Leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. mars 2026 13:39 Tvær rúður voru brotnar. Samsett Brotist var inn á pítsastaðinn Pizza 107 snemma í morgun og vínflöskum stolið. Eigandi staðarins, sem hefur séð upptöku af innbrotinu, telur innbrotið hafa verið planað í þaula. Það sé leiðinlegt þegar ráðist er á „litla manninn á horninu“ og hefði hann frekar lánað viðkomandi nokkrar vínflöskur. „
Þetta er ömurlegt að koma að þessu svona og ekki ein rúða brotin heldur tvær, önnur er alveg glæný. Þannig auðvitað er þetta leiðinlegt,“ segir Valgeir Gunnarsson, eigandi Pizza 107. Greint var frá því í færslu á Facebook að brotist hefði verið inn í pítsastaðinn Pizza 107 og nokkrar vínflöskur teknar. Valgeir segir að glerbrot hafi verið út um alla búðina. Eigendurnir vörðu morgninum í að djúpahreinsa staðinn. „Við erum með myndband af þessu og þetta lítur út fyrir að vera einstaklingur og vínið hefur klárast í partýinu og hann ætlað að redda sér meira,“ segir Valgeir en brotist var inn klukkan sjö í morgun. Þetta er í annað skipti sem brotist hefur verið inn í Pizza 107 og segir Valgeir afar leiðinlegt að vakna við að búið sé að brjótast inn. Þetta innbrot leit út fyrir að vera planað. Þunnt lag af glerbrotum var yfir öllu.Pizza 107 „Þessi lítur út fyrir að vera þokkalega unglegur, kemur á hlaupahjóli og er með stein í vasanum. Hann kemur út af staðnum með fullan kassa af vínflöskum. Þetta var planað. Þetta er ekki einhver ölvaður á leiðinni heim úr bænum og sér að það eru flöskur, þetta er einhver sem kemur, býr kannski í hverfinu eða nálægt og hefur verið þaulskipulagt þar sem hann kom með steininn með sér.“ Hefði frekar lánað honum flöskur Hann segir það lán að einungis nokkrum vínflöskum hafi verið stolið í stað afgreiðslukassans eða posanna þar sem þá hefði ekki verið hægt að opna staðinn núna í hádeginu. „Það er óskert starfsemi en aðkoman er svolítið ljót því það er búið að setja plötur fyrir rúðurnar. Ég var að auglýsa eftir einhverjum listamanni að koma og skreyta þessar plötur. Við erum litli maðurinn á horninu og ég veit að Vesturbæingum þykir vænt um þennan stað.“ Valgeir segir að hann hefði frekar viljað lána viðkomandi tvær til þrjár í flöskur í staðinn fyrir að þurfa að eiga við brotnar rúður. „Ég vorkenni aðilanum sem gerði þetta að vera í þessari stöðu að þurfa að skemma hjá öðru fólki.“
Lögreglumál Reykjavík Veitingastaðir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Erlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent Fleiri fréttir Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Sjá meira