Er ekki komið nóg af þessum mannréttindum? Olga Margrét Cilia skrifar 29. mars 2026 22:31 Ég vil byrja á því að þakka XD og XM fyrir að setja mannréttindi á dagskrá fyrir kosningabaráttuna í borginni. Sérstaklega vil ég þakka Brynjari Níelssyni og Jóni Gunnarssyni fyrir að minna á að það eru Píratar sem hafa hvað mest talað fyrir mannréttindum í borginni. Við höfum ekki verið múlbundin þar. Mannréttindi þurfa að vera grunnhugsun í allri ákvarðanatöku stjórnvalda. Mannréttindi tryggja að hver einstaklingur njóti lágmarksverndar frá misbeitingu valds og eru forsenda réttarríkis og lýðræðis. Mannréttindi eru ekki upp á punt og það er fáránlegt að tala um að búið sé að ganga of langt í réttindavernd. Um leið og byrjað er að draga úr mannréttindum einhvers hóps fólks þá fylgja hin í kjölfarið. Hlutverk stjórnvalda er ekki að takmarka frelsi borgaranna heldur að vernda það. Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar byggir fyrst og fremst á jafnræði og banni við mismunun. Það eru ekki óþörf stefnumál. Það snýst um að hver og einn einstaklingur megi lifa sínu lífi á eigin forsendum. Það þýðir ekki að einn hópur er að taka eitthvað frá öðrum hópum heldur þýðir það að allir einstaklingar eru jafnir og hafa jafn mikinn rétt til að lifa eigin lífi. Ef við lítum til Bandaríkjanna, líkt og Miðflokkurinn hefur verið að gera síðustu ár, þá hafa þar ýmis réttindi veikst eða verið „dregin til baka“. Sem dæmi má nefna réttinn til þungunarrofs sem er nú ekki lengur verndaður á landsvísu í Bandaríkjunum og í kjölfarið hafa mörg ríki sett mjög strangar takmarkanir eða bann við þungunarrofi. Þetta hefur haft gríðarlega alvarlegar og lífshættulegar afleiðingar í för með sér fyrir fólk sem verður þungað og vill af einhverjum ástæðum, læknisfræðilegum eða félagslegum, rjúfa þungun en getur það ekki því að dregið hefur verið úr réttindum þeirra til að stjórna eigin lífi og líkama. Svo skulum við ræða aðeins fólkið sem lætur Miðflokksmenn gráta af heift. Í Mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar segir að óheimilt er að mismuna fólki vegna kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar eða kyneinkenna. Það að fólk vilji fá að vera til á eigin forsendum og njóta verndar í samfélaginu sem við ÖLL búum í gerir suma einstaklinga alveg brjálaða. Í Bandaríkjunum hefur verið dregið úr réttindavernd trans fólks síðustu ár. Réttindi sem var búið að berjast fyrir eru tekin í burtu með nánast einu pennastriki og samhliða aukast fordómar, hatursorðræða og hatursglæpir. Það verður hættulegt að vera trans manneskja í heimi þar sem valdhafar draga úr réttindum og gera lítið úr lífi tiltekins hóps opinberlega. Slíkt eigum við aldrei að láta líðast! Þegar samfélag byrjar á því að taka einn hóp út fyrir sviga þá fylgja hinir í kjölfarið. Mannréttindastefna Reykjavíkurborgar tryggir líka vernd vegna aldurs, fötlunar, heilsufars og líkamlegs atgervis, holdarfars og líkamsgerðar, trúarbragða, lífs-, og stjórnmálaskoðana og trúleysis, uppruna og þjóðernis og viðurkennir rétt sérhverrar manneskju til að búa í heilnæmu umhverfi og til að búa við frið og öryggi. Þegar talað er gegn mannréttindum eins hóps er verið að tala gegn mannréttindum allra. Mannréttindi eru ekki valkvæð og þegar dregið er úr mannréttindum er ekki verið að leysa vandamál heldur færa vald frá einstaklingum til valdhafa. Að réttlæta skerðingu mannréttinda með skammtímasjónarmiðum líkt og að spara pening er hættuleg skammsýni. Það er hættulegt að tala gegn mannréttindum og það er enn þá hættulegra ef við hin sitjum hjá og gerum ekki neitt. Það er aldrei nóg komið af mannréttindum. Við viljum helst bara meira og meira. Höfundur er á lista Pírata í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Skoðun Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar