Neita öll sök í Reykholtsmálinu Árni Sæberg skrifar 16. mars 2026 13:41 Sakborningur mætir í Héraðsdóm Suðurlands í dag og hylur andlit sitt. vísir/vilhelm Öll sex sem eru ákærð fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024 neita sök í málinu. Fólkið er sakað um að hafa ruðst inn á heimili mannsins, ógnað með haglabyssu og krafist aðgangs að bankareikningum. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.
Fólkið mætti fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands klukkan 13:30 þegar mál ákæruvaldsins á hendur því var þingfest. Aðeins tveir voru á staðnum en aðrir sakborningar mættu í gegnum fjarfundarbúnað. Einn þeirra gerði það frá fangelsinu á Hólmsheiði. Lét bóka að brotaþoli skuldi honum leigu Allir sakborningar neituðu sök í öllum ákæruliðum og höfnuðu bótakröfu mannsins. Sakborningur með hettu yfir höfði og sólgleraugu við komuna í Héraðsdóm Suðurlands í dag.Vísir/Vilhelm Einn sakborninga vildi láta bóka í þingbók að hann hefði ekki beitt ofbeldi, ekki lagt á ráðin um ofbeldi og ekki séð ofbeldi framið. Þá vildi hann bóka að fyrir lægi að brotaþoli í málinu skuldaði honum leigu. Gróft ofbeldi Í ákæru sem fréttastofa hefur undir höndum er atburðarásinni lýst auk ofbeldisins sem hópurinn á að hafa beitt manninn. Fjögur voru handtekin árið 2024, karlmaður á áttræðisaldri, dóttir hans og tengdasonur um þrítugt auk bróður tengdasonarins. Yngsti sakborningurinn er ekki orðinn tvítugur. Í fréttinni hér að ofan er grófu ofbeldi sem fólkið er sagt hafa beitt manninn lýst. Þar segir meðal annars að maðurinn eigi að hafa verið sleginn ítrekað með hnúajárni og honum ógnað með hníf og haglabyssu. Þá hafi honum einnig verið hótað að hann yrði skorinn á háls eða skotinn í höfuðið. Þá segir í ákærunni að honum hafi verið hótað með keðjusög og að farið yrði með hann á bát til Grænlands þar sem honum yrði hent útbyrðis. Sá sem stóð í hótununum á einnig að hafa farið í útibú Landsbankans til að fá upplýsingar um hvernig hann gæti fengið aðgang að bankareikningi mannsins án hans aðkomu. Í ákærunni kemur fram að vegna ofbeldisins hafi maðurinn meðal annars hlotið blæðingu í framheila, mar í kringum hægra auga, brot í nefbeini, bólgu á hægri kjálka, brot bæði hægra og vinstra megin á kjálka, tapað fimmtán tönnum, mar við vanga og á hálsi, fjögur rifbeinsbrot og mar víðs vegar um líkamann.
Fjárkúgun í Reykholti Dómsmál Bláskógabyggð Lögreglumál Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Sjá meira