Klúðrið hjá Guði Þröstur Hrafnkelsson skrifar 7. apríl 2026 07:50 Nú standa fermingar yfir á Íslandi enn eitt árið. Þá eru margir krakkar að spá hvort þau trúi á Guð og Jesú. Mig langar aðeins að staldra við á þessu augnabliki og rýna aðeins í stöðuna hjá Guði. Kíkja við í kaffi hjá honum og sjá hvernig hann hefur það. Mér finnst eins og enginn spái í því – fólk er of upptekið af sjálfu sér. Öllum er sama um Guð kallinn og hvað hann er að ganga í gegnum. Hvaða Guð? Það er talið að fjöldi fullyrðinga um tilvist Guðs er í kringum 3000. Allt frá Óðni, sólguðinum Ra, Yahweh, Seif og Indra. Það er eins og mannfólk geti ekki hætt að búa til sögur af Guðum! Í þessum pistli ætla ég að einblína á hinn Kristna Guð sem er einnig oft nefndur Yahweh. Ég mun einfaldlega vísa til hans sem Guð. Þetta er sem sagt Guð Biblíunnar. Bókin sem allir Íslendingar eiga en sárafáir kíkja í að lesa. Aðrar forsendur Við göngum út frá því að Guð sé eins og þjóðkirkjan boðar hann; almáttugur, eldklár, kærleiksríkur, kann öll tungumál heimsins og fylgist náið með okkur mannfólkinu. Fyrsta verk Guðs Fyrsta verk Guðs var augljóslega að skapa heiminn í atburði sem kallast miklihvellur. Samkvæmt þjóðkirkjunni bjó Guð til heiminn bara sérstaklega fyrir okkur, þ.e. til að eiga í samfélagi við menn. En við heppinn! Til að þessi heimur gæti haft líf í sér þurfti Guð að leggja sig mikið fram við að hanna heiminn, hvers konar efni væri til og hvernig það hagaði sér. Allir eðlisfræðilegir fastar þurfa að vera fínstilltir hárrétt svo að dæmið geti gengið upp. En búmm heimurinn varð til með sínum kostum og jú, nóg af göllum. Næsta verkefni Guðs var að bíða í ca. 14 milljarða ára eftir að við urðum til. Guð hlýtur að hafa verið ansi spenntur að byrja að eiga í samfélagi við okkur mennina eftir svona langa bið. Hann hefur því haft drjúgan tíma til að hugleiða hvernig hann vildi eiga í samfélagi við okkur. Plan hans var eflaust úthugsað í þaula þegar hann hófst handa. Plan sem ætti að svínvirka. Samskiptasnillingurinn Guð Þegar Guð ákvað að eiga í samskiptum við menn fyrir nokkrum árþúsundum hefur hann eflaust íhugað hvaða leiðir voru í boði. Ein sem stóð honum til boða var hreinlega að stilla upp góðum hátalara fyrir ofan hvert þorp og bæ á Jörðu og halda ræðu sína á því tungumáli sem hentaði hverjum bæ. Myndi taka kannski klukkutíma og á þeim tíma myndi hann ná að: Sanna tilvist sína með óyggjandi hætti til alls mannfólks á Jörðinni Koma sínum skilaboðum áleiðis til allra manna skýrt og greinilega Hann gæti meira segja verið fancy og haft „Q & A“ í framhaldi ef eitthvað væri óskýrt svo boðskapurinn komist 100% til skila. Auðvitað myndi Guð síðan tryggja að öll rit sem voru skrifuð á næstu vikum um þetta væru algjörlega rétt. Fjandinn hafi það, hann gæti skrifað ritinn sjálfur og látið þau svífa rólega af himnum ofan og látið eina bók lenda fyrir framan útidyrahurðina á hverju heimili í heiminum. En við vitum að Guð valdi ekki þessa leið. Samkvæmt Biblíunni var Guð meira fyrir spjall í einrúmi. Skrítið val þar sem hann vissi að manneskjur geta séð og heyrt ofsjónir. Hver er arfleifð Guðs? Eftir að hafa hannað og búið til heim, beðið í freakin‘ 14 milljarða ára, átt samskipti við menn í árþúsundir að þá er niðurstaðan af öllu þessu erfiði eitt stykki bók sem kallast Biblían. Það er legacy-ið hans Guðs. Þessi bók var 14 milljarðar ára í vinnslu en hér er hún í öllu sínu veldi, þýdd og prentuð á öllum tungumálum heimsins og sú allra vinsælasta af öllum útgefnum ritum, EVER. Nær alltaf þegar maður heyrir um þessa bók kemur það frá presti og þá er það ævinlega eitthvað fallegt og jákvætt, enda er Guð jú svo kærleiksríkur. Ef maður hættir að hlusta á prestinn og tekur doðrantinn upp sjálfur blasir við önnur sýn. Bókin er full af rangfærslum, s.s. um upphaf og aldur alheimsins, Adam og Evu og Nóaflóðið. Ofan á þetta er hún stútfull af ofbeldi og kvenfyrirlitningu. Neðst eru nokkur vers upp úr Biblíunni mér til stuðnings - eitthvað sem fermingarbörn og foreldrar þeirra hafa gott af því að lesa til að fá smjörþef af þeirri hlið Biblíunnar. Maður á jú að rýna í öll mál frá báðum hliðum. Tökum núna stöðuna á Guði og hans vegferð Eins og staðan er í dag aðhyllist um 30% mannfólks kristni. Ef einhver fær 3 í einkunn í prófi er það falleinkunn. En það er svo miklu verra en það. Þessi 30% eru afar ósammála um hvað er satt innan sinna eigin trúar. Atriði eins og; er samkynhneigð synd? Hvað er Jörðin gömul? Er þróunarkenningin sönn? Er helvíti til? Hverjir komast til himnaríkis? Allt þetta eru atriði sem kristið fólk er ósammála um. Meira að segja prestar þjóðkirkjunnar, sem vinna í sama trúfélagi í sama landi með sömu menntun á sama tíma, eru ósammála hvað og hvað er ekki satt! Fyrir almáttuga veru er þetta afleidd tölfræði. Ég get því ekki ímyndað mér að Guð sé þarna uppi að horfa niður á okkur og finnist 14 milljarða ára planið sitt ganga smurt. Með svona lélega tölfræði ætti hann að vera brjálaður. Ef ætlunarverk hans var að miðla einhverju til mannkynsins, hefur honum mistekist hrikalega. Hvernig gat hann klúðrað hlutunum svona? Ætti ekki kærleiksrík og almáttug vera að geta leiðbeint okkur fyrir árþúsundum á þann veg að það hefði ýtt undir kynjajafnrétti, lagt fram andstöðu við þrælahald, ýtt undir viðurkenningu á hinsegin fólki, talað sterkt gegn öllu ofbeldi gagnvart börnum og kannski upphefja menntun og vísindi í riti sem allir gætu treyst að vera satt? Hefði ekki raunverulegur Guð gert það? Hér eru að lokum nokkrar setningar úr Biblíunni eins og ég lofaði. Guð drepur 42 drengi: Þaðan hélt hann [Elísa] til Betel. Og er hann gekk upp veginn, gengu smásveinar út úr borginni, hæddu hann og kölluðu til hans: „Kom hingað, skalli! Kom hingað, skalli!“ Sneri hann sér þá við, og er hann sá þá, formælti hann þeim í nafni Drottins. Þá komu tvær birnur út úr skóginum og rifu í sundur fjörutíu og tvo af drengjunum. Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein. Guð hefur sagt: „Heiðra föður þinn og móður og Hver sem formælir föður eða móður, skal dauða deyja.“ „Þið konur, verið undirgefnar mönnum ykkar eins og Drottni.“ „Hafi kona alið sveinbarn skal hún vera óhrein í sjö daga... Síðan skal hún vera heima í þrjátíu og þrjá daga meðan blóð hennar hreinsast... En ali hún meybarn skal hún vera óhrein í tvær vikur, eins og þegar hún hefur klæðaföll, og vera heima í sextíu og sex daga meðan blóð hennar hreinsast.“ „Leggist karlmaður með karlmanni eins og leggst með konu fremja þeir báðir viðurstyggð. Þeir skulu líflátnir, dauði þeirra sé á þeirra eigin ábyrgð.“ „Ef einhver slær þræl sinn eða ambátt með staf svo að þau deyja undir hendi hans, þá skal þess hefnt. En lifi þau einn dag eða tvo skal þess ekki hefnt því að þau eru eign hans.“ Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Trúmál Mest lesið Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo Skoðun Skoðun Skoðun Bumbubað Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífseigla gæskunnar Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hvað gerir Íslendinga einstaka? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Vel upplýst þjóð neitar að láta spila með sig Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Börn á krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Háannatími má ekki vera griðland fyrir leyfislausan rekstur Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvort hefja eigi inngöngu í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu rík erum við í raun? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Svona gera menn ekki Halldór Auðar Svansson skrifar Skoðun Námsefnisgerð: Nýtum það sem þegar er til Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Jájájá ... dæsti ráðherrann Kristín Helga Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Útlendingarnir sem við Íslendingar erum sjálf Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Látum hina borga Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Sjá meira
Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Ísland á auðlindir sem Danir eiga ekki – hvers vegna eru kjörin betri í Danmörku? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Sannleikurinn um íslenska kvótakerfið: Þegar almannaeign varð að einkavæddum ránsfengi Sigurður Sigurðsson Skoðun
Með ólögmætum hætti streyma viðkvæmustu persónuupplýsingar krabbameinssjúklinga til Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun