„Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hjörvar Ólafsson skrifar 21. mars 2026 17:13 Heimir Guðjónsson byrjar vel í brúnni hjá Fylki í Árbænum. Fylkir Heimir Guðjónsson tók við stjórnartaumunum hjá karlaliði Fylkis í fótbolta síðasta haust og er strax búinn að færa félaginu fyrsta titilinn. Fylkir vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti í sögu félagsins í dag og þessi titill er langþráður. „
Við vorum sundurspilaðir í fyrri hálfleik. Vorum allt of langt frá þeim í varnarleiknum og þeir náðu að tvöfalda á okkur á köntunum og komast í gegn trekk í trekk. Það var hins vegar allt annað að sjá okkur í seinni hálfleik. Við þorðum að halda í boltann og sköpuðum fullt af færum. Við náðum líka að loka betru á þá,“ sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis. „Mér fannst við spila flottan fótbolta í seinni hálfleiknum og fengum kraft inn með þeim varamönnum sem komu inn í leikinn. Það er frábært að ná að spila svona gegn jafn sterku og vel þjálfuðu liði og KR er,“ sagði Heimir enn fremur. „Við erum á flottum stað með liðið eins og staðan er núna. Fram undan er svo æfingaferð þar sem við fínpússum hlutina og förum yfir þau atriði sem betur mega fara hjá okkur. Við höfum æft vel í vetur og verðum klárar í bátana þegar deild og bikar hefjast,“ sagði hann um komandi vikur. „Þessi sigur ætti að færa liðinu sjálfstraust. Við viljum skapa ákveðna sigurhefð hérna í Árbænum og færa liðið í ákveðnum skrefum hærra upp stigann í íslenskum fótbolta. Þetta er skref í þá átt en það er mikil vinna eftir, við gerum okkur alveg grein fyrir því,“ segir þessi reynsliumikli þjálfari.
Lengjubikar karla Fylkir Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Sjá meira