Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson og Kristján Jón Jónatansson skrifa 20. mars 2026 13:00 Klíníkin hefur undanfarnar vikur vakið athygli á hagræði og sparnaði sem falist getur í að framkvæma efnaskiptaaðgerðir á vegum Landspítalans hér á landi í stað þess að senda sjúklinga erlendis. Klíníkin hefur í áratug framkvæmt mikinn fjölda slíkra aðgerða hér á landi með góðum árangri svo þekking og allur aðbúnaður er til. Að frumkvæði yfirvalda heilbrigðismála var gerður samningur við Sjúkratryggingar Íslands í ágúst sl. um framkvæmd þessara aðgerða en tafir á innleiðingu hans urðu tildrög þess að forsvarsmenn Klíníkurinnar hófu að vekja athygli á málinu enda talsverðir fjármunir undir fyrir hið opinbera fyrir utan ómælt hagræði fyrir sjúklinga. Hjörtur Gíslason, skurðlæknir á Landspítala, sem jafnframt starfar í Svíþjóð og hefur þar framkvæmt efnaskiptaaðgerðir á íslenskum sjúklingum, skrifaði í kjölfarið grein og fór þar með ýmsar rangfærslur og óábyrgar staðhæfingar sem ekki er hægt að láta hjá líða að svara. Vega þær ekki aðeins að heiðri Klíníkurinnar og fagmennsku þar innan veggja heldur alls þess góða starfsfólks sem hjá Klíníkinni starfar. Staðhæfingar Hjartar byggja vonandi á misskilningi eða þekkingarleysi á störfum Klíníkurinnar. Klíníkin hefur átt í farsælu samstarfi við Landspítala, heilbrigðisráðuneytið, Sjúkratryggingar Íslands og fleiri aðila. Gæði þjónustu og velferð sjúklinga er alltaf leiðarljós í öllum störfum okkar og hefur mikill metnaður verið lagður í að byggja upp gott orðspor Klíníkurinnar. Það er eðlilegt og gott að skiptar skoðanir séu á fyrirkomulagi heilbrigðisþjónustu, en ekki getur talist gott að læknir tjái sig opinberlega með svo óábyrgum hætti, einkum þegar hann á hagsmuna að gæta vegna eigin fyrirtækjareksturs í sama málaflokki. Um rangfærslurnar sem vert er að leiðrétta er af nógu að taka. Klíníkin starfrækir vissulega þverfaglegt teymi um starfsemina sem um ræðir, þvert á það sem Hjörtur segir. Teymið sem kemur að efnaskiptaaðgerðum telur skurðlækna, hjúkrunarfræðinga, næringarfræðing og sjúkraþjálfara. Aðkoma lyflæknis til viðbótar er í undirbúningi en við vísum auk þess í önnur úrræði á borð við sálfræðinga eða hugræna atferlismeðferð eftir því sem hentar hverjum sjúklingi. Alrangt er að sjúklingar hitti ekki skurðlækni fyrir aðgerð. Allir hitta skurðlækni í fyrsta viðtali, svo aftur fyrir aðgerð og á stofugangi eftir aðgerð. Regluleg einstaklingsbundin eftirfylgni er skipulögð fyrir hvern sjúkling 6 vikum, 6 mánuðum og ári eftir aðgerð. Sjúklingar geta auk þess óskað eftir því að framlengja eftirfylgni eða koma oftar ef þörf er á. Ein alvarlegasta afvegaleiðingin er að Landspítalinn verji miklum tíma í að sinna fylgikvillum eftir efnaskiptaaðgerðir sem framkvæmdar hafa verið á Klíníkinni. Þessu hefur lengi verið haldið fram en þrátt fyrir ósk um tölulegar upplýsingar frá Landspítala hafa slík gögn aldrei verið lögð fram. Fylgikvillar vegna efnaskiptaaðgerða eru þekktir hvar sem þær eru framkvæmdar og hluti þeirra sjúklinga þarfnast aðgerðar. Tíðni alvarlegra fylgikvilla hefur verið mjög lág á Klíníkinni. Klíníkin sinnir öllum þeim sem til hennar leita vegna fylgikvilla. Sjúklingar leita til hins opinbera ýmist vegna bráðavanda en oftar vegna greiðsluþátttöku hins opinbera sem ekki hefur verið til staðar á Klíníkinni. Þetta fyrirkomulag er sambærilegt við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar sem búa við svipað heilbrigðiskerfi, þ.á.m. í Svíþjóð. Fleira mætti telja til en mikilvægast er þó að horfa til þess sem betur má fara í heilbrigðiskerfinu. Um eitt eru nefnilega allir sammála, en það er velferð sjúklinga. Um það snýst þetta fyrst og fremst. Hjörtur bendir réttilega á að langbest sé að aðgerðir á borð við þessar séu framkvæmdar hér á landi. Þrennt skiptir hér helst máli. Fyrir það fyrsta er kostnaður ríkisins sannanlega talsvert hærri þegar sjúklingar eru sendir erlendis, m.a. vegna ferðakostnaðar og dagpeninga. Fyrir utan beinan kostnað skipta samfélagslegir þættir einnig verulegu máli. Mikilvægt er að þekking á sjúkdómum sem leiða til efnaskiptaaðgerða og svo á aðgerðunum sjálfum sé til og haldist hér í landinu. Slík þekking er fjárfesting í sjálfu sér en við bætist skattsporið sem til verður vegna aðgerðanna og sá samfélagslegi ávinningur sem því fylgir. Síðast en ekki síst er langt ferðalag mikið óhagræði og fyrirhöfn fyrir sjúklingana. Þetta álag má ekki vanmeta og því til mikils að vinna að hægt sé að veita þessa þjónustu á Íslandi. Það getur verið mikið fyrirtæki og kvíðavaldur að leggja í löng ferðalög, bæði fyrir en ekki síður eftir aðgerðir. Ísland er lítið land og mikilvægt að allir aðilar vinni saman að því að finna leiðir til að veita betri heilbrigðisþjónustu og halda niðri kostnaði. Í stað þess að munnhöggvast í fjölmiðlum verður vonandi hægt að halda áfram uppbyggilegu samtali með hag sjúklinga og heilbrigðiskerfisins að leiðarljósi. Aðalsteinn er sérfræðingur í almennum skurðlækningum hjá Klíníkinni og Kristján Jón er framkvæmdastjóri Klíníkurinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun