Bjóða Frosta að ræða „villuljós“ í Háskóla Íslands Kjartan Kjartansson skrifar 25. mars 2026 06:37 Forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ segir stofnunina ekki taka afstöðu til þeirra sem halda fyrirlestra á vegum hennar. Stofnun býður Frosta Sigurjónssyni að ræða um bók um loftslagsmál sem hefur verið harðlega gagnrýnd fyrir afbökun á vísindum. Vísir Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir stofnunina ekki taka undir afstöðu Frosta Sigurjónssonar með því að bjóða honum að halda fyrirlestur um loftslagsmál. Helsti loftslagsvísindamaður landsins lýsti vísindalegri umfjöllun í nýlegri bók Frosta sem „villuljósi“
Bók sem Frosti, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, gaf út um loftslagsmál á eigin vegum í vetur er full af rangfærslum um loftslagsvísindi. Þær hafa að hluta til verið raktar í bókardómi á Vísi. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, sagði fullyrðingar um vísindi í bók Frosta sjaldnast standast skoðun og byggjast að miklum hluta á löngu hröktum fullyrðingum í ítarlegri vísindalegri rýni sem birtist í vikuritinu Vísbendingu fyrr í þessum mánuði. „[...] bók sem byggir á slíkum fullyrðingum missir síðan marks þegar ræða á stefnu þjóðarinnar í losunarmálum og viðbrögðum við loftslagsbreytingum. Það er kannski það sem er mest svekkjandi við bókina, hún styður ekki upplýsta umræðu um loftslagsmál, því vísindalegur hluti hennar er því miður nánast alfarið villuljós,“ skrifaði Halldór í grein sinni. Vilja hlusta þótt stofnunin taki ekki afstöðu sjálf Gagrýnin kom þó ekki í veg fyrir að Hagfræðistofnun byði Frosta að halda fyrirlestur um sjónarmiðin sem hann reifar í bókinni í Háskóla Íslands á föstudaginn. Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar HÍ, segir að stofnuninni hafi verið bent á að Frosti hafi gefið út bók sína í vetur og því hafi honum verið boðið að halda fyrirlestur um málefnið. „Við tökum ekki afstöðu til þeirra sem tala hérna ef menn hafa eitthvað interessant að segja að okkar dómi. Það að hann tali hérna felur ekki í sér að við séum að taka undir með honum á neinn hátt. En við viljum augljóslega hlusta á hann,“ segir Sigurður. Sigurður Jóhannesson er forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.Háskóli Íslands Margir hafi talað hjá Hagfræðistofnun sem þeir séu ekki sammála en það þýði ekki að þeir ræðumenn hafi ekki rétt á að koma sínum skoðunum á framfæri. „Ég þekki nú Frosta og hann er klár maður. Það er enginn vafi á því,“ segir forstöðumaðurinn. Ekki lesið bókina sjálfur Sigurður segist hafa séð gagnrýni Halldórs frá Veðurstofunni á vísindalegan hluta bókar Frosta. „Ég hef satt að segja ekki lesið bókina. Ég veit ekki alveg hvort hann er beinlínis að efast um að hlýnun jarðar sé af mannavöldum eða hvort hann er að deila á kostnað sem sé verið að leggja í.“ Hvoru tveggja. „Það er bara eitthvað sem menn mega gera,“ segir Sigurður. Skrifaði kynninguna sjálfur Spurt er að því í auglýsingu fyrir viðburð Hagfræðistofnunar hvort að vísindin sem baráttan gegn losun koltvísýrings grundvallast á sé hafin yfir vafa. Vísindaleg vissa um afleiðingar losunar á loftslag jarðar hefur hins vegar legið að mestu fyrir um fleiri áratuga skeið. Sigurður segir að Frosti hafi sjálfur skrifað kynningartexta viðburðarins. Það er áhugavert að þetta sé í háskólanum þar sem að það sem hann segir í vísindahluta bókarinnar er efnislega rangt. Þarna er sérfræðingur Veðurstofunnar búinn að taka sér tíma í skrifa mjög langa og ítarlega vísindalega rýni þar sem hann segir að það standi ekki steinn yfir neinu sem Frosti skrifar í vísindahlutanum sem ég sé að er vísað til í auglýsingunni fyrir viðburðinn. „Þetta eru nú bara orð hans. Þetta er vettvangur skoðanaskipta, ekki að að við séum að segja að einhver hafi rétt fyrir sér,“ segir Sigurður við Vísi. Strámaður um stöðugt loftslag Þá er spurt í lýsingu viðburðarins hvort að loftslagið verði stöðugt ef mannkynið nær markmiðum Parísarsamkomulagsins. Frosti svaraði þeirri spurningu sjálfur í bók sinni og komst að þeirri niðurstöðu að loftslagsið „hætti líklega ekki að breytast þótt kolefnishlutleysi yrði náð“. Markmið Parísarsamkomulagsins eru bundin við að hnattrænni hlýnun, sem losun manna á gróðurhúsalofttegundum veldur, verði haldið innan ákveðinna marka, 1,5 til 2 gráða miðað við viðmiðunartímabil fyrir iðnbyltingu. Parísarsamkomulagið felur þannig ekki í að komið verði á stöðugleika í loftslagi jarðar enda verður það áfram háð náttúrulegum breytileika sem á sér almennt stað yfir mun lengri tímabil en núverandi hlýnun af völdum manna. Markmið samningsins er þess í stað að koma í veg fyrir að menn valdi enn stórtækari breytingum á stöðugleika loftslagsins en þeir hafa þegar gert.
Háskólar Loftslagsmál Vísindi Skóla- og menntamál Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira