Skoðun

Hvernig viljum við eldast?

Janus Guðlaugsson skrifar

Íslendingum á eftir að fjölga verulega í eldri aldurshópum á næstu áratugum. Hægt er að bregðast við þessari fjölgun með því að byggja enn fleiri hjúkrunarrými og stækka heilbrigðiskerfið enn frekar. En það er aðeins hluti lausnarinnar. Hægt er að fjárfesta í heilsu fólksins áður en það veikist eða þarf á umönnun að halda. Þannig heldur það heilsu sinni og sjálfstæði lengur. Lífsstíll tengdur kyrrsetu og ómarkvissri næringu ýtir aftur á móti undir langvinna sjúkdóma og dregur úr lífsgæðum.

Langvinnir sjúkdómar

Við getum ekki stöðvað tímann en við getum haft veruleg áhrif á það hvernig við eldumst. Við getum stundað styrktarþjálfun til að halda okkar vöðvamassa eða bæta hann, hreyft okkur reglulega og hugað vel að próteinríkri og uppbyggjandi næringu. Markviss hreyfing hefur einnig fyrirbyggjandi áhrif á heilabilun, svo það er eftir ýmsu að sækjast.

Hannes Hrafnkelsson, heimilislæknir á Seltjarnarnesi, hittir naglann á höfuðið í ritstjórnargrein Læknablaðsins fyrir nokkrum árum þegar hann ræðir um langvinna sjúkdóma: „Það er ljóst að þótt við fáum nýjan spítala, betri greiningartæki og lyf sem virka betur og hafa færri aukaverkanir, mun það hafa lítil áhrif á tíðni og nýgengi langvinnra sjúkdóma. Ef fækka á langvinnum sjúkdómum og bæta lífsgæði verður að ráðast að orsökunum. Þannig er hægt að vinna stóru sigrana. Þessir sjúkdómar valda því að stór hluti lífeyrisþega mun ekki lifa við heilbrigði síðustu áratugi lífsins, heldur lifa með einum eða fleiri langvinnum sjúkdómi.“

Hvað kostar það samfélagið að fjárfesta ekki í heilsu fólks áður en það veikist?

Ef rekstrarkostnaður vegna eins einstaklings á dvalar- eða hjúkrunarheimili er um 20 milljónir króna á ári, þá sýnir einfalt dæmi hversu stórar fjárhæðir eru undir. Ef markvissar heilsutengdar forvarnir gætu frestað innlögn á aðeins 1.000 einstaklingum í eitt ár fyrir slíka þjónustu þá væri stærðargráða mögulegs frestaðs kostnaðar um 20 milljarðar króna á aðeins einu ári fyrir samfélagið.

Þetta er ekki fullyrðing um að hægt sé að spara 20 milljarða með einni heilsueflingaráætlun. Kostnaður hverfur ekki sjálfkrafa og fólk þarf áfram á heilbrigðisþjónustu að halda. En dæmið sýnir stærðargráðuna innan heilbrigðiskerfisins. Fyrir slíkan ávinning mætti styðja betur við heilsutengdar forvarnir af yfirvöldum. Til lengri tíma borgar forvarnarferlið sig sjálft og gott betur en það.

Að fjárfesta í heilsutengdum forvörnum

Samkvæmt nýlegri skýrslu OECD (2026) hefur Ísland varið tiltölulega lágu hlutfalli heilbrigðisútgjalda í heilsutengdar forvarnir eða um 2,1% samanborið við um 3,4% eða meira í öðrum löndum OECD. Það hlýtur að vekja upp spurningar þegar við verjum stórum fjárhæðum í að meðhöndla sjúkdóma en sinnum ekki nægilega markvisst forvörnum tengdum áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma. Stór hluti langvinnra sjúkdóma tengist áhættuþáttum sem hægt er að hafa áhrif á með breyttum lífsstíl eins og að hreyfa sig meira og nærast betur. Þá hafa reykingar og ofneysla áfengis sín neikvæðu áhrif. Þessir þættir eru ekki einstaklingsbundin vandamál heldur samfélagslegt viðfangsefni fyrir lýðheilsu landsmanna.

Forvarnir eru fjárfesting, ekki aðeins kostnaður

Nýleg sviðsmynd OECD frá árinu 2026 um Ísland sýnir að ef hægt væri að bæta stöðu þjóðarinnar gagnvart lykiláhættuþáttum langvinnra sjúkdóma gæti það skilað miklum heilsufarslegum og efnahagslegum ávinningi, sjá dæmið hér að framan. Meðal þess sem kemur fram í skýrslu OECD kæmu fram færri tilfelli langvinnra sjúkdóma, lægri ótímabær dánartíðni, minni árleg heilbrigðisútgjöld og aukin þátttaka á vinnumarkaði.

Fjölgun í eldri aldurshópum

Íslendingum eldri en 65 ára mun fjölga verulega á næstu áratugum. Vegna þessara lýðfræðilegu breytinga verður það enn mikilvægara að landsmenn búi við góða heilsu. Samkvæmt mannfjöldaspám Hagstofunnar sem liggja fyrir mun fjöldi Íslendinga 65 ára og eldri aukast verulega á næstu áratugum eða úr um 64 þúsund í nærri 80 þúsund eftir tíu ár, um 97 þúsund eftir tuttugu ár og í um 160 þúsund árið 2066 en það er um 150% fjölgun í eldri aldurshópum. Hvernig á samfélagið að bregðast við þessum lýðfræðilegu breytingum?

Það er augljóst að byggja þarf upp nægilegt framboð af hjúkrunarrýmum og annarri heilbrigðisþjónustu. En ef við bregðumst við öldrun þjóðarinnar fyrst og fremst með því að byggja fleiri hjúkrunarheimili og stækka spítalana erum við að stórum hluta að bregðast við afleiðingum vandans en ekki orsökum hans.

Það var ánægjulegt að núverandi fjármála- og efnahgasráðherra landsins, Daði Már Kristófersson, hafi rætt svo afdráttarlaust um ávinning af heilsutengdum forvörnum í viðtali við fréttamenn RÚV fyrir stuttu. Það væri óskandi fyrir lýðheilsu landsmanna en ekki síður efnahag þjóðarinnar og heilbrigðiskerfið að orðum ráðherra væri fylgt eftir með markvissri framkvæmd.

Við höfum ekki efni á að bíða

Umræðan og aðgerðir vegna öldrun þjóðarinnar þarf að eflast. Við eigum ekki aðeins að spyrja: Hvað kostar að meðhöndla fólk þegar það veikist? Við eigum einnig að spyrja: Hvað kostar að gera ekki neitt áður en fólk veikist? Íslendingar þurfa áfram góð sjúkrahús, hjúkrunarheimili og öflugt heilbrigðiskerfi. Samhliða því þarf að byggja upp öflugt kerfi gagnreyndra aðferða til heilsueflingar.

Hvernig viljum við eldast? Það er ekki nóg að ég og þú svörum þessari spurningu heldur þurfa stjórnvöld einnig að svara henni. Það er vitað að eldri Íslendingum mun fjölga verulega á næstu áratugum. Því er kominn tími til að fjárfesta markvisst í heilsu landsmanna áður en veikindin koma fram. Við eigum ekki aðeins að fjármagna kerfið sem tekur við fólki þegar það veikist. Við eigum að fjármagna leiðina sem hjálpar fólki að halda góðri heilsu lengur.

Höfundur er með doktorspróf í íþótta- og heilsufræðum og hefur sinnt gagnreyndum heilsutengdum forvörnum um 25 ára skeið og fyrir Janus heilsueflingu í 10 ár. Þar áður starfaði höfundur sem námstjóri í íþróttum við menntamálaráðuneytið auk þess að starfa sem kennari og fræðimaður við Háskóla Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×