Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn ómeiddur Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. mars 2026 12:15 Bílinn valt en Tiger Woods slapp ómeiddur. getty Golfgoðsögnin Tiger Woods varð valdur að bílslysi í fjórða sinn á ferlinum í gærkvöldi. Hann getur þó prísað sig sælan að hafa sloppið ómeiddur í þetta sinn.
Woods er grunaður um að hafa ekið undir áhrifum lyfja þegar hann reyndi að taka fram úr öðrum ökumanni í Flórída í gær, með þeim afleiðingum að bílarnir rákust saman. Bíllinn sem Woods keyrði í gærkvöldi valt og hann þurfti að skríða út um hurðina farþegamegin en slapp alveg ómeiddur að sögn lögreglu. Hann var þá tekinn í gæsluvarðhald en hefur nú verið sleppt gegn tryggingu. Tiger Woods var ekið burt af lögreglustöðinni í gærkvöldi. Joe Raedle/Getty Images Þetta var í fjórða sinn sem Tiger Woods veldur bílslysi en hin þrjú slysin hafa sett mikið mark á líf hans og feril sem atvinnumanns í golfi. 2009: Tiger klessir á brunahana Nóttina eftir Þakkagjörðarhátíðina í Bandaríkjunum árið 2009 hrundi líf Tiger Woods algjörlega. Hann hafði verið að lifa tvöföldu lífi og ríghaldið framhjá eiginkonu sinni en allt komst þetta upp eftir bílslys þar sem Woods klessti á brunahana. Woods var á þeim tíma einn allra vinsælasti íþróttamaður heims, eftir að hafa unnið 14 risamót í golfi frá 1997 til 2008. Hann slasaðist alvarlega í slysinu, tók sér langa pásu frá golfi og hefur aðeins unnið eitt risamót síðan, Masters 2019. 2017: Tiger sofnar undir stýri Þann 29. maí árið 2017 lenti Tiger Woods í öðru alvarlegu bílslysi, þegar hann ók undir áhrifum kvíðalyfja, svefnlyfja og kannabisefna. Woods hafði orðið háður lyfjunum eftir bakaðgerð en leitaði sér hjálpar eftir handtökuna og fór í meðferð. 2021: Tiger í lífshættu eftir alvarlegt bílslys Þann 23. febrúar árið 2021 var Tiger Woods á rúmlega tvöföldum leyfilegum hámarkshraða þegar bíll hans valt af veginum. Björgunaraðilar þurftu að klippa Woods út úr bílnum sem gjör eyðilagðist. Rannsókn leiddi síðar í ljós að Woods hefði óvart stigið á bensíngjöfina þegar hann ætlaði að stíga á bremsupedalann. Tómt lyfjaglas fannst í bílnum sem Woods keyrði en ekkert óeðlilegt fannst í þvagsýni. Woods slasaðist alvarlega og gekkst undir nokkrar aðgerðir, eftir að hafa lent í opnu beinbroti á fætinum og mölbrotið hinn ökklann. Hefur glímt við eftirköst síðan 2021 Öll þessi slys og áverkarnir sem Tiger Woods hlaut í þeim hafa haft mikil áhrif á golfferilinn. Síðan hann lenti í slysinu árið 2021 hefur hann verið sárverkjaður í þau fáu skipti sem hann hefur getað spilað. Woods sneri aftur til keppni á Masters-mótinu árið 2022 og náði í gegnum niðurskurð en hafnaði í 47. sætinu. Síðar sama ár dró hann sig úr keppni á PGA-meistaramótinu og sömu sögu var að segja af Masters-mótinu árið 2023. Hann keppti síðast á The Open árið 2024 en síðan þá hefur hann gengist undir aðgerð í baki og slitið hásin. Fyrr í vikunni sneri Woods loks aftur á golfvöllinn eftir rúmlega árs fjarveru. Endurkoman var þó ekkert sérstaklega ánægjuleg því hinn fimmtugi Tiger tapaði stórt. Nú á eftir að koma í ljós hvort hann stefni enn á þátttöku á Masters-mótinu eftir tvær vikur en Woods er allavega ekki slasaður eftir bílslysið í gærkvöldi.
Golf Bílslys Tigers Woods Mest lesið „Hann lýgur bara til að komast undan þessu“ Handbolti Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Golf Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golf Tvítug knattspyrnukona lést Fótbolti Sveindís meiddist næstum því þegar hún fagnaði glæsimarki Fótbolti Vill ekki koma heim með „kúkinn á bakinu“ eftir dvöl hjá Barcelona Handbolti Viðar með þrennu í fyrri hálfleik í bikarsigri Íslenski boltinn Selur húsið sitt til að komast á HM í fótbolta Fótbolti Antonelli á ráspól en Verstappen brjálaður út í bílinn Formúla 1 Gulir og glaðir orðnir fjólubláir aftur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Fjórða bílslysið á ferlinum en slapp í fyrsta sinn óslasaður Tiger Woods er ómeiddur en keyrði undir áhrifum Golfgoðsögnin Tiger Woods lenti í bílslysi Tiger fékk skell í endurkomunni en útilokar ekki þátttöku á Masters Tiger snýr aftur eftir þrettán mánaða fjarveru Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Guðrún Brá náði þriðja sætinu í Suður-Afríku Guðrún Brá í góðri stöðu eftir einn besta hringinn á ferlinum Leitaði í uppskriftabók mömmu fyrir Masters Tiger Woods gefur ekkert upp ennþá Sló í fugl en það dugði ekki til Åberg spilaði rassinn úr buxunum og Young vann Players Åberg leiðir með þremur höggum fyrir lokahring Players meistaramótsins Tveir látnir eftir skotárás nærri Players meistaramótinu Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Hulda Clara best í lokin og grátlega nærri bráðabana Hætti keppni á Players-mótinu eftir aðeins eina holu „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Gæti misst af titilvörninni Lyftuklaufinn útskrifaður af sjúkrahúsi og segir kraftaverk að hann geti gengið Luke Donald getur skrifað Ryder-söguna en verður það á móti Tiger? Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira