Ríkisstjórn útúrsnúninga? Helga Rósa Másdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 29. mars 2026 17:34 Kæra ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, ef þið skiljið ekki hvaða réttindi þið eruð að taka – þá ættuð þið ekki að vera að taka þau. Nálgun ykkar á umræðuna um afnám áminningarskyldu hefur einkennst af orðaflaumi. Sumt er rétt. Margt er útúrsnúningur. Annað einfaldlega rangt. Kjarni breytinganna Ríkisstjórnin segir það ekki vera markmið sitt að rýra réttindi. Staðreyndin er sú að það á að afnema lögbundna skyldu um að ríkisstarfsmönnum sé gefið tækifæri til úrbóta áður en þeim er sagt upp. Það eru réttindi. Að taka þau er réttindaskerðing. Að kalla það „mannauðsstjórnun“ breytir því ekki. Ríkisstjórnin bendir á að uppsagnir verði áfram stjórnvaldsákvarðanir. Það er rétt – en það er ekki það sem þetta snýst um. Spurningin er hvað þarf að gerast áður en ákvörðun um uppsögn er tekin. Í dag ber stjórnendum skylda til að veita áminningu og gefa raunhæft tækifæri til úrbóta áður en það getur komið til uppsagnar. Sú skylda myndi hverfa. Í staðinn kæmu „leiðbeinandi samtöl“ sem stjórnandi getur átt – eða sleppt. Þar liggur munurinn. Það þarf ekki lagabreytingu til að stuðla að því að leiðbeinandi samtöl séu tekin – þau eru nú þegar hluti af mannauðsstjórnun víða. Áminning er svo næsta mögulega skref á eftir því. Skortur á mati á áhrifum Ríkisstjórnin segir að þetta muni ekki hafa áhrif á 99,99% starfsfólks og að fólk fái áfram tækifæri til að bæta sig. Mögulega – en það verður ekki lengur tryggt. Það verður í höndum hvers stjórnanda. Þess vegna er þetta staðlaus staðhæfing. Því hefur líka verið haldið fram af ríkisstjórninni að áminningarskyldan sé „stíf“ eða „einhliða,“ og gefið til kynna að það sé verið að gera fólki greiða með því að taka hana. Raunin er sú að áminningarskylda er öryggisnet. Markmið hennar er að tryggja að ákvarðanir séu málefnalegar, skráðar og fyrirsjáanlegar. Og hún er mun mildara úrræði en að farið sé beint í uppsögn. Sambærileg vernd er viðtekin á almennum og opinberum vinnumarkaði víða erlendis. Ríkisstjórnin segist leggja áherslu á mannauðsstjórnun. Raunin er sú að ekki allir vinnustaðir eru fyrirmyndar vinnustaðir líkt og sjá má af könnunum vegna Stofnun ársins. Við þekkjum mörg dæmi um skort á þekkingu stjórnanda eða stuðningi til hans og – í verstu tilfellum – harðræði, ákvarðanir sem byggjast á geðþótta eða ógnarstjórnun. Þar sem valdaójafnvægi er slíkt að fólk þorir ekki einu sinni að krefjast réttra launa, hvað þá benda á það sem betur má fara. Það er víðar en ykkur grunar. Í slíku umhverfi skiptir skýr lagaleg vernd máli. Varðandi EKKO málin höfum við bent á að skerðing réttinda gæti líka orðið til þess að veikja enn frekar stöðu þolenda. Sömuleiðis að stjórnendur hafa nú þegar heimildir og skyldu til tafarlausra viðbragða ef slík mál koma upp. Við styðjum breytingar til að skýra það enn frekar fyrir þessi afmörkuðu mál og höfum komið því skýrt á framfæri. En það verður ekki gert með því að veikja réttindi allra. Styrkleiki að skipta um kúrs Ríkisstjórnin hefur líka afgreitt gagnrýni sem misskilning í stað þess að svara henni. Það er klassísk afvegaleiðing þegar maður hefur ekki góðan málstað að verja. Nú er mál að linni og ríkisstjórnin dragi frumvarpið til baka. Að lokum viljum við benda á að það er ekki góð mannauðsstjórnun að boða fækkun um 200 stöðugildi hjá ríkinu og vera svo loðin og missaga í svörum um hvernig það verði gert eða hvar. Það skapar ótta og óvissu – ekki traust. Starfsfólk á skilið þá lágmarksvirðingu að heyra fyrst af starfsmissi frá sínum yfirmanni og skýr og knýjandi rök búi að baki en ekki kreddur um fjölda eða fjölgun ríkisstarfsmanna. Þetta snýst ekki um tölur á blaði, heldur fólk – líðan þeirra, lífsviðurværi og starfsumhverfi þeirra sem starfa í þjónustu ríkisins – og á því berið þið ábyrgð. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur hvað ríkisstarfsfólki finnst um þessi áform á https://godaminning.is/ Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sonja Ýr Þorbergsdóttir Magnús Þór Jónsson Helga Rósa Másdóttir Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Nei fyrir komandi kynslóðir Ingibjörg H. Sverrisdóttir skrifar Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar