Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Kristján Már Unnarsson skrifar 8. apríl 2026 13:39 Danska Seahawk-herþyrlan tekin út úr frönsku Airbus 400M-herflutningavélinni á Keflavíkurflugvelli. Sofie Bock Troelsen/Forsvaret Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af.
Þyrlurnar eru jafnan hafðar á dönsku herskipunum sem sinna eftirliti við Grænland og Færeyjar. Þær þurfa hins vegar reglulega að fara til Danmerkur í skoðun og viðhald og hefur þeim þá verið flogið yfir Norður-Atlantshaf. Franska Airbus 400M-flutningavélin komin með dönsku herþyrluna til Keflavíkurflugvallar.Sofie Bock Troelsen/Forsvaret Núna var ákveðið að prófa aðra leið. Í stað þess að þyrlurnar, sem eru af gerðinni Sikorsky MH-60R Seahawk, flygju sjálfar yfir úthafið var ákveðið að æfa flutning á þeim með herflutningavél af gerðinni Airbus 400M. Þannig átti að prófa möguleikann á sveigjanlegri, skilvirkari og öruggari þyrluflutningum með aðstoð bandamanna Dana innan NATO, að því er segir á heimasíðu danska hersins. Þyrlan komin um borð.Sofie Bock Troelsen/Forsvaret Franska herflutningavélin tók á loft frá miðstöð danska flughersins á Karup-flugvelli á Jótlandi á skírdag með Seahawk-þyrluna um borð en hún var að koma úr viðhaldi. Flogið var með hana til Keflavíkurflugvallar. Þar beið önnur dönsk Seahawk-herþyrla flutnings til Danmerkur, sem franska flutningavélin flaug svo með til baka til viðhaldsskoðunar í Karup. Taka þurfti bæði spaðana og afturstélið af þyrlunni.Sofie Bock Troelsen/Forsvaret Þótt farmrýmið sé mjög stórt í Airbus 400M, 340 rúmmetrar, reyndist plássið fyrir þyrluna takmarkað. Þó hvorki á breidd né lengd heldur í hæð. Lofthæðin í flutningavélinni er 3 metrar og 85 sentímetrar. Hæð þyrlunnar, eftir að búið var að taka spaðana af, var hins vegar 3 metrar og 94 sentímetrar. Hún var því níu sentímetrum of há. Flugvirkjar danska hersins fundu þó ráð. Þeir hleyptu lofti úr dekkjum þyrlunnar. Á þann hátt var hægt að draga þyrluna inn í farmrými frönsku flutningavélarinnar. Þyrlan var níu sentímetrum of há til að komast inn. Lausnin fólst í að hleypa loftinu úr dekkjum þyrlunnar.Sofie Bock Troelsen/Forsvaret Í umfjöllun danska hersins segir að verðmætar flugstundir sparist á þyrlunum með svona flutningi. Þetta sé öruggari aðferð heldur en að fljúga þyrlunum langa leið yfir opið haf þar sem langt sé á milli lendingarstaða. Því fylgi áhætta þar sem slæmt veður geti brostið á.
Keflavíkurflugvöllur Danmörk Frakkland NATO Öryggis- og varnarmál Grænland Færeyjar Norðurslóðir Tengdar fréttir Danir stórefla varnir Grænlands með freigátum og orustuþotum Dönsk stjórnvöld hafa í samráði við Grænlendinga tilkynnt um stóraukin hernaðarútgjöld vegna Grænlands og norðurslóða. Ákvörðunin þýðir miklar framkvæmdir á næstu árum í þessu næsta nágrannalandi Íslands og aukna viðveru herflugvéla og herskipa. 14. október 2025 21:21 Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Sjá meira
Danir stórefla varnir Grænlands með freigátum og orustuþotum Dönsk stjórnvöld hafa í samráði við Grænlendinga tilkynnt um stóraukin hernaðarútgjöld vegna Grænlands og norðurslóða. Ákvörðunin þýðir miklar framkvæmdir á næstu árum í þessu næsta nágrannalandi Íslands og aukna viðveru herflugvéla og herskipa. 14. október 2025 21:21