög margar hættulegar. En aðilar sjálfir í greininni hafa kallað eftir því að axla þessa ábyrgð. Frelsi fylgir ábyrgð og þeir hafa sjálfir viljað fá þessa umgjörð. Það er vel og þá er sjálfsagt að aðstoða við það.“ 75. grein stjórnarskrár Íslands skiptir hér máli Hnefaleikar voru bannaðir með lögum hér á landi árið 1956, áhugamanna hnefaleikar voru svo leyfðir með sér lögum árið 2002. Eftir standa atvinnumannahnefaleikar en í greinargerð með frumvarpinu segir að „í banni við bardagaíþróttum felist skerðing á atvinnufrelsi fólks, sem nýtur verndar 1.málsgreinar 75.greinar Stjórnarskrár Íslands sem óheimilt er að takmarka nema með lögum ef almannahagsmunir krefjist þess.„Ég myndi segja að 75.greinin sé hér mjög skýr og skiptir hérna máli. Ég get ekki séð að almannahagsmunir séu hér ríkari en í Danmörku eða Svíþjóð þar sem að þetta er leyft. Ég myndi nú halda að ef fullorðið fólk kýs að taka þátt í þessu af fúsum og frjálsum vilja, vitandi hver hættan er. Alveg eins og sá sem ákveður að fara með höfuðið á undan niður fjall á 150 kílómetra hraða, eins og ég sá á Ólympíuleikunum um daginn, kýs að gera það. Þá megi þeir það en við skulum þá hafa skýra umgjörð í kringum það.“ Vænlegast ef Inga tekur málið upp Hildur áttar sig ekki á því hvort stuðningur sé við frumvarpið á þingi þar sem málið hefur enn ekki verið flutt. „En svo er það nú í þessu húsi að það er vænlegast til árangurs ef ráðherra íþróttamála. Sem er þá núna Inga Sæland. Ef hún sér þessa umfjöllun og veitir þessu athygli, þá er það líklegast til árangurs svo ég segi það alveg eins og er.“
MMA Alþingi Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ Sport Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Körfubolti Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Sjá meira