Er búið að lofa áfengisiðnaðinum atkvæðagreiðslu til að freista þess að stöðva dómsmál? Siv Friðleifsdóttir skrifar 9. apríl 2026 12:31 Í fjölmiðlum í gær kom fram hjá talsmanni Santé eitthvað á þá leið að þingmannafrumvarp, sem nýlega var lagt fram á Alþingi, muni líklega fara til atkvæðagreiðslu. Yfirlýsing þessi kemur á óvart, því ef svo fer væri verið að reyna að skjóta lögum undir þá netverslun áfengis sem var dæmd ólögleg í gær í héraðsdómi Reykjaness. Þannig væri reynt að stöðva það dómsmál sem áfengisiðnaðurinn tapaði í gær. Þannig ætti að kúvenda gildandi áfengis- og lýðheilsustefnu Íslands. Lögleiðing frumvarpsins myndi fela það í sér að einkasala ríkis á áfengi yrði lögð niður, þótt aðstandendur frumvarpsins haldi öðru fram. Ógrynni tillagna streyma frá þingmönnum ár hvert og fæstar fara til atkvæðagreiðslu. Yfirlýsing talsmannsins er því eftirtektarverð og vekur upp spurningar. Hún er á skjön við þau svör sem tveir leiðandi ráðherrar hafa gefið Alþingi. Daði Már og Alma hafa verið skýr Málefni einkasölu ríkisins á áfengi, ÁTVR, falla undir fjármála- og efnahagsráðherra, Daða Má Kristófersson. Hann hefur sagt skýrt, og það skriflega fyrir Alþingi, að ekki standi til að leggja niður ÁTVR. Hann hefur einnig sagt að hann telji að lögin séu skýr sbr. opinbert viðtal við hann 5. janúar sl. „Álit okkar, dómsmálaráðuneytisins og ytri aðila, er svo að það sé í sjálfu sér engin óvissa og þetta snúist bara um að framfylgja lögunum. Menn geta tekist á um það hvort lögin eigi að vera svona eða einhvern veginn öðruvísi en ég tek ekki undir það að það sé óvissa í lögunum“. Enda þótt núverandi fjármála- og efnahagsráðherra telji lögin afdráttarlaus hefur hann kallað eftir úrskurði dómstóla um lögmæti sölunnar en jafnframt tekið fram að söluaðilar hafi mátt vita að áfengissala þeirra væri ólögleg. Í opinberu viðtali 23. ágúst síðastliðinn er ráðherrann spurður sérstaklega út í þetta. Hann bregst þannig við: „Þetta eru auðvitað ákvarðanir sem þessir aðilar hafa tekið og hljóta að hafa gert sér grein fyrir þeirri áhættu sem þeir hafa verið að taka.“ Forvarnarsamtök hafa einmitt verið sömu skoðunar og ráðherrann hvað þetta varðar. Lýðheilsa fellur undir heilbrigðisráðherra, Ölmu Möller, sem hefur ávallt staðið þétt með lýðheilsu og að einkasala ríkis á áfengi sé besta fyrirkomulag slíkrar sölu. Hún segir skýrt í svari til Alþingis að það komi ekki til greina að leggja niður ÁTVR án undanfarandi lýðheilsumats. Forvarnarsamtök hafa fagnað því hve skýrir sitjandi ráðherrar hafa verið á þessu. Hvað nú? Fjárhagslegir hagsmunir í húfi Fulltrúar áfengisiðnaðarins hafa lýst óánægju með héraðsdóm gærdagsins og segjast munu áfrýja honum. Þeir munu því reyna að selja sem mest þar til endanlegur dómur fellur. Líklega hefur ekki farið fram hjá neinum hve mikið þeir auglýsa áfengi á samfélagsmiðlum og víðar. Þá tilkynna þeir opnun nýrra sölustaða á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Þeir spila, sókn er besta vörnin. Það eru líka miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir þá, á sama hátt og það eru miklir fjárhagslegir hagsmunir í húfi fyrir almenning (skattborgara) ef áfengi verður selt í matvöruverslunum með tilheyrandi neysluaukningu. Árið 2024 sagði talsmaður Santé að fyrirtækið velti hátt að tveimur milljörðum króna. Lesendur geta velt fyrir sér hve há hún gæti verið í dag. Stjórnvöld þurfa að klára lýðheilsumat og setja magntakmarkanir Þótt héraðsdómur gærdagsins hafi verið lýðheilsu í vil þurfa stjórnvöld að hysja upp um sig buxurnar varðandi áfengisstefnuna. Þau þurfa til dæmis að klára forsendur þess að löggjöfin um sölu áfengis á framleiðslustað var samþykkt á Alþingi. Þær forsendur voru m.a. að gert yrði lýðheilsumat á löggjöfinni og gripið til mótvægisaðgerða ef þurfa þykir. Einnig að setja ákvæði um hve mikið magn hver og einn mætti kaupa á framleiðslustað (magntakmarkanir). Þessi atriði má kynna sér á vef Alþingis eða í skoðanagrein fyrir skömmu. Þrátt fyrir að forvarnarsamtök hafi rukkað ráðuneyti um svör, m.a. frá því síðla síðasta árs, um hvar framangreind vinna sé stödd, hefur í engu verið svarað. Samtökin hafa beðið svara í að verða 4 mánuði. Samtökin hafa því leitað til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál til að herja út svör og það ekki í fyrsta sinn. Þannig upplifa forvarnarsamtök að þau mæta þöglum vegg stjórnsýslunnar þegar reynt er að fá svör við sjálfsögðum spurningum í mikilvægu lýðheilsu- og velferðarmáli. Forvarnarsamtök hafa unnið vel Forvarnarsamtök hafa lagt mikla vinnu í að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma og eiga þakkir skildar. Þau hafa verið í góðri samvinnu við heilbrigðisstéttir og SÁÁ í málinu. Í yfirlýsingu sinni í gær þegar héraðsdómur féll segja þau “Samtökin treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum og áfengisforvarnaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka.” Þótt forvarnarsamtök eigi úr litlu sem engu fjármagni að spila, og eiginlega ekki krónu með gati miðað við peningapokana sem áfengisiðnaðurinn getur kastað í áróður gagnvart almenningi og þingmönnum, er rödd þeirra mikilvæg. Vonandi verður hlustað á þau. Höfundur er félagi í Fræðslu og forvörnum – félagi áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu og fyrrum heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Siv Friðleifsdóttir Áfengi Netverslun með áfengi Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira