Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar 27. október 2026 18:00 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifaði á dögunum áhugaverða grein undir fyrirsögninni “„Einungis tvö kyn“” (https://www.visir.is/g/20262953425d/einungis-tvo-kyn). Þar býður hann lesandanum að standa með sér frammi fyrir málverki og dást að litadýrðinni. Ef einhver skyldi síðan benda á að aðeins séu til þrír grunnlitir, rauður, grænn og blár, væri hann að sögn Helga farinn að beina athyglinni frá því sem skiptir máli: fegurð og fjölbreytileika málverksins. Þetta er skemmtileg samlíking og ég get tekið undir margt í þeim tilgangi sem að baki henni liggur. Um leið má þó velta fyrir sér hvort upphafleg útskýring á litunum sé fyllilega nákvæm út frá eðlisfræðinni… sérstaklega þegar hún er síðan notuð til að ræða um takmörk líffræðilegra skilgreininga. Rauður, grænn og blár eru nefnilega ekki einu litirnir sem til eru í eðlisfræðilegum skilningi. Þeir eru grunnlitir í ákveðnu kerfi ljósblöndunar, meðal annars á tölvuskjám. Gult ljós getur haft sína eigin bylgjulengd og þarf ekki að vera blanda af rauðu og grænu, þótt sú blanda geti framkallað sömu litaupplifun. En við skulum ekki eyðileggja málverkasýninguna með langri fyrirlestraröð um ljósfræði. Meginspurningin liggur annars staðar. Hvað erum við eiginlega að spyrja um? Helgi vill minna okkur á að mannlífið sé fjölbreytt. Það er rétt. Menn og konur eru ólík, útlit fólks og kyneinkenni geta verið margbreytileg og sumir einstaklingar fæðast með ódæmigerð kyneinkenni. Trans fólk er sömuleiðis raunverulegt fólk með sína eigin lífsreynslu. Við þurfum ekki að afneita neinu af þessu til að ræða líffræðilega flokkun. Í æxlun manna eru tvær tegundir kynfrumna, eggfrumur og sáðfrumur. Þessi aðgreining liggur til grundvallar karlkyns og kvenkyns æxlunarhlutverkum. Það er líffræðileg staðreynd. En hún segir ekki allt sem hægt er að segja um hverja manneskju. Hún lýsir ekki persónuleika hennar, sögu, hæfileikum, tilfinningum eða mannlegri reisn… og það þarf hún heldur ekki að gera. Mikilvægt er því að greina á milli ólíkra spurninga: Líffræðilegrar flokkunar, persónulegrar sjálfsupplifunar og þess hvernig við komum fram við hvert annað. Hvað er líffræðilegt kyn? Hvernig upplifir einstaklingur sjálfan sig? Og hvernig ber mér að koma fram við viðkomandi? Allt eru þetta gildar spurningar… en svarið við einni þeirra leysir hinar ekki sjálfkrafa af hólmi. Mannleg reisn verður ekki ákvörðuð með litningaprófi. Þar er ég sammála Helga. En þá vaknar spurning sem mér finnst skipta miklu máli: Hvers vegna ætti það að vera nauðsynlegt að samþykkja ákveðna skilgreiningu á kyni til að viðurkenna mannlega reisn einstaklingsins? Ég þarf ekki að vera sammála annarri manneskju um allar heimspekilegar, líffræðilegar eða trúarlegar skilgreiningar til að viðurkenna að hún eigi skilið virðingu og sanngirni. Eða vera sakaður um hatursorðræðu ef ég er á annari skoðun. Og það sama gildir að sjálfsögðu í hina áttina. Ég les grein Helga ekki þannig að hann telji alla þurfa að samþykkja sömu skilgreiningar til að sýna fólki virðingu. Um leið má þó gæta þess að ólíkar spurningar renni ekki svo þétt saman að ágreiningur um skilgreiningar verði túlkaður sem skortur á virðingu fyrir fólki. Þarna finnst mér vert að staldra við. Ef við spyrjum líffræðilegrar spurningar getum við ekki svarað henni eingöngu með siðferðilegri áminningu, jafnvel þótt hún sé góð og réttmæt. Og ef við spyrjum siðferðilegrar spurningar nægir ekki heldur að leggja fram líffræðilega flokkun. Samlíking Helga getur hjálpað okkur að sjá fjölbreytileika mannlífsins. En jafnvel þótt samlíkingin væri fullkomin, þyrfti enn að sýna fram á að samband grunnlita og litbrigða væri sambærilegt við samband líffræðilegs kyns og kynvitundar. Samlíking getur varpað ljósi á röksemd. Hún kemur ekki í stað raka fyrir henni. Og hér leyfi ég mér að bæta við einni athugasemd: Málverkið verður ekki síður fallegt þótt við spyrjum hvaða litarefni listamaðurinn notaði. Og manneskjan verður ekki síður verðmæt þótt við spyrjum hvað líffræðilegt kyn merkir. Þetta er athugasemd við röksemdina, ekki við mannlegt gildi þess fólks sem Helgi fjallar um. Kannski er fyrsta skrefið í átt að betra samtali einfaldlega að halda ólíkum spurningum aðgreindum og leita jafnframt að þeim sameiginlega grunni að allir eigi skilið virðingu og sanngirni. Maðurinn er meira en upplifun sín En grein Helga vekur hjá mér aðra og dýpri spurningu: Hvað er það eiginlega sem skilgreinir manninn? Er það líkami hans, innri upplifun, tilfinningar, langanir eða sjálfsmyndin sem hann hefur mótað sér? Eða er eitthvað enn grundvallarlegra sem gefur lífi hans merkingu og reisn? Hér hefur kristin trú margt að segja. Samkvæmt sköpunarfrásögn Biblíunnar er maðurinn skapaður í mynd Guðs, sem karl og kona. Sú fullyrðing fjallar ekki aðeins um líffræði. Hún segir okkur að mannleg reisn sé ekki mannanna uppfinning og ekki háð samþykki samfélagsins. Maðurinn hefur gildi vegna þess hver skapaði hann. En Biblían stoppar ekki við sköpunina. Hún lýsir líka syndafallinu, því hvernig syndin hefur áhrif á hugsun okkar, langanir, sambönd og breytni. Það á við um okkur öll. Hér er mikilvægt að gera greinarmun á því að upplifa löngun og því að ákveða að löngunin skuli hafa síðasta orðið um hvað sé rétt. Við þekkjum öll langanir sem við teljum okkur þurfa að hafa stjórn á og vitum að það sem maðurinn þráir er ekki sjálfkrafa honum fyrir bestu. Kristin trú heldur því fram að við þurfum mælikvarða sem er stærri en við sjálf… ekki vegna þess að manneskjan sé einskis virði… heldur einmitt vegna þess að hún er svo mikils virði. „Drottinn fyrir líkamann“ Það eru orð Páls postula sem hafa lengi setið í mér: „En líkaminn er ekki fyrir saurlífi heldur fyrir Drottin og Drottinn fyrir líkamann.“ (1Kor 6:13) Takið sérstaklega eftir síðustu orðunum: „Drottinn fyrir líkamann.“ Páll boðar ekki fyrirlitningu á líkamanum. Hann talar um upprisu hans, um að líkami hins trúaða sé musteri heilags anda og að við séum verði keypt. Þetta er róttækt önnur sýn á manninn en sú að hann sé aðeins summa hvata sinna, tilfinninga eða sjálfsskilgreininga. Og svo kemur fagnaðarerindið. Guð yfirgaf ekki manninn í synd hans. Hann gaf son sinn. Páll skrifar í Títusarbréfinu að náð Guðs hafi opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum og að sú náð kenni okkur að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa réttvíslega og guðrækilega. Náðin fyrirgefur ekki aðeins. Hún kennir og umbreytir. Enginn er undanskilinn þeirri þörf, hvorki sá sem stendur í prédikunarstól né sá sem skrifar blaðagrein eða gerir við bíla. Síst af öllu sá sem er fljótur að sjá hvað aðrir þurfi að leiðrétta en tregur til að skoða eigið hjarta. Kristið fagnaðarerindi er ekki boðskapur um að ákveðinn hópur manna sé vandamálið. Það er boðskapur um að við höfum öll syndgað, þurfum öll á náð að halda og að Jesús Kristur hafi komið til að frelsa syndara. Það sem gerir þetta svo stórkostlegt er að náð hans býður okkur ekki aðeins fyrirgefningu fortíðarinnar heldur einnig nýtt líf með hjálparann Heilagan Anda í fararbroddi. Fegurðin sem við megum ekki missa af Helgi lýkur grein sinni á fallegri spurningu: „Sérðu í alvörunni ekki hvað þetta málverk er fallegt?“ Jú, jú… Helgi. Ég sé fegurðina í mannlegu lífi, fjölbreytileika fólks og þeirri reisn sem okkur ber að viðurkenna hjá hverjum einstaklingi, líka þegar við erum ósammála um grundvallarspurningar. En fegurð og sannleikur þurfa ekki að vera keppinautar. Kristin trú bendir okkur á enn aðra fegurð… fegurð Guðs sem elskaði manninn svo mikið að hann gaf einkason sinn… fegurð Jesú Krists sem tók á sig syndir okkar og fegurð náðarinnar sem fyrirgefur, reisir upp og kennir okkur að lifa. Ekki vegna þess að við séum þegar orðin eins og við eigum að vera… heldur vegna þess að hann elskar okkur of mikið til að láta syndina eiga síðasta orðið. En hér vaknar líka spurning fyrir okkur sem játum kristna trú: Ef ég tel mig kristinn, hef ég þá sjálfur síðasta orðið um hver ég er, eða ber mér að leyfa skaparanum og Orði hans að móta skilning minn á sjálfum mér? Ef ég játa að Guð hafi skapað mig, felst þá ekki einmitt í því að ég viðurkenni að sjálfsmynd mín verður ekki að fullu skilin án þess að taka mið af honum þ.e. skikkann Skaparans? Guð skapaði mig. Ég tilheyri honum. Og ef ég fylgi Jesúm Kristi er ég jafnframt kallaður til að læra að sjá sjálfan mig í ljósi náðar hans, sannleika og endurlausnar. Það er ekki aðeins spurning um hvað mér finnst um sjálfan mig. Það er líka spurning um hver Jesús Kristur er og hvað hann hefur gert fyrir mig með fullnaðarverki sínu á krossinum. Helgi býður okkur að dást að fegurð málverksins. Ég vil bjóða honum, og okkur öllum, að íhuga enn aðra fegurð. Sérðu ekki fegurðina í fagnaðarerindinu? Höfundur er iðnaðarmaður og guðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Skoðun Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun