Nýstaðinn upp þegar bárujárnið fauk inn um svefnherbergisgluggann Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. apríl 2026 19:02 Hákon segir íbúa ekki munu sætta sig við slík vinnubrögð. Vísir/Bjarni Einungis munaði örfáum mínútum að eldri borgari á níræðisaldri yrði fyrir glerbroti úr rúðu þegar bárujárn fauk inn um glugga á svefnherbergi í Fannborg í Kópavogi. Hjón á níræðisaldri á þriðju hæð í húsinu fengu þakplötuna inn um gluggann á svefnherberginu sínu síðdegis í gær í gulri veðurviðvörun. Hjónin segja mildi að enginn hafi slasast, stórfjölskyldan hafi verið í heimsókn í afmælisboði. Eiginmaðurinn hafi verið nýstaðinn upp úr rúminu og kominn fram þegar rúðan sprakk með látum. Hákon Gunnarsson íbúi að Fannborg 9 náði því á myndband þegar þakplöturnar fuku þar sem verktaki var í óðaönn við að rífa húsið, sem mun víkja fyrir nýjum miðbæ Kópavogs. Sat í sólstofunni og varð vitni að öllu saman „Ég sit nú bara í sólstofunni minni hérna í Fannborg og er að vinna og heyri læti, mikil læti í gangi og mér bregður og fer út og fer út og sé bara að það er mikið sem gengur á, þannig ég gríp bara myndavélina.“ Verktakinn er Mannverk sem segist í yfirlýsingu harma atvikið og að farið verði yfir verkferla. Hákon segir málinu ekki lokið af hálfu íbúa. „Mér finnst eðlilegt að einhver beri ábyrgð, þarna skortir mikla aðgæslu og hér voru engir öryggisverðir þannig þetta hlýtur að hafa einhverja eftirmála, ég get ekki ímyndað mér annað.“ Yfirlýsing Mannverks í heild sinni: Góðan daginn Vegna frétta af foki og hættu sem skapaðist á framkvæmdasvæði Fannborgar í óveðrinu 6. apríl er rétt að koma eftirfarandi á framfæri. Til stóð að verktaki myndi ljúka niðurrifi þaksins á miðvikudag fyrir páska. Niðurrifið gekk hægar en gert var ráð fyrir og var því hætt um kvöldmatarleytið af tillitssemi við íbúa. Af sömu ástæðum hélt niðurrif ekki áfram yfir páskahátíðina. Gul viðvörun var gefin út síðar um helgina og þegar veður versnaði verulega á mánudag varð ljóst að hætta hafði skapast og fór verktaki þá á vettvang til að koma í veg fyrir frekara tjón. Aðstæður voru afar krefjandi og veður mun verra en ábyrgðaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Ljóst er að hætta skapaðist fyrir íbúa auk þess tjóns sem varð á nálægu húsi. Forsvarsmenn framkvæmdanna harma atvikið og mun gera það sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkar kringumstæður skapist aftur. Niðurrif Fannborgar 2 , 4 og 6 hefur gengið vel fram að þessu atviki. Stefnt er að því niðurrifi þaksins verði lokið á morgun, 8. apríl og er gert er ráð fyrir að niðurrifi alls hússins verði lokið í þessari viku. Í ljósi ummæla og fréttaflutnings vegna atviksins er rétt að taka fram að ekkert niðurrif hefur átt sér stað án tilskilinna leyfa. Virðingarfyllst, Snúist um öryggi íbúa Íbúar eigi von á að Vinnueftirlitið ráðist í frumkvæðisrannsókn vegna málsins, það hefði náðst á myndband og ummerki augljós. „Þetta snýst um öryggi íbúa hér, þetta snýst líka um almenna kurteisi og tillitssemi við nærsamfélagið, þetta snýst um það.“ Íbúar hafi lengi verið ósáttir við framkvæmdirnar og það sem þeir segja vera skort á samráði bæjaryfirvalda í Kópavogi. „Þetta er búið að vera saga þessara framkvæmda, samráðsleysi, upplýsingaleysi og svo framvegis og þetta er bara ein birtingarmynd af því, kannski sú sýnilegasta.“ Kópavogur Eldri borgarar Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira
Hjón á níræðisaldri á þriðju hæð í húsinu fengu þakplötuna inn um gluggann á svefnherberginu sínu síðdegis í gær í gulri veðurviðvörun. Hjónin segja mildi að enginn hafi slasast, stórfjölskyldan hafi verið í heimsókn í afmælisboði. Eiginmaðurinn hafi verið nýstaðinn upp úr rúminu og kominn fram þegar rúðan sprakk með látum. Hákon Gunnarsson íbúi að Fannborg 9 náði því á myndband þegar þakplöturnar fuku þar sem verktaki var í óðaönn við að rífa húsið, sem mun víkja fyrir nýjum miðbæ Kópavogs. Sat í sólstofunni og varð vitni að öllu saman „Ég sit nú bara í sólstofunni minni hérna í Fannborg og er að vinna og heyri læti, mikil læti í gangi og mér bregður og fer út og fer út og sé bara að það er mikið sem gengur á, þannig ég gríp bara myndavélina.“ Verktakinn er Mannverk sem segist í yfirlýsingu harma atvikið og að farið verði yfir verkferla. Hákon segir málinu ekki lokið af hálfu íbúa. „Mér finnst eðlilegt að einhver beri ábyrgð, þarna skortir mikla aðgæslu og hér voru engir öryggisverðir þannig þetta hlýtur að hafa einhverja eftirmála, ég get ekki ímyndað mér annað.“ Yfirlýsing Mannverks í heild sinni: Góðan daginn Vegna frétta af foki og hættu sem skapaðist á framkvæmdasvæði Fannborgar í óveðrinu 6. apríl er rétt að koma eftirfarandi á framfæri. Til stóð að verktaki myndi ljúka niðurrifi þaksins á miðvikudag fyrir páska. Niðurrifið gekk hægar en gert var ráð fyrir og var því hætt um kvöldmatarleytið af tillitssemi við íbúa. Af sömu ástæðum hélt niðurrif ekki áfram yfir páskahátíðina. Gul viðvörun var gefin út síðar um helgina og þegar veður versnaði verulega á mánudag varð ljóst að hætta hafði skapast og fór verktaki þá á vettvang til að koma í veg fyrir frekara tjón. Aðstæður voru afar krefjandi og veður mun verra en ábyrgðaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Ljóst er að hætta skapaðist fyrir íbúa auk þess tjóns sem varð á nálægu húsi. Forsvarsmenn framkvæmdanna harma atvikið og mun gera það sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkar kringumstæður skapist aftur. Niðurrif Fannborgar 2 , 4 og 6 hefur gengið vel fram að þessu atviki. Stefnt er að því niðurrifi þaksins verði lokið á morgun, 8. apríl og er gert er ráð fyrir að niðurrifi alls hússins verði lokið í þessari viku. Í ljósi ummæla og fréttaflutnings vegna atviksins er rétt að taka fram að ekkert niðurrif hefur átt sér stað án tilskilinna leyfa. Virðingarfyllst, Snúist um öryggi íbúa Íbúar eigi von á að Vinnueftirlitið ráðist í frumkvæðisrannsókn vegna málsins, það hefði náðst á myndband og ummerki augljós. „Þetta snýst um öryggi íbúa hér, þetta snýst líka um almenna kurteisi og tillitssemi við nærsamfélagið, þetta snýst um það.“ Íbúar hafi lengi verið ósáttir við framkvæmdirnar og það sem þeir segja vera skort á samráði bæjaryfirvalda í Kópavogi. „Þetta er búið að vera saga þessara framkvæmda, samráðsleysi, upplýsingaleysi og svo framvegis og þetta er bara ein birtingarmynd af því, kannski sú sýnilegasta.“
Yfirlýsing Mannverks í heild sinni: Góðan daginn Vegna frétta af foki og hættu sem skapaðist á framkvæmdasvæði Fannborgar í óveðrinu 6. apríl er rétt að koma eftirfarandi á framfæri. Til stóð að verktaki myndi ljúka niðurrifi þaksins á miðvikudag fyrir páska. Niðurrifið gekk hægar en gert var ráð fyrir og var því hætt um kvöldmatarleytið af tillitssemi við íbúa. Af sömu ástæðum hélt niðurrif ekki áfram yfir páskahátíðina. Gul viðvörun var gefin út síðar um helgina og þegar veður versnaði verulega á mánudag varð ljóst að hætta hafði skapast og fór verktaki þá á vettvang til að koma í veg fyrir frekara tjón. Aðstæður voru afar krefjandi og veður mun verra en ábyrgðaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Ljóst er að hætta skapaðist fyrir íbúa auk þess tjóns sem varð á nálægu húsi. Forsvarsmenn framkvæmdanna harma atvikið og mun gera það sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkar kringumstæður skapist aftur. Niðurrif Fannborgar 2 , 4 og 6 hefur gengið vel fram að þessu atviki. Stefnt er að því niðurrifi þaksins verði lokið á morgun, 8. apríl og er gert er ráð fyrir að niðurrifi alls hússins verði lokið í þessari viku. Í ljósi ummæla og fréttaflutnings vegna atviksins er rétt að taka fram að ekkert niðurrif hefur átt sér stað án tilskilinna leyfa. Virðingarfyllst,
Kópavogur Eldri borgarar Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira