Verslun opnar á varnarsvæðinu en viðveran stendur í stað Birgir Olgeirsson skrifar 27. mars 2026 06:46 Á myndinni má sjá frá vinstri þau Joy Turner, svæðisvaraforseti Evrópudeildar NEX, Jimmy Busquets, framkvæmdastjóri NEX í Sigonella, Clyde Mc Cune, sölustjóri hjá NEX í Napólí, Marvin Ingólfsson, staðgengill stöðvarstjóra á Keflavíkurflugvelli fyrir hönd Landhelgisgæslunnar og Brett Butterfield, framkvæmdastjóri Patrol Squadron 40. NEX Ný matvöruverslun frá Navy Exchange Service Command, NEX, hefur verið opnuð á varnarsvæðinu við Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða svonefndan Micro Market-sölustað, sem var tekinn í notkun 10. mars og er ætlaður bandarískum hermönnum og öðru liði Atlantshafsbandalagsins á svæðinu.
Opnun verslunarinnar hefur vakið spurningar um hvort verið sé að undirbúa aukna viðveru Bandaríkjahers á Íslandi. Svör utanríkisráðuneytisins benda þó ekki til þess. Samkvæmt ráðuneytinu dvelja hér að jafnaði 100 til 200 bandarískir liðsmenn, gistirými á svæðinu eru um 220 og engin áform eru uppi um að breyta núverandi fyrirkomulagi. Þá segir í svörum frá ráðuneytinu að ekki séu uppi frekari áform um nýja þjónustu fyrir hermennina. Helstu verkefni bandaríska flotans hér á landi lúta að kafbátaleit og eftirliti á hafinu. Verslunin mun skaffa bandarískum hermönnum og bandalagsliðsmönnum helstu nauðsynjavörur, skyndirétti, nasl, sælgæti og gos. NEX Nýja verslunin er búin sjálfsafgreiðslukössum og opin allan sólarhringinn. Þar eru seld bandarísk matvæli og drykkir, snarl, frosnar máltíðir, kaffi og helstu nauðsynjavörur á borð við hreinlætis- og þvottavörur. Verslunin er ætluð bandarískum hermönnum og bandalagsliði. Samanlagður fjöldi liðsmanna bandaríkjahers og bandalagsliðsmanna er á bilinu 300 til 400. Rifjar upp annan veruleika Þótt nýja verslunin sé smá í sniðum rifjar hún upp allt annan veruleika á varnarsvæðinu. Bandarískir hermenn komu fyrst til Íslands 7. júlí 1941, þegar þeir tóku við vörnum landsins af Bretum á stríðsárunum. Bandaríska herliðið yfirgaf landið árið 1947 en sneri aftur árið 1951 eftir að varnarsamningur Íslands og Bandaríkjanna var gerður. Fastri viðveru Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli lauk síðan 30. september 2006, þegar síðustu liðsmennirnir hurfu á braut. Boðið var upp á litríkar kökur þegar verslunin var opnuð. NEX Þegar mest lét var varnarsvæðið ekki aðeins herstöð heldur heilt samfélag innan girðingarinnar. Samkvæmt umfjöllun Iceland Review náði fjöldinn mest um 5.700 manns en þar á meðal voru hermenn, fjölskyldur þeirra og annað starfsfólk. Það er margfalt meira en nú, þegar ráðuneytið talar um 100 til 200 bandaríska liðsmenn að jafnaði. Heill heimur afþreyingar Þjónustan á varnarsvæðinu tók mið af þessu. Þar risu skólar fyrir börn varnarliðsfólks og heimildir sýna að bæði grunnskóli og framhaldsskóli voru starfræktir á svæðinu allt til loka herstöðvarinnar árið 2006. Á varnarsvæðinu voru einnig kvikmyndahús, sjúkrahús, matsalur, keiluhöll, sundlaug og önnur þjónusta og afþreying. Eins og góðri opnun verslunar sæmir var klippt á borða með stórum skærum. NEX Gamlar heimildir frá herstöðinni bera jafnframt með sér að þar hafi verið bæði Navy Exchange-verslun og sérstök matvöruverslun, svokölluð commissary, auk annarrar daglegrar þjónustu sem fylgdi þessu lokaða samfélagi. Nýi NEX-sölustaðurinn er því fremur endurómur af þeirri sögu en merki um að verið sé að reisa upp sambærilegt samfélag á ný.
Öryggis- og varnarmál Keflavíkurflugvöllur Bandaríkin Verslun Mest lesið Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira