Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Lovísa Arnardóttir skrifar 19. mars 2026 07:31 Lilja Björk Einarsdóttir er bankastjóri Landsbankans. Vísir/Einar Aðalfundur Landsbankans sem haldinn var í Reykjastræti í gær samþykkti að greiða samtals 34,9 milljarða króna í arð til hluthafa á árinu 2026. Tvær arðgreiðslur voru samþykktar á aðalfundi.
Í ársskýrslu kemur fram að hagnaður Landsbankans á árinu 2025 nam 38 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 37,5 milljarða króna á árinu 2024. Arðsemi eiginfjár eftir skatta var 11,6 prósent á árinu 2025, samanborið við 12,1% arðsemi árið áður. Í tilkynningu frá bankanum segir að annars hafi verið samþykktar tvær reglulegar arðgreiðslur vegna reikningsársins 2025, samtals að fjárhæð 18,9 milljarðar króna, sem samsvarar um 50 prósent af hagnaði ársins. Hins vegar hafi svo verið samþykkt sérstök arðgreiðsla að fjárhæð 16,1 milljarður króna. Gjalddagi fyrri reglulegu arðgreiðslunnar og sérstöku arðgreiðslunnar er 25. mars 2026. Seinni reglulega arðgreiðslan verður greidd 16. september 2026 en nánar er fjallað um hana í ávarpi Jóns Þorvarðar Sigurgeirssonar, formanns bankaráðs, hér að neðan. Á fundinum flutti Jón Þorvarður skýrslu bankaráðs fyrir árið 2025 og Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri, fjallaði um rekstur, stefnu og starfsemi bankans. Ávarp Jóns er aðgengilegt á vef bankans. Í tilkynningu kemur einnig fram að ársreikningur bankans fyrir árið 2025 hafi verið samþykktur sem og tillögur um starfskjarastefnu, þóknun bankaráðsmanna og heimild til kaupa á eigin hlutum. Þá var samþykkt tillaga um að bankaráð skuli skipað fimm bankaráðsmönnum í stað sjö. Jón Þorvarður Sigurgeirsson var kjörinn formaður bankaráðs. Eftirtaldir voru kjörnir aðal- og varamenn í bankaráð Landsbankans fram til næsta aðalfundar sem aðalmenn: Jón Þorvarður Sigurgeirsson (formaður) Eva Halldórsdóttir Rebekka Jóelsdóttir Þór Hauksson Örn Guðmundsson Varamenn Kristján Þ. Davíðsson Stefanía G. Halldórsdóttir Í tilkynningu kemur einnig fram að Hjörleifur Pálsson var kjörinn sem utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd félagsins. Ríkisendurskoðandi var kjörinn endurskoðandi félagsins fyrir rekstrarárið 2026. Í samræmi við heimildir ríkisendurskoðanda til að útvista verkefnum sínum hefur hann tilnefnt í framhaldi af útboði um verkefnið endurskoðunarfyrirtækið PricewaterhouseCoopers ehf. til að annast endurskoðun ársreikninga 2026.
Landsbankinn Rekstur hins opinbera Fjárlagafrumvarp 2026 Fjármálafyrirtæki Uppgjör og ársreikningar Tengdar fréttir Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Stéttarfélagið VR hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá þessu á Facebook en hún telur að allar líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. 18. mars 2026 13:23 Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. 18. mars 2026 12:59 Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar. 18. mars 2026 11:20 Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Fleiri fréttir Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sjá meira
Undirbúa mögulegar kjaraviðræður: Stjórnvöld dragi lappirnar og Seðlabankinn hóti að beita sér enn frekar Stéttarfélagið VR hefur hafið undirbúning fyrir mögulegar kjaraviðræður í haust. Halla Gunnarsdóttir formaður VR greinir frá þessu á Facebook en hún telur að allar líkur séu á að forsendur kjarasamninga bresti í haust. 18. mars 2026 13:23
Launahækkanir muni valda meiri stýrivaxtahækkunum Seðlabankastjóri segir launahækkanir mun meiri hér en í nágrannalöndum sem vegi þungt í aukinni verðbólgu undanfarið. Peningstefnunefnd hafi því ákveðið að hækka stýrivexti um 0,25 punkta. Mikil hækkun olíuverðs hafi líka haft áhrif á ákvörðunina í morgun. Hann segir að ef verkalýðsfélög muni fara fram á launahækkanir næsta haust muni það leiða til hækkunar stýrivaxta. 18. mars 2026 12:59
Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar. 18. mars 2026 11:20