Ótrúlegur O'Sullivan enn að slá met Valur Páll Eiríksson skrifar 20. mars 2026 13:46 Ronnie O'Sullivan er engum líkur. Liu Lixin/China News Service/VCG via Getty Images Ronnie O'Sullivan, einn besti snókerspilari sögunnar, er enn í fullu fjöri þrátt fyrir að vera kominn á sextugsaldurinn. Hann náði í morgun stærstu stigaröð (e. break) sögunnar til að loka setti.
O'Sullivan er meðal keppenda á World Open í Yushan þar sem hann rúllaði Ryan Day upp 5-0 í átta manna úrslitum. Þar lokaði O'Sullivan einu settinu með 153 stigum í röð. Hann setti grænu kúluna niður fyrst og í kjölfarið sextándu rauðu kúluna og því næst sína fyrstu svörtu. Eftir það fylgdu næstu 15 rauðar sem eftir voru, 13 svartar og tvær bleikar áður en hann hreinsaði borðið, það er að segja allar sex litakúlurnar á borðinu, til að ná 153 stigum í röð. Þar með slær O'Sullivan met en 153 er stærsta stigaröð í heimssögu snókersins. Fyrra met átti Jamie Burnett er hann raðaði inn 148 til að loka ramma á Breska meistaramótinu árið 2004, fyrir 22 árum síðan. O'Sullivan er 50 ára gamall en sýnir enn á ný að lengi lifir í gömlum glæðum. Met næturinnar bætist á langan metalista Bretans sem hefur unnið flesta Triple Crown titla í sögunni (8), flest Bresk meistaramót (8), er jafn Stephen Hendry með flesta heimsmeistaratitla (7) auk þess sem hann er elsti heimsmeistari sögunnar (46 ára, árið 2022). Með sigri næturinnar kemst O'Sullivan í undanúrslit mótsins í Yuhan þar sem hann mætir heimamanninum Wu Yize.
Snóker Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Gylfi tekur við Víkingi Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Emil skrifar undir hjá Fram Ótrúlegar troðslur: „Með einari!“ Grótta í sambandi við Davíð Smára Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Sjá meira