Handbolti

„Sóknar­leikurinn vel smurður“

Hjörvar Ólafsson skrifar
Ágúst Þór Jóhannsson glæsilegur á hliðarlínunni að vanda. 
Ágúst Þór Jóhannsson glæsilegur á hliðarlínunni að vanda.  Vísir/Ernir

Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari Vals, var kampakátur með lærisveina sína sem lögðu Aftureldingu að velli í Olís-deild karla í handbolta í dag.

„Við vorum bara heilt yfir flottir í þessum leik. Þá sérstaklega þegar kemur að sóknarleiknum. Við náðum undirtökunum snemma í leiknum og létum forystuna aldrei frá okkur. Afturelding er vel drillað lið í líkamlegu formi og þeir létu okkur hafa mikið fyrir þessum sigri,“ sagði Ágúst Þór að leik loknum. 

„Mér fannst við spila fjölbreyttan sóknarleik og sköpuðum oftast nær góð færi í sóknum okkar. Við höfum verið að skora mikið í undanförnum leikjum og sóknarleikurinn er vel smurður,“ sagði hann enn fremur. 

„Aftur á móti er ýmislegt sem við þurfum að laga í varnarleiknum. Kannski bara vera sterkari maður á mann og fínpússa færslurnar okkar. Björgvin Páll kom okkur til bjargar þegar á reyndi og sá til þess að þeir kæmust ekki inn í leikinn,“ sagði Ágúst. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×