Golf

Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bíl­slysi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods lenti í bílslysi í dag og ekki er vitað um alvarleika meiðsla hans.
Tiger Woods lenti í bílslysi í dag og ekki er vitað um alvarleika meiðsla hans. Getty/James Gilbert

Tiger Woods mun hafa lent í bílslysi í Flórída í dag að því er fram kemur í bandarískum fjölmiðlum en ástand hans er ekki þekkt.

Sjónvarpsstöðin WPTV fær staðfest frá lögreglunni í Martin-sýslu að Woods hafi átt aðild að slysinu. Ekki er vitað um umfang meiðsla hans.

WPTV greinir frá því að búist sé við að lögreglustjórinn John Budensiek muni funda með fréttamönnum klukkan fimm að staðartíma (klukkan níu að íslenskum tíma). Stöðin hefur birt mynd af bíl sem liggur á hliðinni.

Woods slasaðist illa í bílslysi árið 2021. Síðan þá hefur hann spilað á mjög fáum golfmótum, en tilkynnti nýlega að hann væri á batavegi eftir aðgerð og að hann myndi stefna að því að keppa á risamótinu The Masters í apríl.

Fyrr á föstudag greindu nokkrir fjölmiðlar frá því að Woods væri skráður á Opna bandaríska meistaramótið fyrir öldunga í ár.

Woods hefur unnið að endurkomu í keppnisgolf eftir að hafa slitið hásin í mars 2025 og gengist undir bakaðgerð í október. Hann keppti í fyrsta sinn í meira en ár í úrslitum TGL á þriðjudaginn, þar sem lið hans, Jupiter Links GC, tapaði fyrir Los Angeles Golf Club.

Í febrúar 2021 hlaut Woods alvarlega áverka á fótlegg í eins bíls slysi í Suður-Kaliforníu þar sem bíllinn valt nokkrum sinnum og hann festist í honum. 

Hann fór síðar í aðgerð vegna „opinna brota“ á neðri hluta hægri fótleggs, þar sem nagli var settur í sköflunginn og skrúfur og pinnar settir í fót og ökkla í bráðaaðgerð. Hann fór í að minnsta kosti eina aðgerð til viðbótar í apríl 2023 vegna áverka úr slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×