Holland í sókn en stjórnmálin hikandi Eyþór Eðvarðsson skrifar 7. apríl 2026 09:17 Stór hluti efnahags Hollands byggir á orkufrekum iðnaði, alþjóðlegum flutningum og öflugum landbúnaði, sem gerir umbreytingu þess í loftslagsmálum sérstaklega áhugaverða. Heildarlosun Hollands er í dag um 130-140 milljónir tonna CO₂-ígilda á ári og hefur dregist saman um 35-40% frá 1990. Á hvern íbúa er losun 7-8 tonn, sem er svipað og meðaltal í Evrópusambandinu. Til samanburðar er losun á Íslandi um 12 tonn á mann og hækkar í 30-35 tonn þegar landnotkun er talin með. Samkvæmt alþjóðlega samanburðarlistanum Climate Change Performance Index (CCPI), fyrir árið 2026 er Holland í 10. sæti þeirra ríkja sem standa sig best í loftslagsmálum. Ísland er ekki með á listanum vegna smæðar en myndi raðast neðarlega. Þrátt fyrir góðan árangur telur PBL Netherlands Environmental Assessment Agency að ólíklegt sé að 55% samdráttarmarkmið ESB fyrir 2030 náist en spár gera ráð fyrir 45-53%. Dómstólar breyttu leiknum Árið 2019 féll sögulegur dómur í máli Urgenda gegn ríki Hollands þar sem hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið bæri lagalega skyldu til að vernda borgara gegn loftslagsbreytingum og að hraða þyrfti samdrætti. Þessi dómur markaði vendipunkt þar sem loftslagsmál urðu ekki lengur aðeins pólitískt val heldur einnig lagaleg skylda. Kolefnisverð og umbreyting iðnaðar Holland er hluti af viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir (ETS) en leggur auk þess viðbótar kolefnisgjöld á iðnað. Stjórnvöld hafa þannig sent skýr skilaboð og iðnaðurinn hefur aukið fjárfestingar í rafvæðingu, vetnistækni og kolefnisföngun. Tekjur af uppboði losunarheimilda í ETS-kerfinu renna að stórum hluta í grænar fjárfestingar og orkuskipti. En ólíkt flestum Evrópulöndum hefur Holland þróað öflugt stuðningskerfi sem byggir á að forgangsraða hagkvæmustu CO₂-lækkunarleiðunum fyrst (€/tonn CO₂). Orkuskipti í samgöngum á landi á réttri leið Orkuskipti í samgöngum hafa gengið vel en um 40% nýskráðra bíla eru hreinir rafbílar. Þetta er afrakstur markvissra hvata, skattalegra ívilnana og uppbyggingar hleðsluinnviða. Hlutfallið er svipað á Íslandi en yfir 90% í Noregi. Samhliða hefur Holland lagt mikla áherslu á almenningssamgöngur og hjólreiðar. Kolefnislosun vegna millilandaflugs umdeild Hollendingar eru mikil flugþjóð og millilandaflug er eitt umdeildasta loftslagsmálið. Um 66,8 milljón farþegar fóru um Schiphol-flugvöll 2024 og búist er við enn meiri aukningu. Til viðbótar við ETS-gjöld hafa yfirvöld lagt á flugfarþegaskatt til að draga úr eftirspurn. Jafnframt eru áform um að takmarka fjölda flugferða um Schiphol-flugvöll en þær áætlanir hafa mætt andstöðu og tafist. Fá ríki hafa gengið svo langt, þó Frakkland hafi bannað stutt innanlandsflug þar sem lest er raunhæfur valkostur. Rotterdam fer frá olíu til orkuskipta Umbreyting hagkerfisins sést vel í Rotterdamhöfn. Þar sem áður var mikilvæg miðstöð jarðefnaeldsneytis í Evrópu er nú að rísa miðstöð orkuskipta. Unnið er að uppbyggingu innviða fyrir innflutning á grænu vetni (framleitt með endurnýjanlegri orku), rafvæðingu iðnaðar og þróun kolefnisföngunar og -geymslu. Græna vetnið er lykilþáttur í að afkola þungan iðnað og framleiða eldsneyti fyrir flug og skip. Eitt stærsta kolefnisföngunar- og -geymsluverkefni í Evrópu er nú í uppbyggingu í Rotterdam og heitir Porthos. Þar verður CO₂ frá iðnaði safnað og dælt niður í tæmd gaslög undir Norðursjó. Þegar það fer í rekstur (áætlað 2026) mun það fanga um 2,5 milljónir tonna CO₂-ígilda á ári, eða um 10% af losun iðnaðar á svæðinu. Markmiðið er að safna og dæla niður 10 milljónir tonna á ári. Verkefnið nýtur stuðnings Evrópusambandsins og hefur stöðu forgangsverkefnis í uppbyggingu evrópskra orkuinnviða. Norðursjórinn er að umbreytast í raforkumiðstöð Holland tekur virkan þátt í einni stærstu orkuskiptaframkvæmd samtímans: uppbyggingu vindorku á Norðursjó. Verkefnið er drifið áfram af samstarfi ríkja í gegnum The North Seas Energy Cooperation, í samstarfi við Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Markmiðið er gríðarlega metnaðarfullt og mun, ef allt gengur eftir, gjörbreyta raforkuframleiðslu í Evrópu. Stefnt er að uppbyggingu í allt að 900-1300 teravattstundir (TWst) fyrir 2050. Til samanburðar er raforkukerfi Íslands í dag um 21 TWst. Landbúnaðurinn er erfiðasta áskorunin Breytingar í landbúnaðinum hafa reynst krefjandi og haft mikil áhrif á hollensk stjórnmál. Stærsta málið er svokölluð „köfnunarefniskrísa“ sem stafar af mikilli losun köfnunarefnis og metans frá þéttu búfjárhaldi, sem hefur haft alvarleg áhrif á vistkerfin. Málið harðnaði þegar hollenskir dómstólar kröfðust þess að undanþágum yrði hætt og að reglur Evrópusambandsins um náttúruvernd yrðu virtar. Viðbrögð stjórnvalda hafa verið róttæk og falið í sér fækkun búfjár, uppkaup bújarða og breytingar á framleiðsluháttum. Aðgerðirnar hafa vakið hörð viðbrögð og mótmæli en sýna jafnframt hversu erfitt er að takast á við suma losunarþætti. Bakslag og hik í stjórnmálum Ríkisstjórnin sem sat frá júlí 2024 til febrúar 2026 sætti harðri gagnrýni fyrir að veikja loftslagsstefnuna. Meðal aðgerða var seinkun á innleiðingu kílómetragjalds. Önnur stór aðgerð var breyting á stuðningi við sólarorku, þar sem dregið var úr nettómælingu sem hafði gert heimilum og fyrirtækjum kleift að selja umframorku á sama verði og þau greiða fyrir rafmagn. Breytingarnar hafa skapað óvissu og hægt á uppbyggingu. Ekki var heldur tekið á niðurgreiðslum á jarðefnaeldsneyti, sérstaklega skattaundanþágum fyrir iðnað, flug og skipaflutninga. Þá var dregið úr þrýstingi á aðgerðir í landbúnaði. Lítil reynsla er komin á núverandi minnihlutastjórn en viðbrögð sérfræðinga CCPI við áherslubreytingum stjórnvalda má sjá birtast í því að Holland féll úr 5. sæti árið 2025 niður í 10. sæti árið 2026. Skýr stefna og lærdómur Fyrir Ísland er lærdómurinn sá að þrátt fyrir áskoranir og áherslubreytingar í stjórnmálum hefur Holland á fáum árum lyft grettistaki og er meðal fremstu ríkja í loftslagsmálum. Lausnirnar eru þekktar: að setja lagalega bindandi markmið, beita réttum hvötum og skynsamlegri fjármögnun. Forgangsraða þarf aðgerðum og hugrekki þarf til að takast á við erfiðustu málin strax. Höfundur tilheyrir loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Loftslagsmál Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar