Ímynd er drifkraftur útflutnings Pétur Þ. Óskarsson skrifar 27. mars 2026 07:33 Ársfundur Íslandsstofu fór nýlega fram undir yfirskriftinni „Alþjóðaviðskipti á óvissutímum 2.0“. Á fundinum var rýnt í ímynd Íslands og þróun útflutnings á síðustu 12 mánuðum og velt upp þeirri spurningu hvort umhverfi alþjóðaviðskipta hafi breyst og hvort nýr veruleiki sé ef til vill að mótast. Ísland er lítið og útflutningsdrifið hagkerfi og öruggt aðgengi að erlendum mörkuðum er grundvöllur þeirra lífskjara sem við búum við. Ísland mun seint keppa við önnur lönd í magni eða lágri verðlagningu útflutningsafurða. Til þess erum við of fá, framleiðslukostnaður of hár og fjarlægð frá helstu mörkuðum of mikil. Íslenskur útflutningur verður að keppa á grundvelli gæða, og öll mörkun og markaðsstarf þarf að undirbyggja þá ímynd til lengri tíma. Þróun útflutningsgreina Ísland stendur sterkt á mörgum sviðum en það hefur hægt á vexti útflutnings á undanförnum þremur árum. Ferðaþjónusta er áfram ein af styrkustu stoðum útflutnings en gögn Ferðamálastofu sýna að fjöldi ferðamanna hefur í raun staðið í stað frá árinu 2017 og verið um 2,3 milljónir á ári. Árstíðasveifla hefur hins vegar þróast með neikvæðum hætti, með auknu hlutfalli ferðamanna yfir háönnina. Þá má sjá markverðar breytingar á okkar stærsta markaði, en viðhorfskannanir Íslandsstofu sýna að áhugi Bandaríkjamanna á að heimsækja Ísland hefur dregist verulega saman á skömmum tíma. Þetta sýnir að eftirspurn er ekki stöðug og við getum ekki gengið að henni vísri. Á sama tíma er annar geiri að þróast með allt öðrum hætti. Hugverkaiðnaður er sú útflutningsgrein sem vex hraðast á Íslandi og hefur skipað sér sess sem fjórða stoð útflutnings hér á landi. Hugverkaiðnaður fellur vel að styrkleikum Íslands. Hér býr menntuð þjóð með þekkingu og sveigjanleika sem gerir okkur kleift að skapa verðmæti í krafti gæða fremur en magns. Í slíkri samkeppni skipta uppruni, trúverðugleiki og orðspor miklu máli. Ímynd Íslands og traust til landsins hafa raunveruleg áhrif á eftirspurn. Ímynd hefur áhrif á það hvort fyrirtæki velja Ísland sem samstarfsaðila, hvort fjárfestar líta til landsins og hvort vörur og þjónusta frá Íslandi njóta sérstöðu á mörkuðum. Ímynd er ekki aukaatriði. Hún er hluti af samkeppnishæfni. Þetta sjáum við best í okkar hefðbundnu útflutningsgreinum. Í sjávarútvegi hefur Ísland sterka stöðu, en þar eigum við í harðri samkeppni við lönd sem hafa fjárfest markvisst í uppbyggingu vörumerkja og markaðssetningu. Ímynd Íslands sem upprunaland gæða í sjávarafurðum hefur tryggt há verð og viðhaldið góðri stöðu á markaði. Sama má segja um orkugeirann. Ímynd Íslands sem land hreinnar orku hefur myndað mikla og viðvarandi eftirspurn eftir bæði íslenskri orku og íslensku hugviti á sviði orkumála. Grípum tækifærin Ef við horfum aftur í tímann, þá hefur íslenskur útflutningur jafnan átt hæg vaxtarskeið yfir nokkurra ára tímabil en svo tekið stórstíg stökk inn á milli. Við erum á hægvaxtarskeiði, en við erum að verða klár í næsta stökk. Það þarf að tryggja að öll skilyrði séu til staðar til að styðja við fjölbreyttan útflutning frá Íslandi og meta hvar ný tækifæri liggja. Við verðum jafnframt að leggja rækt við ásýnd og ímynd Íslands. Það er ekki aukaverk. Ímynd er sá drifkraftur sem skapar mestan virðisauka verðmæta fyrir lítið land með fábreytt framboð. Þannig styrkjum við forsendur verðmæts útflutnings svo Ísland geti tekið stórt stökk inn í framtíðina. Höfundur er framkvæmdastjóri Íslandsstofu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar