„Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Siggeir Ævarsson skrifar 19. mars 2026 22:06 Borche þurfti að taka ófá leikhlé í kvöld en þau skiluðu líka árangri Vísir/Vilhelm ÍR-ingar unnu frábæran endurkomusigur á bikarmeisturum KR í kvöld, 102-99, og sýndu heldur betur úr hverju þeir eru gerðir eftir að hafa lent átta stigum undir í fjórða leikhluta.
Borche Ilievski, þjálfari ÍR-inga, var kampakátur í leikslok og frammistöðu sinna manna þegar á reyndi. „Heilt yfir var þetta frábær leikur sem hefði getað farið á hvorn veginn sem er. KR-ingar spiluðu mjög vel en á ögurstundu í fjórða leikhluta vorum við fullir af sjálfstrausti og lögðum allt í að vinna þennan leik. Þetta var bæði krefjandi og mikilvægur leikur fyrir okkur. Við vildum vinna hann til að fylla okkur af sjálfstrausti fyrir úrslitakeppnina.“ Hákon Örn Hjálmarsson var frábær í liði ÍR í kvöld og hitti úr níu af tíu þristum. Það er tölfræði sem maður sér ekki á hverjum degi, og Borche kallar eftir því að Hákon komist í landsliðið. „Ég er ekki búinn að skoða tölfræðina en ég trúi þér! Hákon skaut ótrúlega í kvöld. Hann er í frábæru í formi og hefur verið leiðtogi liðsins í allan vetur. Ég vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að fylgjast með þessum leik því ég er sannfærður um að Hákon geti hjálpað landsliðinu í sumar ef hann fær kallið. Hann var leiðtogi liðsins á vellinum í kvöld og dró það áfram þegar á reyndi. Að sama skapi þá stigu eiginlega allir upp í kvöld. Eiginlega allir áttu sín augnablik þegar við þurftum á því að halda.“ ÍR-ingar voru þegar búnir að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni fyrir leikinn en Borche sagði að sigur á jafn sterku liði og KR ætti að gefa liðinu sjálfstraust fyrir komandi leiki í úrslitakeppninni. „Engin spurning. Við erum að reyna að fylla okkur af sjálfstrausti fyrir úrslitakeppnina. Við vitum væntanlega ekki fyrr en eftir lokaumferðina hverjum við mætum en það verður væntanlega lið úr topp þremur og við viljum mæta í þá viðureign fullir af sjálfstrausti.“ „Að mínu mati er KR eitt besta liðið í deildinni, og sennilega með besta byrjunarliðið. Að mínir menn hafi lagt þá af velli í kvöld segir mér að við getum keppt við hvern sem er.“
Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira