Suðurnesin bíða ekki, við verðum að fylgja eftir Fida Abu Libdeh skrifar 27. mars 2026 09:31 Suðurnesin eru eitt mikilvægasta atvinnuvaxtarsvæði landsins. Þar er alþjóðaflugvöllur, hafnir, ferðaþjónusta í heimsklassa, orkuframleiðsla, hugvit og öflug þekking sem hefur byggst upp í kringum jarðhita, náttúruauðlindir og frumkvæði fólksins sjálfs í gegnum áratugi. Og þó er eitt sem við þurfum að taka alvarlega. Oft er litið á Suðurnesin sem gefna stærð, svo að segja. Sem baksvið. Sem þjónustusvæði. Það er kominn tími til að breyta þeirri sýn. Tækifærin eru þegar til staðar Suðurnesin eru ekki svæði sem bíður eftir tækifærum. Tækifærin eru þar nú þegar. Verkefnið er að tryggja að samfélagið, menntakerfið og stjórnvöld nýgi tækifærin og fylgi þeim eftir. Annars missum við af þeim. Atvinnulífið á Suðurnesjum þarf að hugsa stærra, ekki aðeins um störfin sem eru til í dag, heldur einnig þau sem geta orðið til á morgun. Nýsköpun þarf að vera hluti af atvinnustefnu svæðisins. Á Suðurnesjum eru einstakar forsendur til að byggja upp frekari verðmætasköpun tengda grænni orku, jarðhita, hátækni, líftækni og hringrásarhagkerfi. Þessar greinar eru framtíðin og Suðurnesin geta verið í fararbroddi. Það þarf þó að vera samræmi milli þessarar framtíðarsýnar og þess sem er gert í dag. Tenging menntunar og atvinnulífs þarf að vera sterkari. Frumkvöðlar og lítil fyrirtæki þurfa betri stuðning. Og hugsunarhátturinn þarf að breytast, frá því að bregðast við aðstæðum yfir í að vera tilbúin. Mannauðurinn er lykillinn En til þess að fleiri geti tekið þátt verðum við líka að horfa á mannauðinn. Þar kemur íslenskan inn í myndina. Á Suðurnesjum er hlutfall innflytjenda meðal þess hæsta á landinu. Þetta fólk er dýrmætur hluti af atvinnulífinu, samfélaginu og framtíð svæðisins. Það er því ástæða til að gera enn betur. Samkvæmt tölum OECD telja aðeins 18 prósent innflytjenda á Íslandi sig tala íslensku vel, á meðan meðaltal OECD-ríkja er 60 prósent. Þetta gefur okkur skýra vísbendingu um hvar tækifærin liggja. Góð íslenskukunnátta er lykill að þátttöku á vinnumarkaði, öryggi á vinnustað, framgangi í starfi og sterkari tengingu við samfélagið. Þegar fólk getur tekið virkan þátt, lært og þróast, eykst verðmætasköpun í samfélaginu öllu. Við eigum að gera það auðveldara fyrir fólk að taka þátt með því að tryggja raunverulegt aðgengi að íslenskunámi samhliða vinnu. Þetta er fjárfesting í fólkinu og í framtíð Suðurnesja. Hvað þarf að gerast? Tvennt þarf að gerast samtímis. Annars vegar þarf að styðja betur við fyrirtæki, frumkvöðla og nýjar hugmyndir. Skapa umhverfi þar sem nýsköpun getur dafnað og þar sem styrkleikar Suðurnesja eru nýttir markvisst. Hins vegar að styðja við fólkið sem á að fylla störfin, vaxa í þeim og verða hluti af íslensku samfélagi til framtíðar. Menntun, íslenskunám og félagsleg þátttaka eru ekki eitthvað sem horfa á sem valkosti. Um er að ræða grundvöll verðmætasköpunar til framtíðar. Nú þarf pólitískan vilja Framsókn vill atvinnustefnu sem byggir á styrk svæðanna sjálfra. Fyrir Suðurnesin þýðir það skýrari stuðning við nýsköpun, betri tengingu menntunar og atvinnulífs og raunverulegar aðgerðir til að allir geti tekið jafnan þátt. Suðurnesin geta verið í forgrunni á mörgum sviðum. Þar eru auðlindirnar, framtakið og fólkið. Það sem vantar er skýrari forgangsröðun og pólitískur vilji til að fylgja eftir, meðal annars í boðaðri atvinnustefnu stjórnvalda. Tækifærin bíða ekki. Við verðum að vera tilbúin til að grípa þau og nýta vel. Höfundur er varaþingmaður Framsóknarflokkurinn í Suðurkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fida Abu Libdeh Framsóknarflokkurinn Mest lesið Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar