Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar 15. október 2026 06:32 Framtíð vinnu og verkalýðsbaráttu er ekki eingöngu yfirskrift á 47. þingi ASÍ, heldur eitt mikilvægasta viðfangsefni Alþýðusambands Íslands næstu árin. Gríðarlegar breytingar eiga sér stað á vinnumarkaði og á sama tíma dynja á hreyfingunni kröfur um að gefa eftir réttindi og baráttutæki í þágu hagsmuna atvinnurekenda og stjórnvalda. Við þessar aðstæður þarf verkalýðshreyfingin að hafa skýra framtíðarsýn, byggða á reynslu fortíðarinnar, skilningi á samtímanum og metnaði til að breyta samfélaginu til hins betra. Sigrar verkalýðshreyfingarinnar eru margir og miklir Við þurfum að byrja á því að horfa til baka og minna okkur á þann gríðarlega ávinning sem verkalýðshreyfingin hefur skilað almenningi á Íslandi. Réttur til launa í orlofi og veikindum, átta stunda vinnudagur, vinnuvernd og uppbygging lífeyriskerfisins og almenna íbúðakerfisins eru aðeins nokkur dæmi um sigra sem hafa lagt grunn að lífskjörum venjulegs fólks. Ekkert af þessu kom af sjálfu sér. Þessi réttindi voru afrakstur áratugalangrar baráttu fólks sem sætti sig ekki við að ríkjandi skipan væri óumbreytanleg. Kröfur sem á sínum tíma þóttu óraunhæfar eða of róttækar eru í dag sjálfsagður hluti af samfélaginu. Það er mikilvæg áminning um hverju samtakamáttur launafólks getur áorkað. Samþjöppun auðs er ógn við almenning En til að móta framtíðina þarf líka að skilja samtímann og það efnahagslega og pólitíska umhverfi sem við lifum og hrærumst í. Auður og völd safnast á sífellt færri hendur og raddir sérhagsmunanna eru margar og háværar. Stórefla þarf hagsmunagæslu launafólks og tryggja að stjórnvöld heyri að minnsta kosti jafnmikið frá launafólki og þeim sem gæta hagsmuna fjármagnsins. Það standa yfir grundvallarbreytingar á vinnumarkaði. Tæknibreytingar breyta því hvernig við vinnum og við hvaða aðstæður. Þessar breytingar fela bæði í sér tækifæri og ógnir. Þær geta skapað ný störf, aukið framleiðni og bætt lífskjör, en þær geta líka aukið ójöfnuð, veikt stöðu launafólks og grafið undan áunnum réttindum. Hvor leiðin verður farin er ekki fyrirfram ákveðið. Svörin er ekki að finna í tækninni Alþjóðavinnumálastofnunin (ILO) telur að um fjórðungur starfa í heiminum sé að einhverju marki útsettur fyrir áhrifum skapandi gervigreindar og hlutfallið sé enn hærra í hátekjulöndum eins og á Íslandi. Það þýðir ekki að fjórðungur starfa muni hverfa, heldur að tæknin geti tekið yfir eða flýtt fyrir tilteknum verkefnum innan þeirra. Áhrifin verða mismunandi eftir atvinnugreinum og starfshópum, en ljóst er að breytingarnar munu snerta stóran hluta vinnumarkaðarins. Þetta vekur grundvallarspurningar. Mun starfsfólki fækka í tilteknum atvinnugreinum og hvað verður þá um það fólk? Hver mun njóta ávinningsins af aukinni framleiðni? Verður hann nýttur til að stytta vinnutíma, bæta kjör og auka lífsgæði eða mun hann fyrst og fremst skila sér í auknum hagnaði fyrirtækja? Hvernig tryggjum við að tæknin bæti störf í stað þess að auka álag, eftirlit og óöryggi starfsfólks? Svörin við þessum spurningum liggja ekki í tækninni sjálfri. Þau ráðast af því hver hefur völdin, hvaða kröfur eru gerðar og hvaða ákvarðanir eru teknar. Rétt eins og verkalýðshreyfingin barðist á sínum tíma fyrir átta stunda vinnudegi þarf hún nú að gera kröfu um að ávinningurinn af tæknibreytingum skili sér til vinnandi fólks. Framfarir eiga ekki aðeins að þjóna þeim sem eiga fyrirtækin, heldur samfélaginu öllu. Stöðnun er ekki valkostur Hér hefur Alþýðusamband Íslands mikilvægu hlutverki að gegna. ASÍ á að vera öflug miðstöð þekkingar, greiningar og stefnumótunar um þróun vinnumarkaðarins. Sambandið þarf að fylgjast náið með breytingum hér heima og erlendis, miðla alþjóðlegri þekkingu og reynslu og skapa vettvang fyrir frjóa umræðu innan hreyfingarinnar. En þekkingin er ekki markmið í sjálfu sér. Hún þarf að nýtast aðildarfélögunum, styrkja baráttu þeirra og verða grunnur að skýrum kröfum og sameiginlegum aðgerðum. Verkalýðshreyfingin má ekki láta öðrum eftir að skilgreina framtíð vinnumarkaðarins. Hún þarf sjálf að setja fram metnaðarfullar kröfur um hvernig við viljum að vinnan, velferðin og samfélagið þróist á komandi áratugum. Kröfur sem byggja á grunngildum hreyfingarinnar en svara jafnframt þörfum og veruleika vinnandi fólks á þessari öld. Stöðnun eða afturhvarf er ekki valkostur. Verkalýðshreyfingin hefur áður sýnt að hún getur breytt samfélaginu og nú þarf hún að gera það aftur. Það er ekki nóg að verja réttindin sem fyrri kynslóðir áunnu okkur. Við þurfum líka að hafa áræðni og metnað til að skapa betri lífskjör fyrir komandi kynslóðir. Við stjórnum okkar eigin framtíð. Höfundur gefur kost á sér til embættis forseta ASÍ á 47. þingi sambandsins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnaldur Grétarsson ASÍ Mest lesið Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Skoðun Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvað viðheldur ójöfnuði milli kynslóða á Íslandi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tökum stjórn á framtíðinni Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar Skoðun Er mikið umframboð á fasteignamarkaði? Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Spilin sem enginn vill fá Sigríður Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Ég er ekki tilbúin að stökkva Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Vöruverðið á vegum úti Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Lífið í Grindavík í dag – þakklæti, óvissa og trú á framtíðina Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hugsum fram í tímann Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nýsköpun er besta byggðastefnan Lilja Björg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Sjá meira
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun
Skoðun Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir skrifar
Skoðun Viðreisn vill raunverulegar forvarnir gegn nikótínneyslu ungmenna Sandra Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Sjáðu þig - Hvers vegna skiptir máli að krabbamein greinist snemma? Nanna Margrét Kristinsdóttir Skoðun
Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange Skoðun
Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson Skoðun