Harma að íbúar hafi verið í hættu við Fannborg Lovísa Arnardóttir skrifar 7. apríl 2026 18:20 Skemmdir urðu á nærliggjandi húsum þegar plöturnar fuku. Hákon Gunnarsson Mannverk verktakafyrirtæki harmar að hætta hafi skapast vegna foks við Fannborg í óveðri í gær. Í yfirlýsingu kemur fram að staðið hafi til að ljúka niðurrifi þaks á framkvæmdasvæði fyrir páska en það hafi gengið hægar en áætlað hafði verið. Niðurrifinu var því hætt um kvöldmatarleyti á miðvikudegi fyrir páska.
Fjallað var um það í gær að í óveðri hefðu þakplötur fokið beint hús með þeim afleiðingum að rúða brotnaði og byggingar urðu fyrir skemmdum. „Gul viðvörun var gefin út síðar um helgina og þegar veður versnaði verulega á mánudag varð ljóst að hætta hafði skapast og fór verktaki þá á vettvang til að koma í veg fyrir frekara tjón. Aðstæður voru afar krefjandi og veður mun verra en ábyrgðaraðilar höfðu gert ráð fyrir. Ljóst er að hætta skapaðist fyrir íbúa auk þess tjóns sem varð á nálægu húsi. Forsvarsmenn framkvæmdanna harma atvikið og munu gera það sem í þess valdi stendur til að koma í veg fyrir að slíkar kringumstæður skapist aftur,“ segir í yfirlýsingunni frá Mannverki. Þar segir enn fremur að niðurrif Fannborgar 2, 4 og 6 hafi gengið vel fram að þessu atviki. „Stefnt er að því að niðurrifi þaksins verði lokið á morgun, 8. apríl, og gert er ráð fyrir að niðurrifi alls hússins verði lokið í þessari viku. Í ljósi ummæla og fréttaflutnings vegna atviksins er rétt að taka fram að ekkert niðurrif hefur átt sér stað án tilskilinna leyfa,“ segir að lokum.
Kópavogur Veður Byggingariðnaður Tengdar fréttir Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Bæjarstjóri Kópavogs segir að aðgengi almennings að bílastæðum við Fannborg í miðbæ bæjarins verði tryggt á meðan framkvæmdum stendur sem þó feli í sér nokkuð rask. Hún harmi að íbúar upplifi skort á upplýsingum, bæjaryfirvöld hafi lagt sig fram um að tryggja gott upplýsingaflæði. Fjöldi íbúa hafi lýst yfir ánægju með fyrirhugaðar breytingar á miðbænum. 11. mars 2026 07:03 Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Eldri borgari sem um árabil hefur barist gegn framkvæmdum í miðborg Kópavogs er fluttur á brott. Hann segist hafa gefist upp, selt íbúð sína á hrakverði og ber Kópavogsbæ ekki góða sögu. Lögfræðingur húsfélags í Fannborg segir íbúa fyrst og fremst ósátta við skort á upplýsingum frá bænum. 5. mars 2026 15:42 Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Byggingafulltrúi Kópavogsbæjar stöðvaði í dag verktaka sem höfðu hafist handa við niðurrif á húsnæði þar sem félagsheimili Kópavogs var áður, án þess að hafa tilskilið leyfi. Varabæjarfulltrúi segir að framkvæmdin öll sé „eitt allsherjarklúður af hálfu Kópavogsbæjar.“ 16. janúar 2026 19:12 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
Kannast ekki við að aðgengi að bílastæðum sé skert Bæjarstjóri Kópavogs segir að aðgengi almennings að bílastæðum við Fannborg í miðbæ bæjarins verði tryggt á meðan framkvæmdum stendur sem þó feli í sér nokkuð rask. Hún harmi að íbúar upplifi skort á upplýsingum, bæjaryfirvöld hafi lagt sig fram um að tryggja gott upplýsingaflæði. Fjöldi íbúa hafi lýst yfir ánægju með fyrirhugaðar breytingar á miðbænum. 11. mars 2026 07:03
Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Eldri borgari sem um árabil hefur barist gegn framkvæmdum í miðborg Kópavogs er fluttur á brott. Hann segist hafa gefist upp, selt íbúð sína á hrakverði og ber Kópavogsbæ ekki góða sögu. Lögfræðingur húsfélags í Fannborg segir íbúa fyrst og fremst ósátta við skort á upplýsingum frá bænum. 5. mars 2026 15:42
Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Byggingafulltrúi Kópavogsbæjar stöðvaði í dag verktaka sem höfðu hafist handa við niðurrif á húsnæði þar sem félagsheimili Kópavogs var áður, án þess að hafa tilskilið leyfi. Varabæjarfulltrúi segir að framkvæmdin öll sé „eitt allsherjarklúður af hálfu Kópavogsbæjar.“ 16. janúar 2026 19:12