Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Agnar Már Másson skrifar 14. mars 2026 19:28 Isavia vill meina að Rammagerðin skuldi leigu, en Rammagerðin vill meina að Isavia hafi ekki staðið við sinn hlut leigusamningsins. Verslunin hefur fengið greiðslustöðvun samþykkta. Samsett Mynd Isavia lokaði í nótt öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, þrátt fyrir að félagið hafi fengið greiðsluskjól samkvæmt dómaraúrskurði. Gerðist þetta í kjölfar þess að framkvæmdastjóri verslunarinnar gagnrýndi framferði flugvallarins og sagðist ætla að fara fram á lögbann á hendur ríkisfyrirtækinu.
Rammagerðin greinir frá þessu í tilkynningu en í gær ræddi Vísir við Lydíu Kims, framkvæmdastjóra verslunarinnar, sem sagði að aðgerðir Isavia væru ólöglegar og benti á að Rammagerðin hefði fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Héraðsdómi Reykjaness í gær. Þetta er ekki í fyrsta sinn í vikunni sem Isavia lokar verslun Rammagerðarinnar heldur greip ríkisfyrirtækið einnig til þeirra fyrr í vikunni. Isavia vill meina að Rammagerðin skuldi leigu, en Rammagerðin vill meina að Isavia hafi ekki staðið við sinn hlut leigusamningsins og að forsendur hans séu brostnar; farþegafjöldi sé talsvert undir væntingum, Rammagerðin hafi fengið plássið sitt afhent allt of seint, framkvæmdir hafi staðið yfir í kringum verslunina um langan tíma og nú sé búið að koma fyrir bakaríi fyrir framan búðina sem ekki var gert ráð fyrir áður. Forsvarsmenn Rammagerðarinnar leituðu til Héraðsdóms Reykjaness í vikunni, sem úrskurðaði svo að Rammagerðin fengi heimild til greiðslustöðvunar þar til málið verður tekið fyrir í héraðsdómi 1. apríl, samkvæmt úrskurði sem Vísir hefur undir höndum. „Starfsfólki okkar í Leifsstöð var verulega brugðið þegar Isavia kom og lokaði. Aðgerðin olli hræðslu meðal starfsfólks enda er þetta alvarleg og ólögleg aðgerð,“ er haft eftir Lydiu hjá Rammagerðinni í fréttatilkynningu vegna málsins. „Það virðist vera að Isavia telji sig ofar lögum. Að loka verslunum í Keflavík þvert á úrskurð héraðsdóms er ekkert annað en lögbrot.“ Rekið er í tilkynningunni að Rammagerðin hafi starfað í Flugstöð Leifs Eiríkssonar frá árinu 1975. Félagið vinni með yfir 150 íslenskum framleiðendum og hönnuðum víðs vegar um landið. Uppfært 21.57: Talsmaður Isavia gaf ekki kost á viðtali að svo stöddu.
Isavia Tíska og hönnun Keflavíkurflugvöllur Verslun Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Sjá meira